Fréttablaðið - 28.05.2001, Qupperneq 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
28. maí 2001 MÁNUDAGUR
HRAÐSODID
HANNES H. CISSURARSON
prófessor
Krónan lifir
Hvenær teldir þú að best væri að
leggja Seðlabankann niður?
„Ég hef að vísu alltaf verið þeirrar
skoðunar að íslendingar ættu að
vera með eigin gjaldmiðil þannig að
á íslensku peningaseðlamna yrðu
prentaðar myndir af Jóni Sigurðs-
syni og slíkum heiðursmönnum en
ekki einhverjum útlendingum.
Þannig að ég held að hér verði alltaf
einhver stofnun sem sjái um seðlaút-
gáfu. Þetta á jafnvel við í löndum
sem styðjast við aðra mynt, eins og
Lúxemborg, en þar er sjálfstæð
stofnun sem sér um prentum á Lúx-
emborgarseðlum."
Hversu langan líftíma telur þú að
krónan eigi fyrir höndum?
„Um hana má ef til vill segja eins
Mark Twain sagði: Andlátsfregn mín
er mjög orðum aukin. Síðustu tíu
árin hefur krónan staðið mjög vel en
næstu sjötíu árin á undan alveg
hræðilega. Þess ber að geta að ís-
lensk króna var í sambandi við dans-
ka krónu til 1922. Það eru margir
sem gera sér ekki grein fyrir því að
frá því íslenska krónan hóf göngu
sína og til 1922 voru íslendingar í
óformlegu myntbandalagi við Dani
svo skiptahlutfallið var einfaldlega
einn á móti einum. Til að svara
spurningunni þá held ég að þetta
fari eftir því hvernig gjaldmiðlar
reynast í framtíðinni. Það er ekkert
útilokað í þessu efni en ég er því
miður ekki viss um að evran verði
sterkur gjaldmiðill. Það kann að
vera að evran verði líkari ítölsku
lírunni en þýska markinu."
Hvað sérðu þú sem helsta hlutverk
Seðlabankans til framtíðar?
„Að gefa út peningaseðla"
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er 48 ára pró-
fessor við Háskóla íslands. Hannes hefur nú
tekið sæti í bankaráði Seðlabankans. Hann hef-
ur áður sagt bankann óþarfan og íslensku krón-
una ónothæfa.
Auglýsingasamkeppni í San Fransisco:
DV og Vísir.is hlutu
þrenn verðlaun
AucLÝsiNGflR DV og Visir.is hlutu
þrenn verðlaun í auglýsingasam-
keppni í San Fransisco á vegum Al-
þjóðasamtaka markaðsfólks á dag-
blöðum og tímaritsins Editor & Publ-
isher. Auður Björk Guðmundsdóttir,
markaðsstjóri DV, veitti verðlaunun-
um viðtöku á heimsþingi
International Newspaper Marketing
Association í Kaliforníu þar sem full-
trúar 32 landa voru saman komnir.
Valið hafði verið úr 1.300 auglýsing-
um.
Auglýsingaherferðin „Þú færð
það óþvegið á föstudaginn" frá mars
2000 þar sem athygli var vakin á Fók-
us sem beinskeyttu og skemmtilegu
blaði hlaut bæði 1. verðlaun í flokki
dagblaðaauglýsinga og 1. verðlaun í
flokki útsends auglýsingaefnis.
Auglýsingaherferð Visir.is hlaut
einnig 1. verðlaun í flokknum „On
line services" fyrir DV. Hér var um
að ræða sjónvarps- og dagblaðaaug-
lýsingar fyrir Fréttavefinn, íþrótta-
vefinn, Krakkavefinn og Fókusvef-
inn. Efni úr DV er notað á öllum þess-
um vefjum. Þær auglýsingar sem
MARKAÐSVERÐLAUN
Auður Guðmundsdóttir.markaðsstjóri DV, ásamt Frits Lahnstein, forseta alþjóðasamtaka
markaðsfólks á dgblöðum, til hægri, og Dennis O'Neil, ritstjóra tímaritsins Editor &
Publisher
voru verðlaunaðar á hátíðinni verða
birtar í bókinni „Best in Print“ og
„Best in Print TV“ sem dreift er víða
um heim.
