Fréttablaðið - 26.07.2001, Side 18
HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
Oddur Dúason
starfsmaður Vífilfells
Ég mæli með þvi að fólk stundi heilbrigt líf-
erni og stundi likamsrækt eða aðra hreyf-
ingu. Einnig mæli ég með því að fólk njóti al-
mennt lífsins. ■
METSÖLUHSTI
FERÐAHANDBÆKUR
Á AMAZON.COM
Peter Greenberg
THE TRAVEL DETECTIVE
Peter Mayle
FRENCH LESSONS
ÉJ Bruce S. Feiler
WALKINC THE BIBLE
Q Jon Krakauer
INTO THIN AIR
(JJ Rick Steves
RICK STEVES' ITALY 2001
Cl Bill Bryson
IN A SUNBURNED COUNTRY
ffk Bill Bryson
A WALK IN THE WOODS
fl Jon Krakauer
INTO THE WILD
01 Bob Sehlinger
CUIDE TO WALT DISNEY...
ffi) Jill Safro
IHE UNOFFICIAL CUIDE TO WALT_
Ferðahandbækur:
Hvar er best að
sitja í flugvél?
bækur Ferðahandbækur njóta mik-
illa vinsælda og er komið víða við á
vinsældalista Amazon.com. Athygli
vekur að í tveimur neðstu sætunum
eru bækur um hvernig best sé að
ferðast um Disneyland í Bandaríkj-
unum.
Bókin í fyrsta sæti hefur lengi
flakkað á milli sæta á listanum yfir
10. mest seldu bækurnar á Amazon.
Þetta er bók Peter Greenberg, The
Travel Detective. Greenberg leiðir
lesendur í allan sannleikann um
hvar lægstu fargjöldin eru að finna,
hvar í flugvélum best er að sitja,
hvernig semja á um bestu kjörin
þegar bóka á hótelherbergi og
margt fleira. Greenberg þessi þyk-
ir gamansamur maður og víðförull
en hann hefur komið til 120 landa af
187. Segir sagan að Greenberg hafi
að gamni sínu athugað hvort hann
kæmist með tvöfaldan postulíns
vask sem handfarangur í flugvél,
og mun það hafa tekist. ■
—♦—
Klassísk tónlist:
Óútgefíð lag eft-
ir Puccini kemst
í leitirnar
denton. texas. ap. Bandaríkjamaður-
inn Charles Yates, sem er prófessor
í tónlistarfræðum við háskólann í
San Diego, rakst fyrir skömmu á
óútgefinn mars eftir ítalska tón-
skáldið Giacomo Puccini er hann
var að gramsa í bókum pg skjölum
um Puccini í fríi sínu á Ítalíu. Hef-
ur þessi merki fundur að vonum
vakið mikla athygli í tónlistarheim-
inum. „Þetta er yndislegt, frábær
lítil uppgötvun," sagði Eguene Cor-
poron, tónlistarprófessor við há-
skólann í Denton, Texas, sem átti í
gær að stjórna flutningi á marsin-
um á tónlistarráðstefnu í San Ant-
onio. Marsinn, sem kallast „Scossa
Electra,“ eða „rafmagnsáfall," og
er tveggja mínútna langur, var
saminn árið 1896 til heiðurs Al-
essandro Volta, sem fann upp raf-
hlöðuna. ■
18
FRÉTTABLAÐIÐ
26. júlí 2001 FIMMTUPAGUR
Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju:
Lög og Ijóð góðskáldcinna
tónleikar Óperusöngkonan Anna
Sigga, eða Anna Sigríður Helga-
dóttir eins og hún heitir fullu
nafni, kemur fram á hádegistón-
leikum í Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 26. júlí ásamt org-
anistanum Hilmari Erni Agnars-
syni. Tónleikarnir, sem eru hluti
af tónleikaröðinni Sumarkvöldi
við orgelið, hefjast klukkan 12 og
standa í u.þ.b. hálfa klukkustund.
Á efnisskránni eru lög eftir
Gunnar Reyni Sveinsson og
Tryggva M. Baldvinsson við ljóð
eftir nokkur af góðskáldum þjóð-
arinnar, m.a. Stephan G. Steph-
ansson, Hallgrím Pétursson og
Bólu-Hjálmar. Hilmar Örn mun
einnig leika orgeltónlist eftir Jó-
hann Ó. Haraldsson og Þorkel
Sigurbjörnsson.
Anna Sigríður Helgadóttir er
fædd í Reykjavík árið 1963. Hún
stundaði söngnám við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar og
Söngskólann í Reykjavík, þar
sem hún lauk námi við fram-
haldsdeild árið 1989. Næstu þrjú
árin sótti hún einkatíma hjá pró-
fessor Rinu Malatrasi á Ítalíu.
Hún hefur sungið með fjölda
kóra og tekið þátt í margskonar
tónlistarflutningi, s.s. einsöngs-
og djasstónleikum, óperu- og
óperettuuppfærslum, kirkju- og
gospeltónleikum o.fl. á íslandi, í
Danmörku, Svíþjóð og á Ítalíu.
Hilmar Örn Agnarsson er
fæddur í Reykjavík árið 1960.
