Fréttablaðið - 28.05.2001, Side 19

Fréttablaðið - 28.05.2001, Side 19
MÁNUDAGUR 28. maí 2001 FRÉTTABLAÐIÐ FRÁ OPNUNARTÓNLEIKUM Sönglistin fékk inni í Malebran-leikhúsinu í Feneyjum meðan beðið er eftir að Óperan rísi ur brunarústunum. er opin á opnunartíma safnsins. Þetta mun vera i fyrsta sinn sem sett er upp sýning af þessu tagi hér á landi. Hún tek- ur til námsefnis fyrir skyldunám og hafa verið valin sýnishorn námsbóka í nokkrum greinum frá því um og eftir aldamótin 1900, frá miðri öldinni og loks frá síðustu árum. Sýningin stendur til 31. mai. í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir sýningarnarBlóðug vígaferli og Götulíf víkinganna í York . Um er að ræða tvær sýningar, annars vegar endurgerð á götu í vikingaþorpi þar sem hægt er að sjá fólk við vinnu sína og hins vegar sýningu sem heitir „Skullsplitter" á frummálinu, þar má sjá beinagrind og hauskúpur vik- inga sem féllu í bardögum. Á sýningunni eru raunverulegar líkamsleifar sem geta valdið óhug. Sýningin er opin alla daga frá 13-17, kostar 300 krónur, frítt fyrir börn, unglinga og ellilífeyrisþega. Miðin gildir einnig í hin hús safnsins. Sýning- arnar standa til 1. október. Ljósmyndasýning grunnskólanema stendur yfir í Gerðubergi. í vetur hafa þeir unnið undir handleiðslu hugsjóna- mannsins Marteins Sigurgeirssonar og afraksturinn hangir á veggjum Gerðu- bergs. Sumar myndanna eru Ijóðskreyttar aðrar segja sjálfar allt sem segja þarf. Sýningin stendur til 2. júní. MYNDLIST_____________________________ Sýning á verkum Valgarðs Gunnarsson- ar stendur í forkirkju og suðursal Hall- grímskirkju. Sýningin er á dagskrár Kirkjulistahátíðar. í Þjóðarbókhlöðu stendur yfir sýningin sem ber heitið Þróun námsefnis á 20. öld: Móðurmálið - náttúran - sagan og Jónina Magnúsdóttir, Ninný, sýnir í Galleri List, Skipholti 50d og ber sýning- in yfirskriftina Lífsins braut. Verkin eru HJÓNABAND ER VINNA Benedikt Jóhannsson sálfræðingur segir að fólk komi bæði með meðvitaða og ómeðvitaða hluti inn í hjónabandið. Ómeðvitaði hlutinn sé að stærstum hluta jákvæður en getur líka verið nei- kvæður að hluta. bjátar á. Nútímamaðurinn mætti þjálfa sig í þolinmæði,11 segir Benedikt að lokum Námskeiðið hefst kl. 19.30 ann- að kvöld og stendur til kl. 22.30. Hægt er að skrá sig hjá Fjöl- skylduþjónustu kirkjunnar eða mæta bara í Grafarvogskirkju. ■ myndir af þjóðþekktum rithöfundum og öðru minna þekktu fólki. Sýningin er opin milli kl. 10 og 18 virka daga og milli 10 og 16 laugardaga. Sýningin stendur til 2. júní. í Listasafni ASÍ - Ásmundarsal stendur yfirlitssýning úr Listasafni Hallgríms- kirkju. Sýningin er á dagskrá Kirkjulista- hátíðar. Svipir lands og sagna nefnist sýning á verkum Ásmundar Sveinssonar sem opnuð var um helgina í Listasafni Reykjavíkur Ásmundarsafni. Á sýning- unni eru verk sem spanna allan feril listamannsins og sýna þá þróun sem varð á list hans í gegnum tlðina. Safnið er opið daglega 10-16 og stendur sýn- ingin til 10. febrúar á næsta ári. I Hafnarborg stendur sýning á verkum Messiönu Tómasdóttur. f Sverrissal eru sýndir plexiskúlptúrar í sem unnir eru á japanpappír og plexígler með akríllitum. Sýningin kallast Selló og vísar til hinna gegnsæju og launhelgu tóna sellósins. í Apótekinu eru myndir, búningar, grímur og brúður úr barnaóperunni Skuggaleik- hús Ófelíu