Fréttablaðið - 26.07.2001, Síða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
26. júlí 2001 FIMMTUPAGUR
SVONA ERUM VIÐ
LAUNAMUNUR KYNJANNA -
VIÐSKIPTAFRÆÐINCAR
Athuguð voru meðalmánaðarlaun við-
skíptafræðinga á þremur tímapunktum.
Svipuð hækkun hefur verið milli kynjanna
og ójöfnuðurinn haldist á fjögurra ára
tímabili.
HORFA Á LÁTINN SKÆRULIÐA
Hermenn frá Sri Lanka rannsaka llk eins
þeirra níu skæruliða sem létust I árásinni,
en þrír þeirra sprengdu sig I loft upp. [
baksýn má sjá eina af flugvélunum sem
eyðilögðust árásinni.
Arásin á
sin á alþjóðaflugvöll-
inn í Sn Lanka:
Þrír Tamíla
skæruliðar
handteknir
COLOMBO. sri LANKA. ap. Þrír Tamíla
skæruliðar hafa verið handteknir
af lögreglunni í Sri Lanka, grun-
aðir um aðild að árás skæruliða á
alþjóðaflugvöll landsins og nær-
liggjandi herstöð í gær þar sem 20
manns létust, þar af 13 hermenn
og 9 skæruliðar. Var flugvöllurinn
opnaður að nýju í gær eftir árás-
ina, en alls eyðilögðust 11 flutn-
inga-og farþegaflugvélar í árásin-
ni. Auk þess skutu hermenn á
mann nærri flugvellinum rétt
áður en fyrsta flugvélin lenti þar í
gær, en hún hafði þurft að bíða í
Indlandi vegna árásarinnar. Mað-
urinn slapp naumlega undan. ■
. —*—
Vísindamenn leysa ráð-
gátu:
Ismaðurinn
var skotinn
meðör
bolzano. ÍTALÍu. ap. Vísindamenn
segjast nú hafa leyst ráðgátuna
um hvað olli dauða ísmanns sem
uppi var á bronsöldinni fyrir 5300
árum, en hann fannst í ítölsku
Ölpunum fyrir u.þ.b. áratugi síð-
an; hann var skotinn með ör. Að
sögn Paul Gostner, sérfræðings í
geislafræði, sem rannsakað hefur
manninn ásamt hópi annarra vís-
indamanna, segir að örvaroddur
hafi fundist undir vinstri öxl hans.
Hinn vel varðveitti líkami ís-
mannsins er geymdur í kæliklefa
í Suður-Týrol fornleifasafninu í
Bolzano á norðurhluta Ítalíu. ■
INNLENT
Stúlka undir tvítugu slasaðist illa
þegar fólksbíll hennar ók út af
Skeiðavegi norðan við Suðurlands-
veg og hafnaði á kletti rétt upp úr
klukkan 7 í morgun. Lögreglan á
Selfossi segir að stúlka hafi verið
töluvert meidd - kennt til í höfði,
viðbein, mjaðmagrind og hné - og
hafi verið klippt út úr bílnum af
Brunavörnum Árnessýslu til þess
að ekki þyrfti að hreyfa hana mikið
til. Læknir fylgdi stúlkunni með
sjúkrabíl á Landspítalann Fossvogi.
Að sögn vakthafandi læknis er
stúlkan ekki í lífshættu. ■
Valur Valsson, bankastjóri Islandsbanka:
Höldum aö okkur höndum
hlutabréfaviðskipti „Á meðan
málefni Íslandssíma eru í skoðun
hjá Verðbréfaþinginu þá höldum
við að okkur höndum hvað varðar
innheimtu á því sem enn er
útistandandi," segir Valur Vals-
son, bankastjóri íslandsbanka, og
tekur fram að þegar hafi stærstur
hluti sölunnar í útboðinu á nýjum
hlutabréfum Íslandssíma fengist
greiddur.
„Við bíðum átekta eftir niður-
stöðu í málinu,“ segir Valur og
dregur ekki úr því að málið sé
heldur alvarlegra en útlit var fyr-
ir í fyrstu.
Verðbréfaþingið biður nú um
upplýsingar varðandi vinnubrögð
við skráningarlýsingu, eftir að
hafa fjallað um greinargerð ís-
landssíma þar sem ákveðin atriði
í afkomuviðvörun voru útskýrð.
Valur segist ekki vilja tjá sig um
hvort bankinn gæti beðið skaða af
sölutryggingu sem veitt var fé-
laginu í útboðinu. Hann tjáir sig
heldur ekki um það hvort hluthaf-
ar muni fá andvirði bréfa sinna
tilbaka verði niðurstaðan sú að
VÞÍ telji skráningarlýsingu
ábótavant. Nauðsynlegt sé að bíða
eftir viðbrögðum VÞÍ. ■
VALUR VALSSON
Verðbréfaþingið hefur beðið um ákveðnar
upplýsingar frá Íslandssíma. Við bíðum
átekta eftir endanlegri niðurstöðu þingsins,
segir bankastjóri íslandsbanka.
