Fréttablaðið - 28.05.2001, Síða 17
MÁNUDAGUR 28. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
|THE MUMMY RETURNS kl. 5.8 og 1030
|ENEIVIYAT THE GATES ~ kl. 5.30,8 og 10.30
THE CRIMSON RIVERS kl. 5.45,8
REGN^ðGINN
HVERFISGÖTU SÍMI 551 9000
www.skifan.is
LAUGAVEGI 94, SIMI 551 6500
POKEMON 3 (ísl. tal) kl.6|
DRUNGEONS AND DRAGONS kl. 6, 8og 101
DRACULA kl. 8 og 101
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 vn 2ib
|SWEET NOVEMBER kl. 5.45, 8 og 10.15 ||VIT|
POKEMON 3 (IsL tal) kl.4 0K6 Vl1
Iexitwonds kl. 8 og lo.iol®
1102 DALMATÍUHUNDUR (isl. tal) kl. 3.5o[fíml
kl. 6, 8 og 10
;
miiimii rni inm 111111n mmTmi nrn An
|PEARL HARBOR Forsýning kl.8||^|
PAY IT FORWARD kl. 5.4o|P‘f|
[ÍRÁFFIC kl.5.45.8ogl0.15lp|
Sýnd kl. 6, 8 og 10
|get over it
Sýnd kl. 6, 8, 10, og 12 vjt isc
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10
Tónlistarblöð eru byrjuð að birta
umfjallanir um tónleika Bjarkar
Guðmundsdóttur í Riverside kirkj-
unni í New York í
síðustu viku. Ein-
ungis hundrað
manns voru þess
heiðurs aðnjótandi
að fá miða á tón-
leikana. Blaðamað-
ur Billboard sagði
þá hafa verið him-
neska, þá sérstak-
lega upphafið. Björk gekk fram og
til baka um kirkjugólfið og söng lag-
ið Unravel af plötunni Homogenic.
Þá söng hún einnig hið hugljúfa All
is Full of Love af Homogenic. Þeir
sem sóttu tónleikana voru ekki
sviknir af nýju efni frá söngkonunni.
Af átta lögum sem flutt voru eru sex
af nýju plötu hennar, Vespertine.
Hún kemur út 28. ágúst hjá Elektra
plötuútgáfunni. 12 manna kór var
Björk til aðstoðar á tónleikunum,
auk hörpuleikarans Zeena Parkins
og raftónlistarsveitinni Matmos.
Nýju lögin sem hún flutti heita
Undo, Pagan Poetry, Aurora, Palm-
stroke, It’s Not Up to You og Cocoon.
Björk er einmitt nýbúin að taka upp
myndbandið við Cocoon. Því er leik-
stýrt af listamanninum Eiko Ishioka
og segir sagan Björk vera jafn
klæðalitla og fæðingardaginn í því.
Hún litað augabrýrnar á sér ljósar í
tilefni af myndbandinu en þar sem
hún lét litinn hverfa jafnstundis eru
litlar líkur á að aðdáendur hennar
feti í þau fótspor.
Rokkarinn og leikkonan Courtney
Love varð fyrir því að missa
fóstur á dögunum. Love, sem var
stödd í Kanada við
tökur á spennu-
myndinni 24 Hours,
var komin stutt á
leið. Hún hafði unn-
ið stíft og blætt í
nokkra daga þegar
leikstjórinn, Luis
Mandoki, skipaði
henni að fara á spít-
ala. Ekki er vitað fyrir víst hver fað-
irinn var en talið er að það sé plötu-
útgefandinn Jim Barber. Barber
flaug til Kanada þegar hann frétti af
ástandinu og hjúkraði henni. Þau
hafa átt í ástarsambandi í tvö ár.
Barber sagði í réttarhöldum yfir
fyrrverandi konu sinni fyrir
nokkrum mánuðum að því væri lok-
ið. Love kærði fyrrverandi konu
Barber fyrir að ofsækja sig, keyra á
sig, hóta að kveikja í húsinu sínu og
reyna að koma fyrir eiturlyfjum í
fórum hennar. Hvað sem því líður
virðist samband Love og Barber
hafa endurnýjast. Love á eina níu
ára dóttur með fyrrverandi eigin-
manni sínum, Kurt Cobain. í mynd-
inni leika hún og Kevin Bacon
glæpamenn sem ræna dóttur
Charlize Theron.
Brad Pitt harðneitar því að hann
ætli að fara að hanna föt. Fram
kom í slúðri síðustu viku að kvik-
myndastjarnan ætlaði að búa til nýja
fatalínu undir sínu eigin nafni. „Róið
ykkur niður. Ég ætla ekki að feta í
fótspor Puff Daddy,“ sagði Pitt fyrir
helgi en Puff Daddy breytti nýlega
nafni sínu í P. Diddy. „Ég hef engan
áhuga á að búa til B.Pitty fatalínu.
Þar að auki er fatasmekkur minn
ekki upp á marga fiska.“
i ■ ■■?&»■ Æ ‘ M
EKKI ÆTLAO LESENfS
YNGRI EN 16 ÁRA
m
ijTjff