sem væntanlega verður frum- sýnt í íslensku Óperunni á komandi hausti. Á mánudögum þarf ekki að greiða aðgangseyri I Hafnarborg. Sýning- in stendur til 3. júní. Ingmar Bergman: Draugagangur á efri árum leiklist Sænski leikstjórinn Ingmar Bergman er ekki alveg á því að setj- ast í helgan stein þótt hann sé orðinn 82 ára og hafi ekki leikstýrt kvik- rnynd í tæpa tvo áratugi. Þess í stað hefur hann haldið sig við leiksviðið og uppfærsla hans á Draugasónöt- unni eftir August Strindberg er þess- ar vikurnar í leikferð um höfuðborg- ir Norðurlanda. Síðar á árinu hefjast svo æfingar á Draugunum eftir nors- ka leikskáldið Henrik Ibsen í leik- stjórn Bergmans. Frumsýningin verður í Konunglega leikhúsinu í Stokkhólmi þann 9. febrúar á næsta ári. Leikritið fjallar um efni sem Bergman hefur löngum verið með á heilanum - hræsnina, sektina, sann- leikann og myrkrið, frelsið og höml- urnar. Meðal leikara eru Pernilla August og Jan Malmsoe, sem bæði léku í síðustu mynd Bergmans, Fanny og Alexander árið 1982. ■ ENN AÐ LEIKSTÝRA Þessi mynd var tekin í desember síðast- liðnum. Operan í Feneyjum: Komin í gamla húsið sönclist Fyrir fimm árum brann hið fræga óperuhús í Feneyjum og þótti það verulegur missir unnendum klassískrar sönglistar. Þar í borg er þó annað sögufrægt leikhús, Malibr- an-leikhúsið, sem hætt var að nota fyrir 15 árum en hefur nú tekið við hlutverki Óperunnar. Mikið gala- kvöld var haldið þar á miðvikudag í síðustu viku þegar húsið komst í gagnið á ný. Þetta er þó aðeins til bráðabirgða, því ákveðið var að end- urreisa Feneyjaóperuna. Malibran- leikhúsið er 322 ára gamalt og var helsta óperuhúsið í Feneyjum þangað til Feneyjaóperan tók við árið 1792. ■ unnin með olíu og akríllitum á striga á þessu ári og því síðasta. Sýningin er opin alla virka daga kl. 11-18 og laugardaga kl. 11-14 frá og stendur til 8. júní. Ropi er yfirskrift myndlistarsýningar sem opnuð hefur verið i Nýlistasafninu. í SÚM sal er Anna Líndal að velta fyrir sér gjaldföllnu gildismati, í Gryfju safnsins sýnirólöf Nordal skúlptúr og gagnvirk myndverk og í Forsal safnsins sýnir Valka (Valborg S. Ingólfsdóttir) leirstyttur og vatnslitamyndir. Hrafnkell Sigurðsson hefur opnar sýn- ingu á verkum sínum í galleríi i8, Klapp- arstíg. Sýnd verða nýjustu verk Hrafnkels af tjöldum í íslensku vetrarumhverfi. Sýn- ingin er opin þriðjudaga til laugardaga kl. 13-17 ogstendurtil 16. júní. í Listasafninu á Akureyri stendur yfir sýning á Ijósmyndum eftir hinn þekkta franska Ijósmyndara Henri Cartier- Bresson, en líklega hefur enginn átt meiri þátt i því að gera Ijósmyndun að viðurkenndri listgrein. Opið 14-18. Sýn- ingin stendur til 3. júní. i gallerí@hlemmur.is stendur yfir sýning Erlu Haraldsdóttur og Bo Melin „Here, there and everywhere". Á sýningunni leika þau Erla og Bo sér að því að breyta Reykjavík í fjölþjóðlega borg með aðstoð stafrænt breyttra Ijósmynda. Opið 14-18. Sýningin stendur til 6. júní. Heimskautalöndin unaðslegu er heiti sýningar sem lýsir með myndrænum hætti lífi, starfi og hugsjónum Vestur- íslendingsins Vilhjálms Stefánssonar. Sýningin er um leið kynning á umhverfi, menningarheimum og málefnum norðurslóða, en hún er í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu og er opin 10-17. Sýningin stendur til 4. júní. Á meðan eitthvað er að gerast hér, er