Auður Björk segir að verðlaunin
séu mikil viðurkenning enda hafi
ekkert dagblað tekið við eins mörg-
um verðlaunum á hátíðinni. ■
Ólafsson skyldi
kasta sprengju inn
á markaðinn með
yfirlýsingu um að
hlutur Norðurljósa
í Tali sé nú falur
vegna þess að
grynnka þurfi á
skuldum fjölmiðl-
arisans. Talið er að norrænu símafé-
lögin renni hýru auga til Tals og
Þórólfs Árnasonar. Telji það jafnvel
betri kost að eignast ráðandi hlut,
40% í Tali, heldur en í mesta lagi 8%
hlut i Landssímanum, sem gefur lítil
áhrif. Einnig er talið mögulegt að
Western Wireless, sem er meirhluta-
eigandi að Tali, muni vilja leysa til
sín hlut Norðurljósa. í öllu falli sé
fyrirtækinu ekki sama hver hreppir
hnossið.
Hörður Þórleifsson tannlæknir á
Akureyri kallar bróður sinn
Björn öryrkja, vegna þess hve ört og
títt hann mælir vísur af munni fram.
Jöerg Heider ræðst á þýska kanslarann:
Schröder eins og lénsherra
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sjálfur er hann ágætur hagyrðingur
en segist ekki yrkja nema eina vísu
á ári. Þegar Kári Stefánsson fagnaði
því framtaki forseta íslands að fast-
na sé konu með nafni sem rímar á
móti forrit, varð þessi limra til hjá
Herði sem á til skyldleika að telja
við forsetann:
Þó lýðurinn lesi mörg slorrit
og laumist í allskonar forrit
er allt önnur spóla
í gangi hjá Óla
hann fann sína forlátu Dorrit.
ausgturríki Jörg Haider, leiðtogi
hægri öfgamanna i Austurríki réð-
ist á Gerhard Schröder, kanslara
Þýskalands í gær, og sakaði hann
um að vera eins og „lénsherra frá
19.öld“ í helgarheimsókn sinni til
Vínar. Schröder var í opinberri
heimsókn til Austurríkis um helg-
ina og gætti þess vandlega að hitta
engan fulltrúa Frelsisflokksins
meðan á heimsókninni stóð. Kansl-
arinn kvað það ekki hafa verið mis-
tök hjá Evrópusambandinu að beita
samskiptaviðurlögum gegn Austur-
ríki þegar Frelsisflokkurinn var
tekinn í ríkisstjórn þar á síðasta ári.
Þýski kanslarinn hefur „enn einu
sinni viðrað ranglátar tilfinningar
sína gagnvart Austurríki", sagði
Haider í yfirlýsingu sem Karl-
Heinz Petritz, talsmaður hans
dreifði til fréttastofa í gær.
„Schröeder hagar sér eins og léns-
herra frá 19.öld með digran vindil
og stórlætisstfl". Frelsisflokkurinn
hefur verið gagnrýndur bæði í
Austurríki og meðal annarra þjóða
fyrir andúð í garð útlendinga og
andgyðinglega stefnu. Haider hefur
meira að segja hrósað vissum þátt-
um í Þýskalandi á tímum Hitlers.
Hann sagði af sér sem formaður
Frelsisflokksins eftir að flokkurinn
tók þátt í myndun ríkisstjórnar með
Þjóðarflokknum. Refsiaðgerðum
ÞÝOA f SAMSKIPTUM
Gerhard Schröder og Wolfgang Schussel reyna að koma á innilegra sambandi milli
Austurrikis og Þýskalands, en samskipti landanna hafa verið kuldaleg að undanförnu.
