Fréttablaðið - 26.07.2001, Page 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
26. júlí 2001 FIMMTUDACUR
Indónesía:
Wahid er á leið
úr landinu
FEÐGIN í FORSETASTÓL
Indóneslsk börn með veggspjöld af Wlegawati og Sukarno, föður hennar sem einnig var
forseti.
OPEC ríkin:
Draga úr
framleiðslu
olíuverð Á fundi olíuframleiðslu-
ríkja, OPEC, í gær var ákveðið að
draga úr olíuframleiðslu um 1
milljón tunna á dag. Þetta eru við-
brögð ríkjanna við lækkandi olíu-
verði sem stafar af minni eftir-
spurn í hagkerfinu. Stærri olíu-
neytendur halda því svo fram að
hátt olíuverð sé mikilvæg ástæða
fyrir niðursveiflu í efnahagslíf-
inu.
í fréttum Búnaðarbankans í gær
segir að olíuverð undanfarnar
vikur hafi verið 23,50 dollarar, en
markmið OPEC ríkja er að halda
olíuverði á bilinu 22 til 28 dollara
á tunnuna. ■
djakarta. ap. Abdurrahman Wahid,
fyrrverandi forseti Indónesíu, til-
kynnti í gær að hann hyggðist yfir-
gefa forsetahöllina í dag, fimmtu-
dag. Wahid, sem rekinn var úr
embætti á mánudag, hefur
þverskallast við aö yfirgefa höllina
og sagði í gær að hann gerði það
eingöngu að læknisráði en hann er
á leið til Bandaríkjanna í læknis-
skoðun.
Wahid spáði því í sjónvarpsvið-
tali í gær að það stefndi í einræðis-
stjórn undir stjórn arftaka hans,
Megawati Sukarnoputi. Indónes-
íska þingið frestaði atkvæða-
greiðslu um arftaka Megawati í
embætti varaforseta eftir að tvær
umferðir höfðu átt sér stað. Valið
stendur á milli Akbar Tandjung,
leiðtoga Golkar flokksins, flokks
einræðisherrans Suharto og
Hamzah Haz, íhaldssams múslima.
Stuðningsmenn Megawati segja
henni sama um hver verður fyrir
valinu. Wahid sagði í gær að hann
hefði verið að reyna að bjarga lýð-
ræðinu í landinu með því að neita
að viðurkenna brottreksturinn.
Eigi að síður er talið læknisferðin
sé afsökun Wahid fyrir því að yfir-
gefa landið með nokkurri reisn. ■
TVÍSKINNUNGUR STJÓRNVALDA
„Mér hefur fundist gæta tvískinnungs ríkis-
stjórnar íslands þar sem Siv Friðleifsdóttir
kemur fram og fagnar þessum áfanga."
Vinstri grænir:
Adal sódarn-
ir út undan
umhverfismál Formaður Vinstri
grænna, Steingrímur J. Sigfús-
son, er ánægður með Kyoto-bók-
unina og segir að hann sé ánægð-
ur með það að ríkisstjórnin sé ein-
nig ánægð. Hann segist fagna því
að samkomulagið náðist þrátt fyr-
ir það að „það sé veikleiki að
Bandaríkjamenn - aðal sóðarnir -
skuli vera út undan.“
„Upp að vissu marki megi fall-
ast á það að ísland sé í sérstakri
stöðu - lítið hagkerfi með talsvert
mikla orku í hallvatni og jarðvatni
sem ekki er eins óhagstætt í þessu
sambandi og jarðefnaeldsneyti. Á
hinn bóginn erum við ein ríkasta
og iðnvæddasta þjóð heimsins og
við getum ekki ætlast til þess að
það séu bara allir aðrir en við sem
leggjum eitthvað af mörkurn,"
sagði Steingrímur. ■
—*—
Þjónustan:
Er aðná
útveginum
efnahagsmál Verulega hefur dreg-
ið saman með þjónustugreinum
og sjávarútvegi þegar litið er til
útflutningstekna þjóðarinnar.
Árið 1991 var hlutdeild sjávarút-
vegs í útflutningi íslendinga 58%
en á síðasta ári var hlutfallið kom-
ið niður í 41%. Á sama tíma hefur
hlutfall þjónustugreina vaxið úr
26% í 36% og hlutfall ál og kísil-
járns vaxið úr 9,6% í 13,3%.