eitthvað annað að gerast þar nefnist sýning á verkum Bandaríkjamannsins John Baldessari sem stendur yfir í Listasafni Reykjavikur - Hafnarhúsi. Hann er eitt af stóru nöfnunum í samtí- malistasögunni og hefur verið nefndur Ijóðskáld hinnar öfugsnúnu fagurfræði og húmoristi hversdagsleikans. Sýningin er opin 11-18 og fimmtudaga til kl. 19. Sýningin stendurtil 17. júní. Norðmaðurinn Gisle Nataas hefur opnað sýningu á Mokka-kaffi við Skólavörðustig. Sýninguna nefnir listamaðurinn Eitt andartak og þrjár samræður og fjallar hún um hreyfingu og rými. Ljós og skug- ga. Sambandið á milli mynda og sam- ræðna og þau áhrif sem hlutirnir hafa á rýmið. Ásdis Kalmanheldur sýningu í Listasalnum Man, Skólavörðustíg, á abstrakt-málverkum sem hún hefur gert á sl. tveimur árum. Þetta er fjórða einkasýning hennar. GARÐABÆR www.gardabaer.is Flataskóli - ágætu kennarar Garðabær auglýsir lausa til umsóknar stöðu grunnskólakennara við Flataskóla. • Bekkjarkennara á miðstig, 100% starf. I Flataskóla eru nemendur 1.-6. bekkjar. í Grunnskólum Garðabæjar er lögð mikil áhersla á notkun fartölva í starfi kennara. Arlega er varið miklu fjármagni til endurmenntunar og umbóta á faglega sterku skólastarfi. Góð stundaskrá og starfsaðstaða. Mikil samvinna kennara Upplýsingar um störfið veita Sigrún Gísladóttir, skólastjóri, í síma 565-8560,565-8484, netfang: sigrun@gardabaer.is og Helga María Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í vs.5658560, netfang: helgam(8)gardabaer.is. Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri störf sendist Flataskóla v/ Vífilsstaðaveg. Einnig eru upplýsingar um störfin á vefsvæði Garðabæjar www.gardabaer.is. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Islands. í samræmi við jafnréttisáætlun Garðabæjar eru karlmenn sérstaklega hvattir til að sækja um stöður grunnskólakennara. Grunnskólafulltrúi Fræðslu- og mertningarsvið GARÐABÆR www.gardabaer.is Garðaskóli - skóli í blóma Garðabær auglýsir laus til umsóknar eftirtalin störf við Garðaskóla skólaárið 2001 - 2002. Grunnskólakennarar • Enskukennsla 100% starf • Náttúruvísindi 100% starf • Heimilisfræðikennsla 100% starf • Sérkennsla 100% starf • Auk þess vantar kennara til starfa í nokkrum öðrum námsgreinum. Skólaliðar • Þrjú 75% störf. í Garðaskóla em nemendur 7.-10. bekkjar. í Grunnskólum Garðabæjar er lögð mikil áhersla á notkun fartölva í starfi kennara. Arlega er varið rniklu fjármagni til endurmenntunar og umbóta á faglega sterku skólastarfi. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf við forráðamenn nemenda. Góð starfsaðstaða. Upplýsingar veita Gunnlaugur Sigurðsson skólastjóri, í símum 565-8666 og 565-7694, netfang: gunnlaugur@gardabaer.is og Þröstur Guðmundsson, aðstoðarskólastjóri, í símum 565-8666,896-4056, netfang: throstur@gardabaer.is. Sjá einnig vef Garðaskóla http://www.gardaskoli.is Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri störf sendist Garðaskóla v/ Vífilsstaðaveg. Einnig em upplýsingar um störfin á vefsvæði Garðabæjar http://www.gardabaer.is. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. I samræmi við jafnréttisáætlun Garðabæjar era karlmenn sérstaklega hvattir til að sækja um stöður gmnnskólakennara og skólaliða. Grunnskólafulltrúi 1 Fræðslu- og menningarsvið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.