Fréttablaðið - 28.05.2001, Page 16
FRÉTTABLAÐIÐ
28. maí 200' MÁNUDAGUR
BEST I BÍÓ
16
Það er dáldið langt síðan ég fór í bíó
en síðast sá ég Traffic með Michael
Douglas, Catherine Zetu-Jones og Ben-
icio Del Toro. Mér fannst myndin mjög
skemmtileg þó lýsingin væri svolítið
skrýtin. Hún breytist alltaf eftir því í
hvaða landi hún gerist, er öðruvísi í
Bandaríkjunum en Mexíkó. Lýsingin fór
svolítið í taugarnar á mér til að byrja
með en ég vandist henni þó fljótt. ■
HILDUR GUÐNADÓTTIR
nemi, söngvari og sellóleikari
Lýsingin öðruvísi
HÁSKÓLABÍÓ
jPOKEMON 3 (ísl. tal) NÝISTÍLUNN KEISARANS (isL tal) kl.2,4og6|l",,T|
Iexitwonds ITRAFFIC U. 10.05j|^|
ÍMISS CONCENIALITY kl. 3.50, 5.55 Oj-eO 1102 DALMATÍUHUNDUR (ísl.tal) kl. i.5offl
ITHEWAYOFTHEGUN |EL DORADO (isl. tal) STÍIISl
[THIRIEEN DAYS kl.80 [risaeðlurnar HLIJOÍP
;
Iþrótta-
súrmjólkin
•frittír í mark!
* f %_ S
■ >
íþróttasúrmjólk
með vanillu
og jarðarberjum
MJÓLKURSAMLAG KS
SAUÐÁRKRÓKI
Upprisuhátíð Hljómalindar:
Rey kj avík mini - fes tival
tónust Hingað til lands er væntan-
leg hljómsveitin Blonde Redhead
sem mun spila á Reykjavík mini
festival, um Hvítasunnuhelgina 2.-
3. júní. Tónleikarnir eru liður í
Upprisuhátíð Hljómalindar.
Skúli Sverrisson bassaleikari,
hefur oft verið nefndur sem einn af
stofnendum hljómsveitarinnar en
hann hefur verið búsettur í New
York um nokkurt skeið en kemur
með bandinu hingað til lands.
„Reyndar var það annað band sem
ég var í sem var upphafið að þessu
bandi.Það band hét Masculin Fem-
inin“ segir Skúli um tilurð sína i
hljómsveitinni. „Ég er náttúrulega
búinn að fylgjast með því frá upp-
hafi.“
Hljómsveitin er undir áhrifum
frá hinum svokallaða Avantgar-
deheimi auk þess sem gæta má ítal-
skra og japanskra áhrifa en með-
limir hennar ólust upp við slíka tón-
list. Bræðurnir Simone og Amadeo
koma einnig úr jazzheiminum og
segir Skúli að gæta megi ákveðinn-
ar fágunar í tónlist hljómsveitar-
innar þó hún sé ekki í jazzstílnum.
Hljómsveitinni hefur jafnvel verið
líkt við Sonic Youth en Skúli er síð-
ur en svo sammála þeirri skilgrein-
ingu. „Það er bara svona leiðinda-
stimpill sem hugmyndasnauðir
blaðamenn fundu á þetta band. Ég
veit ekki af hverju það átti sér stað,
kannski var það að því að þau byrj-
uðu að taka upp plötur fyrir fyrir-
tækið Smell Like Records, sem er í
eigu Steve Shelleys trommara Son-
ic Youth. En ef þessi stimpill hefur
einhvern tímann verið á bandinu þá
er það löngum liðið. Þessi bönd eiga
fátt sameiginlegt."
Skúli segir hljómsveitina hafa
mikla sérstöðu, sé með sérstakar
lagasmíðar sem sé ekki beinlínis
hægt að tengja við sérstakar hljóm-
sveitir. „Þau hafa alltaf verið fyrir
utan þetta mainstream." Blonde
Redhead nýtur mikilla vinsælda
beggja vegna Atlantshafsins og
segir Skúli þau hafa mjög víðan að-
dáendahóp. „Alltaf þegar þau spila í
New York er uppselt á tónleikanna.