Ef horft er til vaxtar greinanna
án þess að horft sé í hlutfallið
hafa útflutningstekjur af þjón-
ustu vaxið um 155% á tíu ára
tímabili og þungaiðnaðar um
114%. Sjávarútvegurinn hefur á
sama tímabili vaxið um 35%. ■
BLÁTINDUR VE
Framganga Árna Johnsen I fjárlaganefnd skipti sköpum svo hægt yrði að endurgera bátinn.
Fjárlaganefnd lét
Ama fá 6 milljónir
Ekki vcrið hægt að endurbyggja Blátind VE ef Arna hefði ekki notið við, segir talsmaður
félagsins sem endurgerði bátinn. Kostaði alls um 20 milljónir króna.
fjárlaganefnd „Þetta hefði
aldrei verið hægt nema vegna
Árna Johnsen. Hann útvegaði
sex milljónir króna styrk hjá Al-
þingi. Alls kostaði þetta hátt í 20
milljónir króna. Ég er mjög glað-
ur að hafa tekið þátt í þessu,“
sagði Sigtryggur Helgason, en
hann er einn þeirra sem stóðu að
endurgerð Blátinds VE.
Fjárlaganefnd Alþingis sam-
þykkti að veita sex milljónum
króna til Blátindsfélagsins. Árni
Johnsen, alþingismaður og full-
trúi í fjárlaganefnd, er einn þeir-
ra sem standa að félaginu um
endurgerð Blátinds.
„Árni er félagi og það mjög
góður félagi. Við stofnuðum fé-
lagið í september og gáfum þá út
tvær yfirlýsingar. Árni sagði að
það yrði skötuveisla í desember,
þegar smíði hæfist, og ég að bát-
urinn yrði afhentur á sjómanna-
daginn 9. júní og hvortveggja
stóðst og báturinn er til prýði,“
sagði Sigtryggur.
Hann segir að Blátindur sé
eini báturinn sem eftir er af þeim
sem smíðaðir voru í Vestmanna-
eyjum á fyrri hluta síðustu aldar.
Endurgerðin var mikið verk.
Jón Kristjánsson, þáverandi
formaður fjárlaganefndar, sagði
á Alþingi vegna Blátinds: „Gerð
er tillaga um 6 milljóna króna
tímabundna fjárveitingu til end-
urbyggingar vélbátsins Blá-
tinds.“
Árni Johnsen tjáði sig einnig
um þetta hugðarefni sitt og
sinna félaga. Hann sagði á Al-
SIGTRYGGUR HELGA-
SON
Hann sá um fjármál verk-
efnisins sem hann segir
að hafi kostað hátt I 20
milljönir króna.
þ i n g i :
„Hann er
ekki svo
ýkja gamall
en hann er
einn af 76
þilfarsvél-
bátum sem
b y g g ð i r
voru í Vest-
mannaeyj-
um á öld-
inni sem er
að líða. Þar
voru byggð-
ir 76 þil-
farsbátar
og 28 opnir bátar.“ Og síðar sagði
Árni: „Það er kynnt í verkefninu
að því eigi að ljúka fyrir næsta
sjómannadag og þá eigi báturinn
að verða hluti af Skansinum og
stafkirkjusvæðinu við Vest-
mannaeyjahöfn sem margir
þekkja. Það hefur í rauninni ver-
ið reiknað með þeim bát þar frá
því það svæði var skipulagt til
þess hlutverks sem það hefur nú.
Þess má geta til gamans að Blá-
tindur var notaður sem varðskip
á Faxaflóa um 1950 og var þá bú-
inn fallbyssu. En yfirleitt hefur
hann verið notaður til þess að
draga fisk úr sjó, björg í bú.
Gunnar Marel Jónsson smíðaði
Blátind, afi Gunnars Marels skip-
stjóra á íslendingi og skipasmiðs
þannig að sagan er söm við sig og
margt af þessu má tengja og er
skemmtilegt í okkar litla samfé-
lagi.“
sme@frettabladid.is
H HRINGJA ODYRT HEm
.bla bla bla
BTGSM ERU
LANG-
ÓDÝRASTIR í
SÍMTÖLUM í FASTLÍNUR,
Þ.E. VINNUSÍMA EÐA
HEIMASÍMA.
BilllWMIIIIII4Æ:WKglBWWMWM*BWMM
HEIMASÍMI
KVÖLDTAXTI
SfMINMOSM 13
f i M | M wFRELSI 15
GSM 15,9
FRELSI 15,9
btgsw;) 11,9'