Fréttablaðið - 27.08.2001, Page 2
KJÖRKASSINN
Afstaða þeirra sem
greiddu atkvæði um
notkun skólabúninga
skiptist mjög í tvö
horn. Nánast helming-
ur var andvígur en rétt
rúmlega helmingur
fylgjandi þeirri ný-
breytni sem tekin verð-
ur upp í Áslandsskóla.
Á að taka upp skólabúninga í
íslenskum grunnskólum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins i dag:
Telur þú að Ólafur Ragnar Grímsson og
Dorrít Moussaieff gangi í hjónaband á
þessu ári?
VERKALÝÐSFÉLÖG EKKI PAR HRIFIN
Verkalýðsfélög í Taívan létu óspart f Ijós
áhyggjur sínar af því að aukin viðskipti við
Kína verði ekki sérlega hagstæð launþeg-
um heima fyrir. Lögreglan gætti stjórnvalda
vel.
Forseti Taívans:
Opnar fyr-
ir viðskipti
viðKína
TAÍPEI. taívan. ap Chen Shui-bian,
forseti Taívans, tók í gær ákvörð-
un sem þykir marka tímamót í
brösugum samskiptum Taívans og
Kína. Hann ákvað að fara að með-
mælum 120 manna ráðgjafar-
nefndar í efnahagsmálum sem
hvatti til þess að hömlur sem lagð-
ar hafa verið á viðskipti við Kína
verði afnumdar.
Taívönsk stjórnvöld hafa í
fimm áratugi lagt strangar skorð-
ur við öll viðskipti við Kína af ótta
við að eyjan verði efnahagslega
háð meginlandsríkinu.
Nú eru Taívanir hins vegar
ganga í gegnum fyrstu efnahag-
skreppuna í þrjá áratugi og finna
auk þess mjög fyrir sterku að-
dráttarafli kínverska efnahags-
lífsins, þar sem markaður á upp-
leið getur boðið taívönskum fyrir-
tækjum ódýrt vinnuafl og jarð-
næði.
Taívönskum fyrirtækjum veit-
ir víst ekki af slíku til þess að
halda samkeppnishæfni sinni á al-
þjóðlegum markaði.
Beðið var eftir vióbrögðum
kínverskra stjórnvalda við þess-
um fréttum, en Taívan og Kína
hafa eldað grátt silfur saman í
hálfa öld. ■
jlÖGREGLUFRÉTTIRj
Maður réðist á tvo starfsmenn
dvalaheimilisins Hrafnistu í
gærdag þegar þeir hugðust vísa
honum frá þar sem hann taldist
ekki æskilegur gestur. Báðir
starfsmennirnir hlutu minnihátt-
ar áverka. Maðurinn var fangað-
ur af lögreglu og vistaður í
fangageymslu.
Brotist var inn í bifreið við
Austurberg um fimmleytið í
gærdag. Þaðan voru téknar
hljómflutningstæki, bassabox og
magnari. ,
2
___________FRÉTTABLAÐIÐ____________
Félag flugumferðastjóra vill rannsókn:
Ovarlegt fyrir ókunnuga
að túlka samtölin
5KERJAFJARÐARSLY5IÐ „Það kemur í
ljós núna að það var full ástæða til
að hafa varann á,“ sagði Loftur Jó-
hannsson, formaður stjórnar Fé-
lags flugumferðastjóra, um ákvörð-
un samtakanna að kæra Flugmála-
stjóra í apríl sl. fyrir að leyfa að-
standendum að hlusta á upptökur
sem fram fóru í flugturninum þeg-
ar flugslysið í Skerjafirði varð í
ágúst 2000. Félag íslenskra flugum-
ferðarstjóra hefur sent frá sér at-
hugasemd vegna fréttar sem birtist
í fjölmiðlum síðastliðinn föstudag
þar sem birt var útskrift af fjar-
skiptum og samtölum flugumferð-
arstjóra í flugturninum í Reykjavík
fyrir og eftir flugslysið. Þar kemur
fram gagnrýni samtakanna á að
ekki einungis hafi fjarskiptasamtöl
verið birt heldur einnig hljóðritanir
af persónulegum samtölum þeirra
flugumferðastjóra sem í flugturn-
inum voru þegar slysið varð. Einnig
segir að útskriftin lýsi fyrst og
fremst mannlegum viðbrögðum á
erfiðleikastundum og óvarlegt sé
fyrir ókunnuga að túlka það sem
þar komi fram eins og þeim hentar.