Kyoto-bókunin:
Gagnryna
Bush
washington. ap. Öldungadeildarþing-
menn úr hópi demókrata gagnrýndu
ríkisstjórn Georgs W. Bush, Banda-
ríkjaforseta, harðlega fyrir að hafa
hunsað Kyoto-bókunina í stað þess að
hafa unnið að því í samstarfið við aðr-
ar þjóðir að gera að hana ódýrari í
framkvæmd. Demókratar í orku- og
auðlindanefnd deildarinnar sögðu af-
stöðuna vera „hrokafulla" og sögðu
Bandaríkin ekki hafa efni á að standa
hjá í málinu. Aðstoðarorkumálaráð-
herra, Francis Blake, sagði í samtali
við nefndina að grípa yrði til aðgerða
til að stemma stigu við gróðurhúsaá-
hrifum en sagði að Kyoto-bókunin sé
of dýr í framkvæmd. ■
Möguleikar opnast
fyrir nýrnasjúklinga
Stofnfrumur úr beinmerg notaðar til að endurnýja nýru.
VfSINDARANNSÓKNIR
Breskir vísindamenn hafa komist að því að nota má stofnfrumur úr beinmerg sjúklings til að endurnýja skemmd nýru hans.
heilbricðismál Ný aðferð til að
lækna sjúklinga með nýrnasjúk-
dóm virðist innan seilingar. Að
sögn BBC hafa breskir vísinda-
menn komist að því að mögulegt
er að taka stofnfrumur úr bein-
merg sjúklingsins sjálfs, láta
þær taka að sér hlutverk nýrna-
frumna og endurnýja hinn skem-
mda vef. Rannsóknin beindist að
mjög ungum stofnfrumum en þar
sem þær hafa ekki enn sérhæft
sig, eru þær alhæfar og geta þess
vegna tekið að sér hin ýmsu hlut-
verk í líkamanum. Áður hafði
komið í ljós að þessar frumur
gátu orðið að lifrarfrumum líka.
Prófessor Nick Wright yfirmað-
ur Imperial Cancer Research
Fund segir þetta mikilvæga upp-
götvun „vegna þess að nýrnavef-
urinn endurnýjar sig ekki sjálfur.
Ennfremur losnum við með
þessu við þau vandamál sem
skapast þegar líkami sjúklings
hafnar ígræddu líffæri frá öðr-
um, því þarna koma frumurnar
frá honum sjálfum. Auk þess sýn-
ir þetta okkur að við höfum upp-
götvað aðrar leiðir við meðhöndl-
un nýrna sem eru skemmd vegna
krabbameins eða annarra sjúk-
dóma“
Sá möguleiki að nota fullorðn-
ar stofnfrumur getur stuðlað að
miklum framförum í læknavís-
indum yfirhöfuð. Vonir eru
bundnar við að frumur þessar
geti einhvern tímann sinnt end-
urnýjunarhlutverki gagnvart
hvaða líkamshluta sem er. Með
þessum möguleika er líka sneitt
hjá þeim siðferðisspurningum
sem vaknað hafa varðandi rann-
sóknir á stofnfrumum fósturvísa.
Uppgötvunin er ekki einungis
mikilvæg með tilliti til sjúkdóma
eins og krabbameins, hún gæti
einnig orðið til þess að ryðja
brautina fyrir genameðferð á
annars konar nýrnasjúkdómum.
Breska nýrnarannsóknarstofnun-
in sendi þó frá sér yfirlýsingu
þess efnis að þrátt fyrir þessa
uppgötvun sé enn langt í land
með að forðast nýrnabilanir þar
sem uppbygging þessa líkams-
hluta sé flókin, til dæmis mun
flóknari en lifrarinnar.
bryndis@frettabladid.is
Lögreglan á Húsavík í átaki:
Filmulausa bíla, takk
lögreglufréttir Um þessar
mundir eru lögreglumenn á
Húsavík að einbeita sér að bún-
aði bíla ásamt því sem fylgst er
með því að öðrum lögum sé
framfylgt. Aðalsteinn Júlíusson,
varðstjóri lögreglunnar þar í bæ,
segir að á næstu vikum ætli lag-
anna verðir að fylgjast sérstak-
lega vel með því að ekki sé verið
að keyra um með litaðar filmur í
rúðum bíla eða með kveikt á ljós-
kösturum sem ekki þarf að nota.
Þeir sem verða staðnir að verki
fá áminningu bréfleiðis um að
fjarlægja beri filmurnar og
verði því ekki sinnt skellir lögg-
an á bíla þeirra boðunarmiða.
Þegar boðunarmiðinn er kominn
á ökutækið neyðast menn til þess
að færa bifreiðina til skoðunar á
næstu sjö dögum, „og það er ólík-
legt að menn fái skoðun á bílinn
séu þeir ekki búnir að fjarlægja
filmurnar,“ sagði varðstjórinn.
Annars er ekkert nema gott að
frétta frá Húsavík og segja lag-
anna verðir að sjúkrabíllinn sé
nú farinn að safna ryki, svo langt
er síðan að hann var notaðar. Um
það er ekkert nema gott að
segja! ■
EKKERT MÚÐUR
Lögreglan á Húsavík vill ekki að ökumenn
í sinni sveit séu að aka um með filmur í
bílrúðunum og skiptir þá engu hvort um
sé að ræða vetur, sumar, vor eða haust...
lögunum skal framfylgt- Þeir sem ekki
hlýða fá boðunarmiða á bíl sinn og þeim
gert að mæta í þifreiðaskoðun.