Hann stundaði nám við Tónskóla
Þjóðkirkjunnar og lauk tón-
menntakennaraprófi frá Tónlist-
ar-skólanum í Reykjavík vorið
1982. 1985-91 var hann í fram-
haldsnámi við Tónlistarháskól-
ann í Hamborg. Frá 1991 hefur
Hilmar verið organisti í Skál-
holti, auk þess sem hann tekur
virkan þátt í tónlistarlífi svæðis-
ins. Hann stjórnar m.a. Skál-
holtskórnum, Kammerkór Suður-
ANNA SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR
Anna Sigga tók á síðasta ári þátt í upp-
færslu íslensku óperunnar á The Rape of
Lucretia eftir Benjamin Britten, þar sem hún
söng hlutverk Biöncu. Hún söng í mörg ár
með sönghópnum Hljómeyki og er félagi í
sönghópnum Emil og Anna Sigga.
lands, Barnakór Biskupstungna
og Skólakór Menntaskólans á
Laugarvatni. ■
Kvikmyndin Regína:
Regína fær fólk til að gera
allskyns skrýtna hluti
kvikmyndir íbúar í vesturbæ
Reykjavíkur hafa sjálfsagt orðið
varir við að verið sé að kvik-
mynda þar um slóðir. Þarna er á
ferðinni upptökur á dans- og
söngvamyndinni Regínu í leik-
stjórn Maríu Sigurðardóttur. Að
sögn Hrannar Kristjánsdóttur,
framleiðanda myndarinnar
ganga tökur prýðilega. „Við
vei’ðum í tökum út þessa viku og
erum rétt rúmlega hálfnuð. Við
erum að taka myndina upp á
nýja digitalupptökuvél sem heit-
ir High Definiton og eftir að búið
er að klippa myndina er búin til
35 mm filma. Þetta er ný tækni
og mjög spennandi að fást við
hana. Hi’önn sagði myndina vera
tekna upp bæði á íslensku og
ensku. Við erum með kanadíska
meðframleiðendur sem koma til
með að talsetta myndina upp á
nýtt og þá lítur þetta miklu eðli-
legra út í nærmyndatökum, það
sama á við um lögin í myndinni.“
Hrönn sagði að áætlað væri að
frumsýna myndina um jólin og
að geisladiskur með lögunum úr
myndinni kæmi út í október
næstkomandi.
Handritshöfundar að mynd-
inni eru Sjón og Margrét Orn-
ólfsdóttir sem einnig samdi tón-
listina. Margét var spurð að því
hvort upptökur væru í líkingu
við það sem hún hefði ímyndað
sér. „Þetta er allt öðruvísi en það
sem ég sá fyrir mér, sem eðlilegt
KVIKMYNDIN REGINA
Magnús Ólafsson og Sigurbjörg Elma Ingólfsdóttir í hlutverkum sinum.
er, en ég er samt mjög ánægð
með það sem ég hef séð og held
að þetta verði mikið ævintýri.
Margrét sagði myndina fjalla
um Regínu, 10 ára stúlku sem
uppgötvar einn daginn að hún
getur haft áhrif á gang mála þeg-
ar hún syngur. „Hún getur feng-
ið fólk til að gera allskyns skrýt-
na hluti og notar sér það til fram-
dráttar. Svo kynnist hún strák
sem heitir Pétur sem er mikill
rímorðamaður og þegar þau leg-
gja krafta sína saman verður úr
mikill galdrasöngur og þau hrin-
da af stað mjög afdrifaríkri og
fjörugri atburðarrás."
Aðalframleiðandi myndarinn-
ar er Friðrik Þór Friðriksson en
með hlutverk Regínu og Péturs
fara þau Sigurbjörg Elma Ing-
ólfsdóttir og Benedikt Clausen.
Með önnur hlutverk fara Balt-
asar Kormákur, Sólveig Arnars-
dóttir, Halldóra Geirharðsdóttir
og Björn Ingi Hilmarsson. ■
FIMMTUDAGUR
26. JÚLÍ
LEIKHÚS____________________________
20.00 Söngleikurinn Wake me up eftir
Hallgrím Helgason verður sýndur
í kvöld í Borgarleikhúsinu.
SKEMMTANIR_________________________
21.00 Á Club 22 verður Elektró dans-
tónlistarkvöld. Það verða plötu-
snúðarnir Exos og dj. Árni Sveins
sem munu sjá um tónlistina f
kvöld og láta einfaldan og þrykkj-
andi takt elektró tónlistarinnar
hljóma um allt húsið.
22.00 Á Vídalín bistró og bar munu
Hjörleifur Jónssonar og félagar
sjá um kósí stemmningu í kvöld.
22.00 Diskótekarinn Kári sér um tónlist-
ina á Kaffibarnum í kvöld. Kári
ætlar að leika uppáhaldstónlistina
sína.
22.00 Á veitingastaðnum Rex er hið
vanabundna Groove
Improvekvöld.
GÖNGUFERÐIR________________________
20.15 Skógarganga verður í kvöld.
Safnast verður saman við fé-
lagsheimilið Félagsgarð í Kjós,
sem er við þjóðveginn sunnan
Laxár. Þaðan verður haldið kl.
