Breiðablik - 01.11.1911, Blaðsíða 9
BREIÐABLIK
89
um, sem leigö eru alls konar fjársýslu-
mönnum fyrir skrifstofur. Ógnar þeim
eigi þó hátt verði að fara. Eftir því sem
ofar kemur í slíku stórhýsi eru menn
lausari við ryk og skarkala. Þeir sem efst-
ir eru, komnir upp til skýja, upp í kyrð-
ina og víðsýnið, sem öllum þykir svo
dýrmætt. Lífsábyrgðarfélögin eru farin
að reisa slík stórhýsi í meiriháttar borg-
um. Metropalitan lífsábyrgðarfélagið á
eina þá allra hæstu. Hún er rétt að segja
700 feta há (693) og var fullgerð árið
1909.
Svo margt er orðið þessarra stórhýsa
að þau setja alveg sérstakan blæ á stór-
borgir Ameríku, eins og New-York og
Chicago. Er misjafnlega um þær dæmt,
eins og gengur, og eru margir sem fárast
mjög um. En í raun réttri er ástæða
miklu meiri til að dást að því hyggjuviti,
þeirri þekkingu og byggingarlisl, sem
þarf til að koma þessum húsajötnum upp,
og gera þá að tryggum bústöðum, en að
fárast yfir. í stórborgunum verður hver
lófastór blettur á fjölförnustu strætunum
svo afar dýr, að menn þykjast tilneyddir
að príla svona hátt til skýja. Enda reyn-
ast þessar skýjaborgir þeim einkar-hent-
ugir bústaðir, sem þær eru ætlaðar, og
engu hættumeiri en aðrir, nema síður sé.
Tíu þnsundir manns var mér sagt að
heima ætti í einu slíku stórhýsi eða jafn-
vel fleiri. Það þykir alimyndarlegur bær
víðast hvar, er taldar eru tíu þúsundir,
en í stórborgunum víla menn ekki fytir
sér að stinga einu slíku bæjar kríli inn í
einn kofa.
Á Wall-stræti stóð eitt sinn Bandalags-
höllin (Federation Hall), þar sem George
Washington var var settur inn í embætt-
ið sem fyrsti forseti Bandaríkjanna. Sá
sögulegi minnisvarði hefir orðið að víkja
fyrireinnideild af fjárhirzlu Bandaríkja,sem
nú er eitt af tilkomumestu mannvirkium
borgarinnar. Tollhúsið sem reist var á
árunum 1902—1907, er annað. Það er
reist í frakkneskum r e n e s a n s-stíl,
þar sem Amsterdam-vígið gamla stóð.
Einn af mörgum listigörðum bæjarins er
City-Hall Park. Þar er pósthúsið og
ráðhúsið fræga reist í ítölskum renesans-
stíl, og eitt af allra fegurstu stórhýsum
borgarinnar. Þar er dómhöllin og skjala-
safnið og þar er borgarstjórnar-höllin,
með ljósblysi efst, 559 feta h- u, aðalhús-
ið með 23 loftum, og liggur heilt stræti
gegn um það og boghvelfing yfir. Dálítið
norð-austur frá Broadway eru Grafirnar
(The Tombs). Það er dýflisa borgar-
innar, sem svo er nefnd. Er hún tengd
glæpamanna dómhúsinu með brú afar
hárri, sem nefnist Andvarpabrúin.
ÁFifth Avenue, þar sem miljóna-
mæringarnir flestir búa, vakti bókasafnið
nýja mest athygli mítt. Það verður full-
gert nú í ár og er hin mesta borgarprýði.
Eii nú er eg farinn að villast. Það er
hægt að fara villur vegar í ferðasögu eigi
síður en í stórborg. Mikil væri sú villa,
að ætla sér að fara lýsa annarri eins stór-
borg og New York er, borg með fimm
miljónum manns, annarri stærstu borg
heimsins, í fáeinum pennadráttum. Það
væri auk heldur óðs manns æði að ætla
sér að lýsa hundraðasta hluta af því, sem
fyrir augað bar þenna eina dag, sem eg
ók þar í kring, og veitti svo mikið við
nám í huga tnínum, að eg geti rifjað þuð
upp aftur. Eg ók til dæmis gegn um
helztu listigarða borgarinnar og sá þar
svo mikið af fegurð og skrauti, svo mik-
ið safn þekkingar og fróðleks, að lengi
myndi endast, ef upp skyldi telja.
Eg var orðinn steinþreyttur af að horfa
og hugsa og setja á mig, þegar eg kom
úr þessum leiðangri inn á gistihúsið þar
sem eg tók næturgistingu. Það var kom-
ið undir kveld. Snemma næsta dag átti
eg að vera kominn á skipsfjöl. Þess vegna
bezt að koma öllu í lag og hvíla sig vel.