Alþýðublaðið - 11.07.1962, Síða 2
stjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri:
>rgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 J06. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentcmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
amdi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
Klofnir og ráðvilltir
KOMMÚNISTAR eiga enn við mikla heimil-
is erfiðleika að etja. Verður ekki betur séð, en fylk-
ir g þeirra sé margklofin og harðvítug valdabar-
átta eigi sér stað milli margra og ósamstæðra hópa.
J ifnframt virðast kommúnistar sem heild ekki geta
l^yst grundvallar skipulagsmál, né komið sér sam-
aíi um, hvernig þeir eigi að starfa í næstu framtíð.
Eftirfarandi'staðreyndir vekja athygli manna,
sem glöggt fylgjast með í stjómmálaheiminum :
1) Flokksþing Sósialistaflokksins átti að fara fram
síðastliðið haust. Því var frestað fram í marz
—apríl í ár. Þá var því aftur frestað fram yfir
bæjarstjórnarkosningar, til að varðveita einingu
I í flokknum, sem ekki var of góð þrátt fyrir það.
: Skyldi flokksþingið koma saman um mánaða-
I mótin júní-júlí. Nú er sá tími liðinn og ekki ból-
| ar á þinginu. Því hefur enn verið frestáð til
| hausts !
2) Aðalfundur Sósíalistafélags Reykjavíkur átti
1 að fara fram skömmu eftir nýár í vetur. Honum
var einnig frestað og var hann ekki haldinn fyrr
| en eftir kosningar. Brynjólfur Bjarnason var
þar loks píndur til að láta af formennsku, og Páll
Bergþórsson kjörinn.
3) Deilurnar í Kópavogi hafa gert ástandið í fylk-
ingunni erfiðara en nokkru sinni. Finnbogi Rút-
ur Valdimarsson er nú kominn í þá stöðu, að
flokkurinn verður að fara mjög varlega með hann
og fylgismenn hans.
4) Skipulagsmálið, sem kommúnistar ekki geta
leyst, er þetta: Á að standa við gömul loforð
við Hannibal um að Sósíalistaflokkurinn renni
inn í Alþýðubandalagið og það verði baráttu-
tæki framtíðarinnar ? Eða á Sósíalistáflokkur-
inn að vera til áfram á bak við tjöldin, en Al-
þýðubandalagið að vera stundarflík, sem skart-
að er, meðan gagn þykir að henni ?
Frestun flokksþingsins fram á haust er ótví-
ráett vitni þess, að ósamkomulagið er meira en
nokkru sinni innan flokksins. Verður nú reynt að
breiða yf ir það — og alveg sérstaklega að haf a Finn-
boga, Hannibal og aðra aftaníossa góða — fram
ýfir Alþýðusambadskosningar.
i
‘ Kojnmúnistafylkingin er eins og vagn, sem
rennur áfram af sjálfu sér, meðan margir berjast
lim ekilssætið. Flokkurinn er í rauninni stefnulaus
í íslenzkri pólitík, hvort sem litið er á dægurpóli-
tjk eða framtíðarbaráttu. Þjóðviljinn heldur á-
fram Rússadekri. en það er langt síðan heyrzt hefur
sÖsíalistísk hugsun í blaðinu eða stuðningsmönn-
um þess.
ÚTSALAN Á SKÖFATNAÐI
stendur aðeins fáa daga ennþá. — Allt á að seljast, en síðan verður
verzlunin lokuð um tíma vegna breytinga. — Notið tækifærið og gerið
góð kaup á margs konar fyrsta flokks skófatnaði.
Skóbúð Reykjavíkur
Aðalstræti
ylting i netagero
KRISTJÁN G. Gíslason stór-
kaupmaður bauð á Iaugardag
blaðamönnum á fund í tilefni
. þess að fyrirtæki hans hefur haf
ið innflutning á nýjum hnúta-
lausum netum frá Ítalíu. Er talið
að net þessi eigi eftir að valda
bylingu á sviði netagerðar og við
gerða á netum. Hér á landi dvel
ur nú maður frá tíölsku verk-
smiðjunum, Jean Henry Gamet
að nafni, og kynnti hann kosti
netanna umfram þau eldri. Gam
et er meðeigandi í vcrksmiðjun
um, auk þess sem hann er ínikill
unnandi lista, hefur m.a. skrifað
leikrit sem nú er sýnt í Róm, og
gefið út ljóðabók í landi sínu.
