Alþýðublaðið - 11.07.1962, Síða 4
Guðmundsson:
ERLENÐ tlÐJNDI
RÆTT var í síðustu viku hér
í dálkunum um stjórnmálaá-
standið í Brazilíu og virðist því
ekki úr vegi að athuga nokkuð
nánar stjórnmálaástandið í Suð-
ur- og Mið-Ameríku í hcild.
Einkum er ástæða til að ræða
Perú, þar sem forsetakosni'ngar
eru ný afstaðnar, en allar líkur
eru fyrir því, að herinn hvggist
virða þær að vettugi.
Hið sorglega við ástandið í
þessum heimshluta er það, að
eícki er fyrr farið að bóla á ein
hverjum framförum á stjórn-
málasviðinu en eitthvað það
kemur fyrir, sem veldur því, að
allt verður ónýtt jafnvel verra
eh fyrr. Augljósasta dæmið um
þetta er Brazilía, sem á sínum
tíma virtist á góðum framfara-
vegi, eftir kosningu Quadros í
forsötaembætti, en missti það
eullna tækifæri og hefur síðan
Verið svo til óstjórnandi.
>
Ef við lítum á Argentínu, sem
vafalaust er það land Suður-
Ameríku, sem lengst hefur náð,
þá er hið sama uppi á teningn
um. Þar hefur ríkt hreint upp-
lausnarástand síðan Frondizi.for
seta var steypt af stóli. Stjórnar
skráin var þá numin úr gildi og
hefur ekki tekið gildi enn. Verð
bólga þar er svo mikil, að málm
iðnaðarverkamenn gera lcröfur
um 70% hækkun á launum, og
erlendum mönnum,, sem fylgj-
ast bezt með málum suður þar,
kemur saman um, að slík krafa
sé ekki ósanngjörn.
Það rikið, sem talið er einna
traustast í Suður-Ameríku, er
Venezuele. Þar virðist horfa
nokkuð í framfaraátt sem stend
ur, en þó er ekki mánuður síð-
an blóðug bylting var bæld þar
niður. Af ríkjum latneskju Am-
eríku í heild hafa þó Mexíkó og.
Uruguay hvað sterkastar stjórn
ir, þó að þær hafi að vísu við
nokkra erfiðleika að etja.
. Ef við- litum á nokkur af þess
jm ríkjum, þá kemur í ljós, að
:jörnir forsetar stjórna í Chile,
Guetamala, Honduras, Panama
<}g Equador (auk Perú, sem er
líapítuli út af fyrir sig). En sá
gallinn, að forsetar í þessum
íkjum geta aðeins stjómað að
|afninu til, því að þeir eiga við
Hiikla erfiðleika að etja, þar
asm eru hinar tiltöluléga örfáu
:tir í löndunum, sem bókstaf-
ga ráða öllu efnahagslífi
ndanna og hafa auk þess svo.
erk póiitísk áhrif, að óhugs-
andi er að ganga gegn þeim.
Það var sagt hér að ofan, að
Perú væri kapituli út af fyrir
sig, og skal það skýrt nokkuð
nánar: Þar í landi eru nýafstaðn
ar forsetakosningar og voru
fram bjóðendur þrír. Einn
þeirra, sósíalistinn Haya de la
Torre, sigraði með yfirburðum,
en nú hefur herinn raunveru-
lega sagt, að það skuli aldrei
verða, að hann setjist á forseta-
stól. Herinn var svo hræddur
við Haya de la Torre, að hann
vaf þegar fyrir kosningar far-
inn að hrópa um kosningasvik.
Eftir því, sem hlutlausir aðilar
segja, virðist vera alveg ljóst,
að alls ekki hafi verið um nein
kosningasvik að ræða í kosning-
um þessum og fékk Haya de la
Torre 15.000 atkvæðum meira
en Belaunde Terry, íhaldsmaður
sem á móti honum var, og 70,-
000 atkvæðum meira en her for
inginn Odría.