„Það sem við erum að gera sérstak-
ar athugsemdir við eru birtingar á
persónulegu samræðunum sem
teknar eru úr algjöru samhengi og
koma málinu hreint ekkert við.“
Loftur sagði að þarna hefði verið
um svokallaðar umhverfisupptökur
að ræða sem næðu ekki yfir allan
salinn heldur næmi einungis það
sem sagt væri þegar staðið er ná-
lægt hljóðnemanum. Fram kemur í
athugasemdinni að samtökin ætli
sér að óska eftir því að rannsakað
verði hvernig nákvæm útskrift af
persónulegum samtölum í flugturn-
inum hafi orðið til og borist til fjöl-
27. ágúst 2001 MÁNUDAGUR
FLUGUMFERÐ
Félag flugumferðastjóra segir innihald út-
skriftarinnar engu breyta.
miðla. Rannsókn stendur nú yfir
hjá lögregluembættinu vegna kæru
félagsins. Loftur sagði að samtökin
myndu hugsanlega óska eftir at-
hugasemdum frá Fjarskiptastofn-
un og Persónuvernd vegna málsins
en að eftir væri að ræða nákvæm-
lega hvað samtökin hygðust gera í
framhaldinu.
kolbrun@frettabladid.is
Veitingarekstri fórnað
fyrir Ingólfsbæ
Borgarminjavörður vill verulega breytingu á fyrirhugaðri hótelbyggingu á horni Aðalstrætis og
Túngötu til að gera gamla Reykjavíkurbænum hátt undir höfði. Slæmt ef við yrðum að sleppa
veitingarekstri, segir Ragnar A. Guðmundsson hjá Þyrpingu, sem vonast eftir því að farið
verði bil beggja.
STÆÐI NÝS HÓTELS VIÐ AÐALSTRÆTI
Rætt er um að Þyrping, sem vill hefjast handa við hótelbyggingu sem fyrst, fórni veitingastarfsemi hótelsins til að hægt verði að gera
landnámsbænum hærra undir höfði.Okkar viðnorf gagnvart fornminjunum er jákvætt, segir Ragnar Atli.
fornminjar „Vandamálið er að þeir
hafa teiknað veitingastofu ná-
kvæmlega yfir þeim stað sem
mikilvægustu minjarnar eru,“
segir Gerður Róbertsdóttir, stað-
gengill borgarminjavarðar, um þá
togstreitu sem hefur myndast
milli sjónarmiða um hótelrekstur
og að gera elstu minjum um byggð
í Reykjavík hátt undir höfði. For-
saga málsins er að eftir að ákveð-
ið var að byggja hótel á horni Að-
alstrætis og Túngötu fundu forn-
leifafræðingar bæ þar undir sem
þeir telja vera frá því skömmu eft-
ir 870. Orri Vésteinsson hjá Forn-
leifastofnun íslands staðfesti í
samtali við blaðið sl. vor að þarna
gæti verið um sjálfan Ingólfsbæ
að ræða. Gerður segir að rætt
verði við forsvarsmenn Þyrping-
ar, sem munu byggja hótelið, um
að þeir breyti áformum sinum og
gefi eftir þann hluta byggingar-
innar sem yrði samsíða Aðal-
stræti.
„Ég hef ekki fengið opinbert
erindi um það, en hef heyrt að
áhugi sé hjá borginni um að ræða
við okkur um að taka veitinga-
starfsemina alfarið út úr teikning-
unum,“ segir Ragnar Atli Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Þyrpingar, og tekur fram að slíkt
myndi setja verulegt strik í reikn-
inginn. Ekki sé vænlegt að gefa
veitingasölu upp á bátinn þegar
hótelrekstur sé annars vegar.
Hann segir að hugsanlegir rekstr-
araðilar hafi gefið sig fram, en
verðbréf Úrvalsvísitala Verðbréfa-
þings Islands féll niður fyrir 1.000
stig í fyrsta skipti sl. föstudag.
Samtals hefur eign fjárfesta í þess-
um félögum dregist saman um rétt
tæpa 40 milljarða. Af þeim 20 fé-
málið sé í biðstöðu á meðan allar
forsendur séu á reiki varðandi eðli
starfseminnar.
