Fréttablaðið - 28.05.2001, Side 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
28. maí 2001 MÁNUDAGUR
HVERNIG FER?
Leikur Fram og ÍBV?
SIGÞÓR JÚLÍUSSON,
LEIKMAÐUR KR:
„Ég held að nýju menn-
imir í liði ÍBV eigi eftir
að koma með ferskt
blóð inn í liðið og að
Eyjamenn vinni
leikinn því 3-1."
GUÐMUNDUR TORFA-
SON, FYRRVERANDI
KNATTSPYRNUMAÐ-
UR:
„Ég held að leikurinn á
morgun geta farið alla
vega, úrslitin í þessu móti
hafa verið þannig fram
að þessu. Bæði liðin hafa
byrjað illa þannig að ætli
þetta verði ekki bara jafntefli, 0-0."
| MOLAR~T
Walsall, sem sló Stoke út í undan-
úrslitum um laust sæti í ensku
1. deildinni, sigraði í gær Reading 3-
2 í úrslitaleiknum og mun því leika í
1. deild á næsta keppnistímabili
ásamt Millwall og Rotherham.
Huddersfield, QPR og TVanmere
féllu úr 1. deild og munu því etja
kappi við lið Guðjóns Þórðarsonar á
næsta ári. Úrslitaleikurinn um laust
sæti í úrvalsdeildinni fer fram í
kvöld, en þar eigast við Bolton, lið
Guðna Bergssonar og Preston, lið
Bjarka Gunnlaugssonar.
au Björgvin Sigurbergsson og
Ólöf María Jónsdóttir, úr Keili,
sigruðu á fyrsta mótinu í Toyota-
mótaröðinni í golfi, sem lauk í Vest-
mannaeyjum í gær.
Björgvin lék hring-
ina þrjá á 210 högg-
um, eða pari, en
Ólöf María lék á 227
höggum, eða 17
höggum yfir pari. í
karlaflokki lenti
Örn Sölvi Halldórs-
son í öðru sæti á 216 höggum og
Heiðar D. Bragason í þriðja sæti á
217 höggum. í kvennaflokki urðu GR-
ingarnir Ragnhildur Sigurðardóttir
og Herborg Arnarsdóttir í öðru og
þriðja sæti á 234 og 241 höggi.
Mikil spenna er komin í ítölsku
deildina eftir að Roma gerði 1-1
jafntefli við AC Milan í Róm í gær á
meðan Juventus sigraði Perugia. Nú
munar aðeins fjórum stigum á liðun-
um þegar tvær umferðir eru eftir.
Feðgarnir Rúnar Jónsson og Jón
Ragnarsson sigruðu örugglega í
Esso-rallinu á Reykjanesi sem hófst
á föstudagin og
lauk á laugardag-
inn. Feðgarnir, sem
aka á Subaru Im-
presa, náðu strax
forystu og luku
keppni á 51,48 mín-
útum. í öðru sæti
urðu Hjörtur P.
Jónsson og ísak Guðjónsson, á
Toyota Corolla, á 52,54 mínútum og
Baldur Jónsson og Arnar Valsteins-
son , sem aka á Subaru Legacy lentu
í þriðja sæti á 53,32 mínútum.
Alex Ferguson hyggst styrkja lið
sitt verulega fyrir næsta leik-
tímabil. Hann hefur þegar keypt
hollenska fram-
herjann Ruud van
Nisteirooy á 19
milljónir punda og
vill ólmur krækja í
franska landsliðs-
manninn Bixente
Lizarazu, sem leik-
ur með Bayern
sagður tilbúinn til
að borga 7 milljónir punda fyrir
hann.
Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum er
Barcelona að undirbúa tilboð í
Francesco Toldo,
leikmann Fiorent-
ina og ítaiska lands-
liðsins og mun það
hljóða upp á 18
milljónir punda. Ef
kaupin ganga eftir
mun Toldo verða
launahæsti mark-
vörður í heimi en hann mun fá um
350 milljónir í árslaun. Vitað er að
Roma hefur einnig áhuga á kappan-
um.
Nýtt heimsmet í tugþraut:
9.000 stiga múrinn rofinn
FRjÁLSflR Tékkinn Roman Sebrle, silf-
urverðlaunahafinn frá Ólympíuleik-
unum í Sidney, setti nýtt heimsmet í
tugþraut í Götzis í Austurríki um
helgina. Sebrle hlaut 9.026 stig og
varð þar með fyrsti tugþrautarmað-
urinn til að rjúfa 9.000 stiga múrinn.
Jón Arnar Magnússon, tók þátt í mót-
inu en hætti keppni eftir fjórar grein-
ar vegna meiðsla. Ólympíumeistar-
inn Erki Nool lenti í öðru sæti með
8.604 stig og Thomas Dvorak varð
þriðji með 8.527 stig.
