Alþýðublaðið - 11.07.1962, Side 16
★ ÞAÐ líður senn a'ð því að
Hótel Saga verði opnað, eða
hluti af því. Gistiherbergi á
' einni hæðinni eru þegar til-
búin, og eru þessar myndir
| úr 2ja manna herbergl. Eins
! og áður hefur komið fram í
! fréttum er mjög til alls vand-
r - að, teppi á öllum gólfirm-
allur efniviður upp á það
bezta og húsgögn eftir nýj-
ustu tízku. Öll möguleg þæg-
indi era I herbergjunum,
flísalagðir baðklefar, stórir
og rúmgóðir skápar, útvarp,
sérstakar vekjaraklukkur,
bjöllur til að hringja á þjón-
ustuliðið og gert er ráð fyrir
sjónvarpi. Enn er mikið ógert
í veitingasölunum, og er tæpt
á þvi, að hótelið verði opnað
um næstu helgi eins og ráð
var fyrir gert. Allt hótelið
verður að sjálfsögðu ekki til-
búfð fyrr en eftir langan
tíma, og verður aðeins hluti
þess tekinn í notkun í sumar.
i'vyyV":':
'V'
•: .
■• ::........................ ' ■ - ;••
• •
•HHHHH - . mmmia
i’ * 1e3b35k8s>>' •
1' ■ l> M
W0P.
Hér er hann! Þetta er endurvarpslinötturinn „TEL-
STAR”, sem Bandaríkjamenn sendu á braut kringum
jörðu í gær. Smíði hans og sending út í geiminn veld-
ur byltingu á sviði útvarps og sjónvarpstækja. Við
segjum nánar frá þessu vísindaafreki I blaðinu í dag.
43. árg. — Miðvikudagur 11. júlí 1962 — 156. tbl.
NYTT JARÐFRÆÐI-
UNDANFARIN átta ár hefur Guð-
mundur Kjartansson, jarðfræðing
ur, unnið að gerð jarðfræðikorts
af íslandi.
Kort þetta verður í mælikvarða
1:250.000 og á níu kortblöðum. —
Fyrir tveim árum kom fyrsta blað-
ið út og náði það yfir suðvestur-
landið, nú er komið út annað blað,
sem nær yfir miðsuðurland. Jarð-
fræðikortið er gefið út á vegum
Menningarsjóðs. En verkið er unn
ið á vegum jarðfræði- og land-
fræðideildar Náttúrugripasafns
tslands.
Margir aðilar hafa lagt hönd á
plóginn til að vanda þetta verk
sem kostur er og virðist það hafa
tekizt hið bezta.
Guðmundur Kjartansson, jarð-
fræðingur, sem hefur haft veg og
vanda af gerð þessa korts áætlaði
það í upphafi tíu ára verk að gera
slíkt kort, sem næði yfir allt land-
ið. Það hefur nú komið á daginn
að verkið mun taka allmiklu meiri
tíma, einkum vegna þess að fé
hefur skort til ýmissa hluta. Við
verkið styðst Guðmundur að
sjálfsögðu við eldri kort og ýmsar
aðrar heimildir, samræmir þær og
breytir í samræmi við það sem
komið hefur nýtt í ljós. Mikið hef-
ur verið stuðst við Jarðfræðikort
Þorvalds Thoroddsen, sem kom út
árið 1901, og er það að mörgu leyti
fyrirmynd að hinu nýja korti..
Kortið er teiknað hjá Landmæl-
ingum íslands, en prentað í Litho
prent. Það er prentað á mjög vand.
aðan pappír og virðist prentunini
hafa tekizt mjög vel. Erlendir jarð-
fræðingar, sem séð hafa þetta kort,
ljúka miklu lofsorði bæði á prent-
un og litaval á kortinu, sem þykir
hafa tekizt mjög vel. Næst verð-
ur gefið út blað með korti yfir
Mið-ísland og er þegar byrjað aS
teikna það til prentunar. Standi
féleysi framkvæmdum ekki fyrir
þrifum, er áætlað að gefa út eitt
blað á ári, unz öll eru komin.
Hvert mun kosta um sextíu krón-
ur og er það ódýrt miðið við sam-
bærileg erlend kort.
MMWMWMHUHWWHIMW1
Sjá nánar
um Telstar
NYJUNG I MJOL-
FRAMLEIOLU SR
SÍDASTLH>H> haust voru tekin í
tiotkun tæki hjá Síldarverksmiðj-
um ríkisms á Siglufirði til þess að
vinna mjöl úr soðkjarna. Mjölið,
fiem unnið er úr kjarnanum er kall
að soðmjöl. Er það mun bætiefna-
rfkara en venjulegt síldarmjöl. Að-
clns munu vera til ein slík tæki í
Evrópu, fyrir utan þessi tæki á
Sigluftrði, eni þau í Esbjerg. Tæk-
«n á Siglufirði eru framleJdd hjá
ðönsku fyrirtæki.
Það eru ekki ýkjamörg ár síðan
farið var að vinna soðkjarna úr
síldarsoði, sem áður rann í sjóinn
frá verksmiðjunum. Vilhjálmur
Guðmundsson, verkfræðingur hjá
SR hefur tjáð blaðinu að nu sé
ekki hægt að reka síldarbræðslu án
þess að nýta þetta soð.
Úr síldarsoðinu er framleiddur
soðkjarni, eða soðkraftur í sérstök
um eimingartækjum. Þessi soð-
kjami er þykkur, brúnn vökvi, sem
inniheldur um 50% mjölefni og
50% vatn. Fyrir nokkrum árum var j
Framhald á 14.; síðu.