Fréttablaðið - 08.01.2002, Page 24

Fréttablaðið - 08.01.2002, Page 24
FRETTABLAÐ Ð SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjorn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rsfpostur: ritstjorn@frGtt3bladid.is Augiýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 7520 ViÐ SEGJUM FRÉTTiR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar Sími 55*5 Bakþankar Kristínar Helgu Gunnarsdóttur ._ ^ ^ j Fimmhundruð tonn af spiki Frægur fimleikaforkólfur hélt því fram á dögunum að íslendingar hefðu bætt á sig þremur til fimm kíló- um yfir jólin. Mér varð hverft við, kastaði frá mér konfektkassanum og æddi á vigtina, létti mikið þegar ég sá að ég átti ekki þátt í þessu meðaltali, en lagðist í reikning og komst að því að ef hundrað og fimtíu þúsund ís- lendingar hafa hver um sig bætt á sig þremur kílóum þýðir það að nær fimmhundruð tonn af spiki hafa bæst á þjóðina á aðeins tveimur vikum. AF EINHVERJUM ÁSTÆÐUM varð mér hugsað til litlu barnanna í Bíafra sem ég borðaði heilu fisk- hlössin fyrir sem barn. Betur ef þau og önnur börn í Afríku hefðu bætt á sig þremur kílóum hvert. Söfnunarbaukur Hjálparstofnunar kirkjunnar stendur víða nær tómur á eldhúsborðum. Nú er mál að fylla hann svo kannski megi senda ein- hverjum þrjú kíló af mat eða teppum eða bara þrjá lítra af vatni. í JANÚAR eru íslendingar mjólkur- hvítir í myrkrinu og mjúkir eins og hamstrar í híði. Á þá leggjast timbur- menn jólanna af fullum þunga en um leið birtast lausnarar með ný tilboð. Gylliboð líkamsræktarstöðvanna flæða inn um bréfalúguna þessi dæg- urin og þrýsta á viðkvæmar taugar. Þau minna á að menn skuli ekki vera mjúkir heldur stinnir og stæltir og fyrr en varir fá einhverjir nóg, rúlla sér út í bíl og aka inn í heilsuheima, fá sér einkaþjálfara, fara í fitumæl- ingu og hefja hamslausa brennslu undir eftirliti því eins og heilsumeist- ararnir segja: Enginn getur staðið hjálparlaust við áramótaheitin. Happasælast er að leigja sér aðstoð- armann segja sérfræðingar- leiðbein- anda í sjálfsstjórn, þjálfara í lífs- leikni, hófsemi og aga. BEST VÆRI ÞÓ ef maður lærði sjálfur lífsleikni. Þá er hægt að ganga mót hækkandi sól, arka, rölta, labba og tralla um mela og móa- borg og bí. Þannig er hægt að ná í um- frambirgðir af súrefni, fá vind í hárið og koma flæði í skrokkinn. Slík lík- amsrækt er ókeypis og ef maður er hallur undir einkaþjálfara má alltaf fá sér hund sem viðrar mann á góð- um dögum. Að minnsta kosti verðum við að taka okkur taki ef við eigum að ná af okkur þessum fimmhundruð tonnum fyrir vorið. ■ í lífinu Langar þig að öðlast sjálfstraust og hugsun sigurvegarans, eflast við hverja raun og vinna markvisst að því að draumar þínir rætist? Þráir þú að ná markmiðum þínum í vinnunni og einkalífinu á auðveldan og skipulagðan hátt? Á Dale Carnegie námskeiðinu gefst þér kostur á að byggja upp hæfileika þína á fimm sviðum: Þú eflir sjálfstraustið Þú bætir samskiptahæfileika þína Þú gerir tjáningu þína árangursríkari Þú byggir upp forvstuhæfileika bína Þú nærð stiórn á áhyggjum og streitu Kynnirtgarf undir eru í sal ÍSÍ í Laugardal, við hliðina á Laugardalshöll, kl. 20:30 eftirtalin kvöld: ► 7. janúar t 9. janúar ►10. janúar - Leiðtoga og samskiptaþjálfunfyrir konur* ►14. janúar - Leiðtoga og samskiptaþjnlfunfyrir konur' ►15. janúar * Námskeiðið er halciið í samvinnu við IS Námskeiðin hefjast ► þriðjudag 15. janúar jfthúlA úí (Leiðtoga og samskiptaþjálfun fyrir konur). ► miðvikudag 16. janúar (Dale Carnegie námskeiðið). [> mánudag 4. febrúar (Dale Carnegie námskeiðið). Námskeiðin eru eitiu sinni í viku í 12 vikur. Þau mæla með DALE CARNEGIE: Lærði að trúa á sjálfa mig Síðastliðin 10 -12 ár hef ég víða leitað ýmiss konar aðstoðar og fróðleiks mér til sáluhjálpar og einnig til að standa fastar á mínum eigin fótum, verða betur ágengt. Margt alveg ágætt hefur komið út úr því. En ég sé núna, er ég lít um öxl, samnefttarann sem alltafhefur vantað. Verklegu þjálfunina. Hún gerir að mínu mati gæfumuninn. Á þessu námskeiði lærði ég að trúa því að ég og mínar hugmyndir eru einhvers viði, kannski meira virði en margra annarra, sent þó eru öruggari með sig. Eg lærði að forgangsraða, greina aðalatriði frá aukaatriðum og raða því síðan sainan í markmið. Hanna L. Elísdóttir Yfirbuga stress og áhyggjur Þetta námskeið hefur gert meirafyrir mig en nokkuð aunað sem égheftekið mér fyrir hendur. Samskipti mín viðkonuna, börnin, vini og samstarfsfélaga itafa batnað rnikið. Það hjálpar manni svo sannarlega að koma skipulagi á lífsitt svo munar. Það kenndi mér að setja mér persónuleg markmið, eitthvað sem ég hef einungis gert í vinnunni, og hjálpaði mér að yfirbuga allt stress °g áhyggjur. Það geislar afmanni orkan og allir í kring smitast. Hvet alla til þess að koma lifi sínu í lag ogfara á ttámskeiðið. Munið, batnandi fólki er best að lifa. Hreint út sagtfrábært námskeið. Stefán Stcinsen, Markaðsfræðingur I' Dale Carnegie ÞjALFUN sími 555 7080 • Faxtæki • Ljósritunarvélar g • Sjóðvélar • Skjávarpar LíttU VÍð í Lágmúlanum B R Æ Ð U R N I R SKRIFSTOFUTÆKI Lágmúla 8 • Sími 530 2800

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.