Sebrle, sem er 26 ára gamall,
bætti tæplega tveggja ára gamalt,
sem landi hans Dvorak setti í Prag í
júlí 1999, en það var 8.994 stig. Sebrle
kann greinilega vel við sig í Götzis
því í júní í fyrra hlaut hann 8.757 stig
á mótinu þar, sem var besti árangur
hans fram að þessu.
Árangur Sebrle um helgina er í
raun ótrúlegur því hann setti per-
sónulegt met í 8 af 10 greinum.
Sebrle sagðist frá byrjun hafa stefnt
að því að bæta heimsmetið. Hann var
nánast orðlaus eftir keppnina og átti
erfitt með að lýsa tilfinningum sín-
um.
„Nú ætla ég að hvíla mig aðeins og
sjá síðan til með framhaldið," sagði
Sebrle og bætti því við að hann von-
aðist til að vinna fleiri afrek í fram-
tíðinni. ■
HEIMSMET SEBRLE
■ 100 m hlauo 10,64 sek.
■ Langstökk 8,11 m.
■ Kúluvarp 15,33 m.
■ Hástökk 2,12 m.
■ 400 m hlaun 47,79 sek.
■ 110 m erindahlauD 13,92 m.
■ Krinelukast 47,92 m.
■ Stanearstökk 4,80 m.
■ Spiótkast 70,16 m.
■ 1500 m hlauD 4.21,98 mín.
ORMAGNA
Roman Sebrle setti persónulegt met í 8 af
10 greinum þegar hann setti nýtt heims-
met (tugþraut.
3. umferð Símadeildar karla:
Meistararnir steinlágu
fótbolti Fjórir leikir í þriðju umferð
Símadeildar karla fór fram í gær. ís-
landsmeistarar KR steinlágu fyrir
nýliðum FH í Kaplakrika 2-0. Fylkir
og Valur gerðu markalaust jafntefli í
Árbænum, Grindvíkingar unnu
Breiðablik 2-1 og Skagamenn báru
sigurorð af Keflvíkingum 2-0.
KR-ingar voru langt frá sínu besta
þegar liðið heimsótti FH í Hafnar-
fjörð. FH-ingar mættu mun ákveðn-
ari til leiks og ætluðu sér sigur frá
fyrstu mínútu. Tvö mörk iitu dagsins
ljós á fjögurra mínútna kafla. Fyrst
skoraði Atli Björn Viðarsson á 22. mín
og Jóhann Möller bætti við öðru
marki á 26. mín. Nýliðar FH eru enn
taplausir með fimm stig á meðan
meistarar síðustu tveggja ára hafa
einungis náð þremur stigum úr þrem-
ur leikjum.
Á Skipaskaga mættust ÍA og
Keflavík. Leikurinn var nokkuð fjör-
ugur og ánægjulegt að sjá hvað bæði
lið tefla fram ungum leikmönnum.
Skagamenn voru miklu sterkari aðil-
inn og strax á 13. mín skoraði Grétar
Steinsson. Haraldur Hinriksson skor-
aði síðan annað mark Skagamanna
eftir hornspyrnu og þar við sat.
Grindavík tók á móti Breiðablik á
Grindavíkurvelli. Leikurinn fór ró-
lega af stað en eftir 30. mín leik skor-
aði Sinisa Kekic. Che Bunce fékk
dæmda á sig aukaspyrnu nokkrum
metrum fyrir utan vítateig, skotið var
á markið og Blikar náðu að hreinsa
rétt út fyrir vítateig en Sinisa Kekic
náði frákastinu og skaut þrumuskoti í
markið. Heimamenn voru ívið betri
aðilinn í leiknum og á lokamínútum
fyrri hálfleiksins fiskaði Ólafur Örn
Bjarnason vítaspyrnu, sem hann
skoraði síðan sjálfur úr. Ólafur var
síðan borinn af velli en ekki var vitað
um meiðsl hans. Bjarki Pétursson
minnkaði síðan muninn í eitt mark
með glæsilegu marki á 82. mín.
Fylkismenn tóku á móti Valsmönn-
um í Árbænum. Mikil barátta ein-
kenndi leikinn en heimamenn náðu að
skapa sér mun hættulegri færi. Fylk-
ismenn björguðu að vísu á línu um
miðjan seinni hálfleik en hvorugt lið
náði að koma boltanum í netið. Leik-
urinn endaði því með markalausu
jafntefli.
í kvöld mætast svo Fram og ÍBV á
Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl.
20.00. ■
Ráðandi afl á miðjunni
Patrick Viera var valinn besti leikmadur ensku úrvalsdeildarinnar. Samningavið-
ræður við Arsenal standa yfir.
KNflrrspYRNfl. Patrick Vieira, leikmað-
ur Arsenal, sem á dögunum var kjör-
inn leikmaður ársins í Englandi af
styrktaraðilum úrvalsdeildarinnar, á
nú í samningaviðræðum við forráða-
menn liðsins, sem vilja ólmir halda í
þennan öfluga miðjumann. Þá hafa
enskir fjölmiðiar greint frá því að
Man. Utd. séu að undirbúa 24 milljó-
na punda tilboð í leikmanninn.