Nú standa málin þannig í
Perú, að þingið verður að
kjósa forsetann, þar eð enginn
frambjóðenda fékk þriðjung at-
kvæða. Mjög miklar ]íi,ur eru á
því, að þingið þori ekki að kjósa
Haya de la Torre vegna and-
stöðu hersins og hinna íhalds-
sömu stórfjölskyldna sem styðja
Belaunde. Kosningin á að fara
fram 28. þessa mánaðar og hef-
ur New York Times það eftir
Belaunde, að þá verði hann „í
forsetahöllinni, fangelsi eða
kirkjugarðinum", sem blaðið
telur þýða „Það' er ajlt í lagi
með kosningarnar, ef ég sigra“
Herinn hefur svo fyrir sitt leyti
tilkynnt núverandi forseta, að
hann muni ekki fallast á Haya
de la Torre sem forseta. Það
virðist sem sagt augljóst, að sá
maður, sem fékk flest atkvæði
við forsetakjörið, eigi ekki að
fá að setjast í forsetastól.
Það, sem helzt virðist vera að
í allri latnesku Ameríku, er í
fyrsta lagi völd ríkisbubba, sem
árum og öldum saman hafa hald
ið meirihluta þjóðanna niðri.
Þeir hafa ekki einu sinni leyft
mönnum að læra að lesa og
^krifa, um helmingur manna í
Brazilíu er ólæs og óskrifandi
og í Perú er hlutfallið jafnvel
enn verra, en þar mun aðeins
fimmtungur þjóðarinnar kunna
þessar sjálfsögðu listir. í öðru
lagi kemur svo vandinn við að
færa efnahagslíf þessara landa
í nýtízku horf. Þessar þjóðir
hafá öldum saman verið fyrst
og fremst framleiðendur hrá-
efnis og iðnaður, sem er undir
staðtf nútímalífs, hefur tæpast
náð að þróast þar að nokkru
ráði. Það er svo annað mál, að
það er engan veginn víst, að
þær yfirstéttir í þessum löndum
sem til þessa hafa hagnazt vel
á efnahagslífinu, eins og það er
hafi neinn verulegan áhuga á
breytingum.
Ef maður hins vegar vill
skoða þessi mál í allra beztu,
mögulegu ljósi, þá er það að
sjálfsögðu geysilegum erfiðleik
um bundið fyrir þjóðir, er búa
við svo einhæft efnahagslif, að
standa sjálfar undif þeirri gífur
legu fjárfestingu, er þarf til
þess að umbreyta lifnaðarhátt-
um heillar þjóðar. Það þekkjum
við héðan af íslandi. Það má
því segja, að vandinn við að
breyta lífskjörum í latnesku Am
eríku sé svo íil óyfirstíganlegur.
Bezta og raunhæfasta tilraun
in til þessa er hið svokallaða
Framfarábandalag, sem Kenn-
edy Bandaríkjaforseti hleypti
af Stokkum á sínum tíma. Ef sú
hugmynd næði verulegri fót-
festu, qr enginn efi á, að vel
mundi takast. En sú hugmynd
hefur rekizt á tvö sker, sem erf
itt verður að losna af. Annars
vegar koma til hiAir róttæku
þjóðernissinnar, sem vantreysta
hugmyndinni af því að liún kem
ur utan að, og þar að auki frá
ríka bróðurnum í norðri. Hins
vegar eru svo afturhaldssamar
stjórir í ríkjunum sjálfum og
„Big Buisness" í Bandaríkjun
um, sem óttast, að með þessu
móti verði opnað fyrir flóðgátt
ir byltinga.