Evrópusambandsins var hætt í
september sl. haust eftir úttekt al-
þjóðlegs hóps sérfræðinga sem
fundu ekki neitt athugavert við
stjórnmálaástandið eða stöðu
mannréttindamála í Austurríki.
Kanslarar Þýskalands og Aust-
urríkis, Schröder og Wolfgang
Schussel, lögðu sig fram um að gefa
til kynna að framundan væri þýða í
samskiptum landanna sem hafa
verið kuldaleg að undanförnu.
Haider kvartaði hins vegar yfir því
að Schussel „skyldi ekki hafa dug
til þess að mótmæla orðum
Schröders eða að minnsta kosti
standa á sínu gagnvart þýska kansl-
aranum." ■
Smábátapresturinn Karl Valgarður
Matthíasson hefur uppi stór orð í
viðtali við Helgarblað DV. í því sam-
bandi velta menn
því fyrir sér hve
langt séu um liðið
síðan lúterskur
prestur hvatti til
lögbrota á íslandi.
Prestar hafa löng-
um þótt litlir upp-
reisnarmenn enda
þótt leiðtogi lífs
þeirra hafi verið uppreisnargjarn á
sínum tíma. Karl Valgarður fer fínt í
sakirnar en það skilst þó að lögin eru
að engu hafandi. Aðspurður hvort
stríði trillukarla fyrir frjálsum veið-
um sé endanlega lokið með algerum
ósigri, segir hann: „Nei, stríðið er
ekki tapað. Ef menn myndu spyrja
mig að því hvort þeir eigi að róa þá
gæti ég ekki sagt nei. Ég vil ekki
hvetja til lögbrota en í hjarta mínu
veit ég að ég myndi sjálfur róa.
Stjórnvöld geta sjálfum sér um
kennt ef uppreisn verður á miðun-
um. Það sem ríkisstjórnin er að gera
er að hún er að lýsa yfir fiskveiði-
styrjöld hér innanlands."
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra hefur frestað sölu Lands-
símans þar til í september með þeim
rökum að ekki hafi
gefist nægur tími
til undirbúnings út-
boði. Nú er sala til
stofnana- og fag-
fjárfesta og al-
mennings á bréfum
í Íslandssíma að
hefjast og verður
fróðlegt að sjá
hvernig markaðurinn metur framtíð-
arhorfur þess fyrirtækis. Fyrr-
nefndu aðilunum stendur til boða allt
að 40 milljónir króna að nafnverði og
almenningi 20 milljónir króna á
genginu 8,75. Skráningar íslands-
síma h.f. á Verðbréfaþing íslands er
svo vænst fyrri hluta júní 2001. Það
ruglar svo símasölumyndina að Jón
ELMEG 1 S D l\l ;s :í m s t ö ð iy a r
' hertta bæöi heimiluni og fyrirtaekjum ■ * Í1 1 B r . .1: Imwmmþ.Í'1 W iRiiiiiiiiii ' ® : ■ 1
111 "• .... ... . .. . „ „ .. „ 1
ELWIEG ISDN aímkarffii ianu [þýak ibágaBÖa.vana ptg ihanta v.fil .öllum minni ima'öfilatánum | Ifiinintæmum.. Sal.a, uppsBbning iag þjónusta fiir unnin af fagrnönnum.
Leitiö nánari upplýsinga í verslun pkkar á Hamarahöföa 11.. iBfitríi Isusniir 1
ITh RAFLAGNIR ÍSLANDS 1 IlIÍ VERSLUN - HEILDSALA Hamarshöföa 1 - 110 Beykjavík - Sfmi $911 91,22 - Fax 619 9923 Verkstæöi og vörúlager: 611 1124 - Netfang: ris@simijpt.is - Veffang: www.simnet.is CQ> NÝHERJi http://www.nyh8rji.is
ÞRUÐA
„Þú saknaðir
mín, ekki
satt, Þrúða?"