I viðtali við franska blaðið
l¥Equipe vildi Vieira lítið tjá sig um
samningaviðræðurnar.
„Ég á í viðræðum við Arsenal um
framtíð mína hjá liðinu - um það
hvort ég verði þar áfram eða ekki,“
sagði Viera við franska blaðið og
bætti því við að í hans huga væri
framtíðin ljós.
Vieira, sem er franskur ríkisborg-
ari var fæddur í Senegal 23. júní
áriðl976. Hann hóf feril sinn hjá
Cannes í Frakklandi, en var fljótlega
keyptur til ítalska stórliðsins AC Mil-
an. Hjá Milan náði Vieira ekki að
festa sig í sessi sem leikmaður enda
kornungur og fékk fá tækifæri í þá
stjörnumprýddu liði ítalanna. Eftir
að hafa leikið aðeins tvo leiki í ítölsku
deildinni var hann keyptur til
Arsenai fyrir um 4 milijónir punda
og hefur hann leikið þar undir stjórn
Arsene Wenger síðan 1996.
Viera var fljótur að láta til sín
taka hjá Arsenal og mánuði eftir að
hann gekk til liðs við félagði lék hann
sinn fyrsta leik gegn Sheffield Wed-
nesday, sem vannst 4-1. Nú fimm
árum síðar er Viera talinn einn allra
öfiugasti miðjumaður í heimi. Auk
þess að vera ómissandi hlekkur í iiði
Arsenal hefur hann leikið stórt hlut-
verk í sigursælu landsliði Frakka
undanfarin ár.
Styrktaraðilar ensku úrvalsdeiid-
arinnar voru ósparir á lofsyrðin þeg-
ar hann var valinn leikmaður ársins.
„Viera hefur allt, leikni með bolt-
ann, hraða og hæfileikann til að skora
og skapa marktækifæri,11 segir í um-
fjöllun styrktaraðilanna. „Hann hef-
ur verið ráðandi afl á miðju vallarins
og með leik sínum sýnt öðrum hvern-
ig á í raun að stjórna miðjuspilinu."
Víst er að ef Arsenal selur ákveð-
ur að selja leikmanninn, sem verður
að teljast mjög ólíklegt, mun ekki
skorta áhugasama kaupendur. Þá
mun kaupverðið vafaiaust skipta tug-
um milljóna punda, enda er Vieira að-
eins 25 ára gamall og á hátindi ferils-
ins. Vieira hefur best verið þekktur
sem varnarmiðjumaður en á nýaf-
stöðnu tímabili sýndi hann að hann
getur líka skorað mörk. Á ferli sínum
hjá Arsenal hefur Viera leikið 221
leik og í þeim hefur hann skorað 16
mörk, þar af 7 sl. vetur. Viera hefur
PRÍMUSMÓTOR
Patrick Vieira hefur allt, leikni með bolt-
ann, hraða og hæfileikann til að skora og
skapa marktækifæri, segir i umfjöllun
styrktaraðila ensku úrvalsdeildarinnar um
leikmanninn.
oft verið gagnrýndur fyrir grófan
leik, en hann hefur tekið sig á í þeim
efnum á síðustu misserum og tekist
að láta skapið ekki hlaupa með sig í
gönur.
Ef Veira heldur áfram að sömu
braut og tekst að hemja skap sitt má
vel búast við því að hann verði skip-
aður fyrirliði liðsins á næstu misser-
um, en hann var einmitt fyrirliði
Cannes aðeins 18 ára gamall og er
yngsti leikmaðurinn til þess að leiða
lið sitt í frönsku deildinni. ■
Simadeild karla
Sæti Lið Leikir Mörk Stig
I. Valur 3 4 : 2 7
2. Breiðablik 3 3 : 2 6
3. Keflavík 3 4 : 4 6
4. FH 3 4 : 2 5
5. ÍA 3 5 : 4 4
6. Fylkir 3 2 : 2 4
7. Grindavík 3 3:4 3
8. KR 3 2 : 4 3
9. [BV 2 0 : 1 1
10. Fram 2 2 : 4 0
Símadeild kvenna
2. umferð
Þór/KA/KS-Stjarnan 13
1. deild karla
KA-Tíndastóll 4:0
Víkingur-Dalvlk 6:1
IR-Þór 1:1
KS-Stjarnan 0:1
Leiftur-Þróttur R. 2:3
Sæti Lið Leikir Mörk Stig
1. KA 2 8:0 6
2. Vikingur 2 6:1 4
3. Þór 2 4:1 4
4. Stjarnan 2 2:1 4
5. Þróttur R. 2 . 3:2 4
6. |R 2 2:2 2
7. KS 2 1:2 1
8. Tindastóll 2 1:5 1
9. Leiftur 2 2:6 0
10. Dalvík 2 1:10 0