Þau hafa náð mjög langt í þessum
undergroundheimi. Það er mikið af
ungu fólki sem fylgist með nýrri
músik og fylgir þeim, þar sem það
er margt nýstárlegt sem þau eru að
gera. Svo eru þau líka rosalega fal-
leg og melódískt band enda hafa
þau haft djúp áhrif á aðrar tónlist-
arstefnur" segir Skúli að lokum og
lofar frábærum tónleikum með
þessu stórkostlega tónleikabandi.
Tónleikar Blonde Redhead
verða í Laugardalshöllinni 2. júní
n.k. en ásamt þeim munu Maus,
Úlpa og Kuai koma fram og ís-
landsvinirnir í Propellerheads
munu þeyta skífum á milli atriða.
Sunnudaginn 3. júní munu hinir
gömlu góðu Hljómar, Sigur Rós,
Gras og Alex Giffor spila í Höllinni.
Miðasala er þegar hafin í Hljóma-
lind og hefst í verslunum Skífunnar
og Músik & Mynda á þriðjudag.
Miðaverð er 2000 kr. fyrri daginn
en 2500 kr í stæði, 3000 kr í stúku
seinni daginn. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
Vinurinn Courtney Cox er víst ekki
ólétt. Þær sögusagnir gengu fjöll-
um hærra að Courtney hefði samið
við framieiðendur
þáttanna um að
handrit næstu þátta
yrði skrifað þannig
að Monica, sem hún
leikur, væri ólétt.
Þannig átti hún að
geta tvinnað óléttu
sína og vinnu sam-
an. Talsmenn hennar
hafa nú slegið á sögusagnirnar og í
viðtali við Eonline sagði einn þeirra
„Hún er örugglega ekki ólétt.“ Það
hefur hinsvegar ekki farið framhjá
neinum að Courtney vill stofna til
fjölskyldu með manni sínum David
Arquette.
Ofurpopphljómsveitin Her’Say sem
er einhver vinsælasta hljómsveit
Bretlands um þessar mundir mun
spila í afmæli hjá prinsinum Philip.
Þó nokkrar poppstjörnur munu troða
upp á áttatíu ára afmæli Philips, Dina
Carroll og Mel B, Claire Sweeny, Pen-
elope Ketih, Jerry Hall og Julian Ll-
oyd Webber. Her’Say munu troða upp
með Dame Shirley Bassey og hinum
eilífa Lionel Richie. Her’Say er nýj-
asta tilbúna æðið, en hún var sett
saman eftir stóra og mikla hæfileika-
keppni um allt Bretland.
Gary Lineker, fyrrum landsliðsfyr-
irliði Englands, hefur tjáð sig op-
inberlega um nýju móhíakana hár-
greiðslu Beckhams,
núverandi landsliðs-
fyrirliða. Slúðurblöð
ytra telja Beckham
hafa fengið innblást-
ur úr kvikmyndinni
Taxi Driver, þar sem
Robert De Niro fer
með aðalhlutverk og
finnst Lineker nýja
klippingin vægast sagt asnaleg. „Það
er mjög mikilvægt að spila landsleik
og þar er fáránlegt að draga að sér
alla athygli með slíku uppátæki, rétt
fyrir landsleik" sagði Lineker. „Af
myndunum se_m ég hef séð lítur þetta
fáranlega út. Ég hefði aldrei fengið
mér svona klippingu, enda hefði ég
litið út eins og versti prakkari með
þessu útstæðu eyru“ sagði Lineker að
lokum. Hann hefur alltaf passað sig á
því að fá ekki fólk upp á móti sér og
hann fékk ekki eitt spjald á öllum sín-
um knattspyrnuferli, hvorki gult né
rautt.
Taktu
smá
rispu
Jf* V
mSIMmœsio1. EikkEns
bilalakk á údabrúsum
Fáðu litinn þinn á úðabrúsa til að
laga grjótbarning og smárispur.
Sikkens gefur rétta litinn á bílinn þinn.
0Í5LI JÓNSSON ehf
Bíldshöfða 14 • s. 5876644
Um hvað ó
lífræðiritgerðin þín
að vera?
Ó, fjórinn, ég ætlaði
einmitt að skrifa um
þetta!
Örverufræðileg hóspennu-
hlutföll i sameindalíkindum
hverafruma.