Fyrirtækið sem framleiðir
hnútalaus net heitir Carlo Badin-
otti og er það fyrsta fyrirtækið
í heiminum, sem framleitt hefur
’hnútalaus net, og er nú lang-
stærsti framleiðandi þeirra. Norð
raenn hafa þegar gert kaup á yfir
100 nótum, og hafa þær reynzt af
burða vel.
Eru þrír aðilar íslenzkir búnir
að festa kaup á hnútalausum net-
um, og fleiri hafa beðið um við
gerðarefni, því að ágætt er að
gera við með hnútalausu.
Alls munu vera 15 netagerðar-
menn á íslandi, og á laugardag
hafði Kristján G. Gíslason, en
hann hefur umboð fyrir Badin-
otti, náð sambandi við 12 þeirra
og leizt þéim öllum hið bezta á
hnútalausu netin og margir gerðu
þegar pantanir.
Helztu kostir hnútalausra neta
eru: Möskvarnir eru nákvæmir og
réttir. Þeir breytast ekki, því að
engir hnútar eru sem geta dreg-
ist til. Netið er mjög slétt. Engir
hnútar nuggast og slitna, en það
er mjög mikilvægt þegar kraft-
blökk er notuð.
Styrkleiki netsins er hinn
sami, þ.e.a.s. netið slitnar ekki
um hnúta. Hnútanet missa um
40% af styrkleika sínum við að
vökna, en hnútalaus aðeins um
10-15% þar sem þræðirnir mæt-
ast.
Hnútalausu netin sökkva fljót-
ar en hnútanetin, vegna þess að
loftbólur myndast alltaf í hnút-
unum, sem seinka sökkvuninni.
Þetta atriði töldu norskir sjó-
menn sérlega mikinn kost, en í
Noregi er komin talsverð reynsla
á netin.
Hnútalausu netin veita minni
mótstöðu í straumi heldur en
hnútanetin. Er það mjög hag-
kvæmt, einkum á miðunum íyrir
austan land.
Engar breytingar verða á við
gerður nýju netanna, og er jafn
vel fljótlegra að bæta hnútalausu
netin, vegna þess að þau slitna
alveg eins á leggnum eins og um
hnútinn, og það raknar ekki upp
frá einni rifu á netinu.
Badnotti-fyrirtækið hóf fram-
leiðslu hnútalausra neta eftir f jög
urra ára rannsóknir, og tekur fyr
irtækið ábyrgð á því að þræðirnir
rakni ekki upp og möskvarnir
haldi sér. Hefur fyrirtækið nú
framleitt hnútalaus net í þrjú ár,
og selt til notkunar yfir 450 þús.
kíló af netum, og hefur enn ekki
frétzt um að nót hafi rifnað, þrátt
fyrir það að mjög stór köst hafi
fengizt allt að því 2000 tunnur.
Er það mjög mikils virði að net
in rifni ekki undan mjög stórum
köstum en það hefur viljað
brenna við hjá íslenzkum fiski-
skipum.
Hnútalausu netin eru framleidd
í öllum garnstyrkleikum eða frá,
210/3 til 210/120.
Kristján G. Gíslason hefur nú
selt net í 30 ár, og telur hann að
þessi nýjung sé það sem koma
skal, mesta bylting, sem orðið hef
ur í framleiðslu neta.
Yerð netanna er tiltölulega
mjög lágt, eða eitthvað svipað
og japönsku næturnar, en þær
eru þær ódýrustu á markaðinum.
Stafar hið lága verð af miklum
hraða í gerð netanna, þar sem
hægt er að spinna þráðinn um
leið og netið er gert.
Umboðsmaður Badinotti, Henri
Gamet, hefur einu sinni áður kom
ið hingað til lands, í febrúar sl.,
og hreifst hann þá mjög af land
inu, og nú í þetta sinn tók hann
konuna með. Hafa þau ferðast
í boði Kristjáns G. Gíslasonar
víða um landið og einnig kynnt
sér íslenzka málaralist. Hreifst
Gamet mjög af málverkum Ás-
gríms Jónssonar, og skipaði hon
um á bekk með mestu málurum
heims. Einnig var hann hrifinn af
verkum Kjarvals. Sagfíi hann að
ísland væri paradís fyrir expressi
onista, vegna þess hve mikil lita
dýrð væri hér á landinu. Gamet
hefur ferðast víða um heim í
starfi sínu, og kynnst mörgum ó-
líkum þjóðum. Hefur hann m.a.
selt net til Indlands, Afríku,
Rússlands og yfirleitt til allra
helztu fiskveiðilanda heims.
2 11. júlí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