Fréttablaðið - 08.01.2002, Síða 13

Fréttablaðið - 08.01.2002, Síða 13
ÞRIÐJUPAGUR 8. janúar 2002 FRÉTTABLAÐIÐ Ilona Staller, öðru nafni Gicciolina: Fer í framboð í Ungverjalandi budapest. ap Ilona Staller, fyrrver- andi þingkona og klámmyndaleik- kona á Ítalíu, hyggst bjóða sig fram til þings í Ungverjalandi, þar sem efnt verður til kosninga þann 7. apríl næstkomandi. Stall- er, sem þekkt er undir nafninu Cicciolina, er ungversk að upp- runa og skýrði frá þessum fyrir- ætlunum í viðtali sem birtist í ungverska dagblaðinu Magyar Nemzet í gær. Staller, sem orðin er fimmtug, var spurð hvort Ungverjum yrði ekki nóg boðið ef hún færi að bera brjóst sín, líkt og hún gerði iðu- lega á fimm ára þingferli sínum á Ítalíu árin 1987-92. „Vandamál Ungverja eru ekki brjóstin á mér né of mikill tepru- skapur," sagði hún, „heldur að þeim hefur munað afturábak frekar en áfram vegna aðgerða núverandi ríkisstjórnar." Hún sagðist hafa mestan áhuga á félagsmálum, svo sem heilbrigð- ismálum, heimilislausu fólki og vandamálum lífeyrisþega. ■ CICCIOLINA „Þrátt fyrir tengsl mín við italíu hef ég alltaf litið á mig sem Ungverja," sagði llona Staller í viðtali í gær. Opin Kerfi, Nýherji og Skýrr: Verðmæti fallið um 9 milljarða á árinu hiutabréf Á línuritinu má sjá ris og fall upplýsingatæknivísitölu Verðbréfaþings íslands frá árs- byrjun 1999 fram til dagsins í dag. Fallið var sérstaklega skarpt á ný- liðnu ári en þá féll vísitalan úr 200 stigum í 60, eða alla leið niður fyr- ir upphafsgildið. Sem dæmi má nefna að í upphafi ársins var sam- anlagt markaðsverðmæti hluta- bréfaflokka Opinna kerfa, Nýherja og Skýrr tæpir 15 milljarðar króna en nú stendur aðeins um þriðjung- ur þess eftir, eða á bilinu 5 til 6 milljarðar. í kjölfar tapreksturs hafa flest félögin neyðst til þess að fækka fólki og draga úr umsvifum. Stig Hreinn Jakobsson, forstjóri Skýrr, telur að botninum sé náð og rekstrarhorfur Skýrr bjartar á þessu ári. „Ég held að fjölmörg teikn hafi verið á lofti á síðustu mánuðum ársins sem boði betri tíð fyrir fyrirtæki í upplýsinga- tækni hér á landi. Sumir vilja segja að tæknibólan hafi sprungið en það er nær lagi að fallið á liðnu ári sé leiðrétting eftir þær gríðar- legu hækkanir sem urðu á árun- um þar á undan.“ Hreinn segir að verkefnastaða Skýrr fyrir komandi ár sé með betra móti. „Árið lítur vel út fyrir okkur og eflaust fleiri í þessum HREINN JAKOBSSON Þrátt fyrir að markaðsverðmæti hafi rúm- lega helmingast á liðnu ári hefur Skýrr ekki fækkað starfsfólki eða dregið úr umsvifum að sögn forstjórans. geira. Fyrirferðamesta verkefnið hjá okkur á þessu ári verður inn- leiðing á nýjum fjárhagskerfum fyrir ríkið.“ Hvað varðar horfurn- ar almennt í geiranum segist Hreinn hafa mesta trú á fyrir- tækjum sem byggi á traustum grunni. „Þau fyrirtæki sem hafa byggt sinn rekstur á einni afurð eða einu þróunarverkefni eiga miklu frekar á brattann að sækja. Það má segja að það nýtist okkur vel að vera með fjölbreytta starf- semi og dreifða áhættu nú um stundir.“ ■ Bessastaðahreppur: Ibúum þar íjölgaði hlutfallslega mest í fyrra fólksfjölcun Gunnar Valur Gísla- son sveitarstjóri Bessastaða- hrepps segir að íbúafjölgun í sveitarfélaginu á sl. ári hafi verið einna hlutfallslega mest hjá þeim miðað við önnur sveitarfélög landsins. Á árinu fjölgaði íbúum um 192 eða um 12,4%. Það er álíka mikið og var á árinu þar á undan. Heildarfjöldi íbúa þann 1. desember sl. var því um 1740. Bú- ist er við að íbúafjölgunin verði eitthvað minni á þessu ári á með- an verið er að huga að nýjum framtíðarsvæðum undir nýbygg- ingar. Ástæðan fyrir þessai'i miklu íbúafjölgun er að sögn Gunnars Vals nægt framboð af nýbygging- arlóðum á samkeppnishæfu verði við það sem gerist og gengur í ná- grannasveitarfélögunum. Á sl. tveimur árum hafa íbúar verið að flytja inn í tvö ný íbúðahverfi sem verktakar byggðu upp í sam- vinnu við sveitarfélagið eftir að þeir höfðu keypt nýbyggingar- landið af landeigendum. Hann segir að þessi íbúafjölgun sé bæði vegna búferlaflutninga innan höf- uðborgarsvæðisins og einnig frá landsbyggðinni. Hins vegar er ekki búist við neinum hreyfing- um til sameiningar við önnur sveitarfélög eftir að meirihluti BESSASTAÐAHREPPUR Mikil íbúafjölgun hefur verið í sveitarfélag- inu á liðnum árum. kjósenda hafnaði því í könnun í fyrra að teknar verði upp form- legar viðræður við Garðabæ. Þá sögðu 60% nei en 40% voru því fylgjandi. Sveitarstjórinn segist ekki gera ráð fyrir því að þessar sameiningarhugmyndir verði að einhverju kosningamáli í vor. ■ i*asa Hefurðu prófað ostateninga í salatið? Með villisveppum og með skinku og beikoni. Fyrirvoru léttostar með grænmeti, með sjávarréttum og hreinn léttostur. Smurostarnir eru þægilegt, bragðgott álegg og líka spennandi í ofnrétti, súpur og sósur. Fjölbreytt úrval gomsætra léttosta! Kotasæla, fitulítil og freistandi! Lágt fituinnihald og fáar hitaeiningar! Hrein, með ananaskurli eða með hvttlauk. Sígild á brauð, hrökkbrauð og kex, í salöt eða ofnrétti. Heimilisostur og 11 % Gouda Ljúffengir ofan á brauð og kex og fínir í nestið. íslenskir ostar - hreinasta afbragð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.