Gerður staðfestir að málið sé á
viðkvæmu stigi og viðræður ráð-
gerðar sem fyrst við forsvars-
menn Þyrpingar. Ragnar Atli seg-
ir að það sé ekki vilji Þyrpingar að
standa í vegi fyrir því að minjarn-
ar verði varðveittar og gerðar
lögum á aðallista þingsins (alls 49
félög) sem tíðust viðskipti eru með
á 12 mánaða tímabili eru það 15
stærstu félögin að markaðsverð-
mæti í lok tímabils sem mynda
vísitöluna næstu sex mánuði. ■
sýnilegar fyrir almenning. „Það er
hinsvegar æskilegt að finna sam-
eiginlegan farveg fyrir hagsmuni
beggja. Okkar viðhorf gagnvart
fornminjunum er jákvætt, en það
má ekki horfa framhjá því að veit-
ingarekstur er af ýmsum ástæð-
um mikilvægur fyri okkur,“ segir
hann.
Gerður segir að búið sé að teik-
Ferill Úrvalsvísitölunnar á
árinu niður fyrir ÍOOO stig.
Jan. 1250
Feb. 1230
Mar. 1240
Apr. 1140
Maí 1120
Jún. 1070
Júl. 1050
Ágú. 1050
24.08 990
na sýningarsvæði umhverfis skál-
ann. Samkvæmt þeim mun almenn-
ingur geta virt fyrir sér svonefnd-
an langeld, sem er í skálanum miðj-
um, af palli sem í raun verður inni
í hótelinu. Af honum verður hægt
að ganga niður tröppur og virða
þar fyrir sér ýmsa muni sem fund-
ust við uppgröftinn.
matti@frettabladid.is
Stefnumót unglinga í
Bandaríkjunum:
Kynferðis-
legt ofbeldi
algengt
Úrvalsvísitalan á árinu:
Markaðsverðmætið hrapað
um 40 milljarða króna
Samanburður á markaðsverðmæti fyrirtækja sem nú eru í Úrvalsvisitölunni 1. janúar og 24. ágúst.
Félag ' l/ægi í vísitölu Markaðsverðmæti 1.1.2001 Markaðsverðmæti 24.08.2001 Breyt. %
íslandsbankí 17,6% 41.000 m.kr. 37.800 m.kr. -3.200 m.kr. -7,8%
Baugur 9,7% 21.000 m.kr. 19.500 m.kr. -1.500 m.kr -7,1%
Landsbankinn 9,5% 23.900 m.kr. 18.800 m.kr. -5.100 m.kr. -21,3%
Búnaðarbankinn 8,4% 19.400 m.kr. 15.700 m.kr -3.700 m.kr. -19%
Eimskíp 7,6% 22.100 m.kr. 14.000 m.kr. -8.100 m.kr. -37%
Pharmaco 7,4% 15.650 m.kr. 15.250 m.kr -400 m.kr. -2,5%
Össur 7,1% 22.000 m.kr. 11.150 m.kr. -10.850 m.kr. -49,3%
Kaupþing 6,5% 19.080 m.kr. 13.400 m.kr. -5.680 m.kr. -29,8%
Samherji 5,9% 15.100 m.kr. 12.450 m.kr. -2.650 m.kr. -17,5%
Tryggingamiðstöðin Olíufélagið 5,2% 5,0% 11.300 10.790 m.kr. m.kr. 11.900 10.900 m.kr. m.kr. +600 + 110 m.kr. m.kr. +5,2% + 1%
Flugieiðir 2,7% 6.700 m.kr. 5.300 m.kr. -1.400 m.kr. -20.9%
Marel 2,6% 10.560 m.kr. 5.640 m.kr. -4.920 m.kr. -46,6%
SÍF 2,5% 4.050 m.kr. 4.750 m.kr. +700 m.kr. + 17o/o
Húsasmiðjan 2,3% 5.200 m.kr. 4.070 m.kr. -1.130 m.kr.' 21,7o/o
Samtals -38.240 -17,8%
minneapolis. AP Ein af hverjum
tíu stúlkum og nærri einn af
hverjum tuttugu piltum sögðu að
sér hefði verið nauðgað eða mis-
boðið líkamlega á stefnumótum,
að því er fram kemur í niðurstöð-
urn viðamikillar skoðanakönnun-
ar á bandarískum unglingum.
Könnun var gerð á nemendum
í níunda og tólfta bekk í
Minnesota. Fyrri kannanir hafa
sýnt fram á að álíka hátt hlutfall
stúlkna verði fyrir kynferðislegu
ofbeldi af einhverju tagi, en í
þessari könnun kemur á óvart
hversu margir unglingspiltar
verða fyrir slíku. ■
>»
> V.