20.15 að skógrækargirðingunni
í Vindáshlíð og gengið um
skóginn undir leiðsögn stað-
kunnugra. Gangan tekur um 1
klukkustund og er við allra hæfi
Boðið verður upp á rútuferð frá
húsi Ferðafélags íslands í Mörk-
inni 6 og er brottför kl. 19.30.
Rútan kemur að Félagsgarði í
Kjós og fer þaðan á göngu-
svæðið. Fargjald í rútuna alla
leið úr Reykjavík á göngusvæð-
ið er 500 kr. aðeins frá Félags-
garði á göngusvæðið 300 kr.
Þeir sem kjósa frekar að nota
einkabílinn að Félagsgarði, eða
jafnvel alla leið, er það að sjálf-
sögðu heimilt. Allt áhugafólk
um útivist og ræktun er hvatt til
þess að mæta og eiga ánægju-
lega kvöldstund.
TÓNLEIKAR__________________________
12.00 Óperusöngkonan Anna Sigga,
eða Anna Sigríður Helgadóttir
eins og hún heitir fullu nafni,
kemur fram á hádegistónleikum í
Hallgrímskirkju í dag ásamt org-
anistanum Hilmari Erni Agnars-
syni. Tónleikarnir, sem eru hluti af
tónleikaröðinni Sumarkvöldi við
orgelið, hefjast klukkan 12 og
standa í u.þ.b. hálfa klukkustund.
Á efnisskránni eru lög eftir Gunn-
ar Reyni Sveinsson og Tryggva M.
Baldvinsson við Ijóð eftir nokkur
af góðskáldum þjóðarinnar.
21.30 Á fimmta Tuborgdjassi á Heit-
um fimmtudegi í Deiglunni,
leikur Kvintett djasssöngkon-
unnar, Kristjönu Stefánsdóttur.
Auk Kristjönu er kvintettinnskip-
aður þeim: Agnari Má Magnús-
syni á píanó, Mikael Erian á
saxófón, UliGlassmann á bassa
og Thorsten Grau á trommur
SÝNINGAR_____________________
Þjóðmenningarhúsið er opið frá
11.00-17:00 alla daga. Þar er fjöldi
sýninga m.a. sérsýning á skjölum sem
tengjast Þjóðfundinum 1851, auk
þess sem fundargerð Þjóðfundarins
er ein af föstu sýningum hússins. Aðr-
arsýningar í húsinu er m.a. Kristni i
1000 ár, Landnám og Vínlandsferðir,
mynt og ísland á gömlum landakort-
um.
Handritasýning í Stofnun Árna Magn-
ússonar stendur í Árnagarði við Suður-
götu. Sýningunni er ætlað að minna á
þann hlut sem sagnalist og bókagerð
fyrri alda á í vitneskju okkar um helstu
merkisatburði þjóðarsögunnar og beina
athygli sérstaklega að handritum og
sögum um fólk og viðburði sem fyrir
rúmum þúsund árum ollu aldahvörfum,
þ.e. kristnitökunni og landafundunum.
Sýningin er opin mánudaga til laugar-
daga til 25. ágúst.
Filmundur:
DÖNSK SPENNUMYND
„Blinkende lykter" er sögð vera blanda af sótsvörtum
húmor og ofbeldi í stíl sem oft er kenndur við Tarantino en einnig má greina
ýmis önnur áhrif, eins og til dæmis frá vestrahefðinni og ævintýramyndum.
Danskir smákrimmar
í aðalhlutverki
kvikmyndir Filmundut’ sýnir í kvöld
dönsku myndina „Blinkende lykt-
er“ sem vakti mikla athygli í
heimalandi sínu á síðasta ári.
Leikstjóri myndarinnar Anders
Thomas Jensen er aðeins 29 ára
gamall, en hefur engu að síður get-
ið sér gott orð sem leikstjóri stutt-
mynda og hlaut myndin „Valgaft-
en“ Óskarinn í flokki leikinna
stuttmynda árið 1999. Hann er þó
fyrst og fremst þekktur sem hand-
ritshöfundur, en hann gerði meðal
annars handritið að „I Kina spiser
de hunde“ sem hlaut mikið lof.
Myndin segir frá ógæfumönn-
unum og smákrimmunum Torkild,
Arne, Peter og Stefan sem hafa
þekkst og unnið saman um árabil
að misárangursríkum verkefnum
á glæpasviðinu. Torkild er óneit-
anlega höfuðpaur klíkunnar, en
hann stendur nú á ákveðnum
tímamótum. Hann er orðinn fer-
tugur og kærastan farin frá hon-
um og hann ákveður að tími sé
kominn til að breyta til. Og viti
menn, ótrúlegri breytingar en
hann hefði órað fyrir eiga sér
stað. Klíkan kemst fyrir misskiln-
ing yfir átta miljónir danskra
króna sem tilheyra öðrum og
valdameiri glæpahring. Myndin
er sýnd kl. 22.30 í Háskólabíói og
endursýnd mánudagskvöldið á
sama tíma. ■