Allt um það, er enginn efi á
því, að þessi hugmynd er sú
bezta, sem fram hefur komið, og
raunverulega sú eina, sem nokk
ur von er um að geta borið á-
rangur. Framfarabandalagið
heimtar umbætur innanlands áð
ur en til aðstoðar kemur. Það
heimtar félagslegt réttlæti til
handa þegnunum, áður en að-
stoð er veitt. Þarna er komið að
kjarna málsins, og ef þessu
bandalagi tekst ekki að koma
hinum nauðsynlegu umbótura á,
þá er vandséð að nokkur geti
það. Þá verður ekki nema um
tvennt að ræða: áframhaldandi
kyrrstöðu og eymd eða blóðuga
kommúnistíska byltingu.
Peningarnir og vopnin, sem fundust í bílnum.
LLUR FENG
I SIÐUSTU VIKU fundus* í
,,skottinu“ á bíl einum í Jersey
City í Bandaríkjunum 2,4 millj.
dollarar í peningum. Bíllinn, sem
þessi risafjárhæð fannst í, er fjog
urra dyra Plymouth bill frá 1947
rykfallinn, hjólalaus að aftan og
að öllu leyti í ömurlegu ástandi.
Bíllinn stóð í lélegum bílskúr úr
rauðum múrsteini í öngstræti. Á-
stæðan til, að hann fannst yfir-
leitt var sú, að fasteignasali einn
þar í borginni hafði keypt skúr-
inn og átti að fara að endurnýja
hann. Þegar verkamenn komu til
starfa, fundu þeir umgetinn bíl
og opnuðu „skottið". Þeim brá all
verulega í brún, þegar þeim birt-
ust þarna endalausar hrúgur af
seðlum í búntum, allt frá fimm
og upp í þúsund dollara seðlar í
búntunum.
Lögreglan fór að sjálfsögðu
strax á stúfana og komst fljótlega
að þeirri niðurstöðu, að peningar
þessir væru eign afbrotamanns
nokkurs að nafni Josepli Vincent
Moriarity, sem um þessar mundir
situr í fangelsi þar í ríkinu til að
afplána tveggja til fimm ára dóm
fyrir svik.
Náungi þessi virðist vera furðu
fugl, sem alltaf hefur starfað einn
að glæpum sínum og hefur verið
handtekinn tuttugu og átta sinn
um síðan 1931 fýrir fjárhættuspil,
skattsvik og tryggingasvik, en það
er einmitt fyrir hið síðastnefnda,
sem hann situr inni núna.
Þegar þetta er haft í huga, er ef
til vill skiljanlegt, að mannaum-
inginn hefur algjörlega neitað að
opna sinn túla um það; hvort
hann eigi þessa peninga eða ekki
Það, sem leiddi lögregluna á
spor Moriarotys, var það, að auk
peningaseðlanna var þarna líka
talsvert af. ríkisskuldabréfum,
sem skráð voru á nafn Moriaritys
og bróður hans Alfreds, sem mun
hafa dáið fyrir fimm árum.
í ljós hefur komið, að einhver
Anna Petrick er síðasti skráði
eigandi títtnefnds bíls, en hann
liafði verið gerður upptækur af
y ríkissaksóknaranum 1952, þegar
Moriarity var handtekinn fyrir
fjárliættuspil. Þegar hann var
sýknaður af þeirri álcæru, var
bílnum skilað íil ungfrú Petrick.
Verðlaun
fyrir góða blóma-
þekkingu
1 sambandi við Skólasýninguna
í Miðbæjarskólanum, var efnt. til
getraunar af hálfu Skólagarða
Reykjavíkur, meðal barna, sem
sóttu sýninguna. Spurt var um
heiti á 10 tegundum, sumarblóma
af 20, sem á sýningunni voru.
All mikil þátttaka varð í get-
raun þessari og var dregið úr
réttum svörum. Hlutu eftirtalin
börn blómaverðlaun fyrir að vita
öll nöfn blómanna rétt:
Anna Kr. Jónsdóttir,
Langholtsvegi 92 (10 ára)
Ásgerður Haraldsdóttir,
Tunguvegi 60 (12 ára)
Árni Thorlacius,
Kvisthaga 21 (14 ára)
4 11 júlí 1962 - ALÞÝÐUBLA01Ð
i