Breiðablik - 01.11.1911, Qupperneq 15
BREIÐABLIK
95
PRÓFSTEINNINN,
Þa5 eru fleiri að rannsaka ritninguna en
þessir óguðlegu( !)prófessorar. N orður á Akureyri
situr Mr. Gook við og gefur beint út rannsókn-
arrit, nr. i, 2, 3 o. s. frv. Hann er orðinn hálf-
merkilegur maður við það,að ritstjóri fyrir norð-
an var svo meinlaus—eða gamansamur—að taka
eftir hann óskaplega grein um Jónas í hvalnum.
Hér kannast menn við söguna um hann Stórjó-
hann, sem hafði Jónas í hvalnum að prófsteini á
Reykjavíkur-djáknann. Næsta rannsóknarritið
frá Mr. Gook á líka að vera vitnisburður vísind-
anna um Jónas í kviði stórfiskjai itis. En síðast-
komna ritið er um sólina í Gíbeon og tunglið í
Ajalon-dal. Það er vitnisburður vísindanna um
það, hvernig gangurinn stöðvaðist.
Undrið það er svo ,,prófsteinninn“. Sé farið
að efa þá frásögu, eða það undur, þá er alt far-
ið, alt lygi og svik, og enginn kristindómur eftir.
Og vana viðkvæðið hjá slíkum mönnun,, að þeir
sem ekki eru samdóma í skilningi bókstafs-
manna, séu kristindómsfjendur o. s. frv.
,,Fyrir því skulu þeir og vera yðrir dómarar“.
— Þegar menn eins og Govik hamra á þessu eða
þvílíku í heilagri ritningu, eða t. d. Mormóna-
prédikarar sýna cg sanna skýlaus boð um fleir-
kvæni í lögmáli Móse, og hafa alveg rétt fyrir
sér í því að svo er þar stundum boðið, þá ætti
það að vera alvarleg áminning fyrir bókstafs-
dýrkendurna að sjá hvar lendir. Að minsta kosti
ætti þeim —alténd hinum siðbetri mönnum — að
lærast að leggja niður tortryggnis-getsakirnar
og ónota ásökurnar-dylgjurnar í garð vorn,
sem könnumst frjálslega við þjóðsögurnar í hin-
um fornu ritum Hebrea.
Menn eins og Gook og Jakob mormóni eru
sjálfum sér samkvæmir í bókstafstrúnni og ein-
lægir við kolann. Og þegar heimfærð eru til
þeirra og skoðanabræðra þeirra, sem þeim telj-
ast miklu fremri, orðin fornu: ,,Því skulu þeir
vera yðar dómarar“, þá eru þar að baki allur
sami hugsanagangur og þegar orðin upphaflega
voru töluð.
Svona menn verða einmitt prófsteinn á bók-
stafsþjóna vorra tíma. Og vegna þess er minst
á þetta vísindarit að norðan.
Vér vildum ekki fyrir neinn mun missa úr
biblíunni okkar fræðslu-ljóðin um Jónas, með
hinni dýrlegu trúarhugsjón um kærleika guðs til
allra manna. Og oss þykir líka vænt um þetta
brot úr bardagakvæðinu forna, sem er löngu á
undan ritöld þjóðarinnar. Haldi bókstafsmenn-
sínum skoðunum á þessu og þvílíku í ritningunni
sér til uppbyggingar, við höldum okkar skoðun
okkur til uppbyggingar. Sýnist að það ætti að
geta gengið illindalaust.
Þá sjaldan sem eg sinni eitthvað þessum ,,vís-
indalegu rannsóknum“, finst mér nærri því að
biðja þurfi lesendurna afsökunar. Til bragð-
bætis vil eg bæta við dálítilli gamansögu, sem
einhvern veginn minnir á sig í þessu sambandi.
Sagan gei ðist undir borðum hjá Játvarði Engla-
konungi, fyrir skömmu.
Þar var erkibiskupinn frá Kantaraborg einn
geslurinn. Lá vel á gamla kóngi að vanda, og
kastar þeirri spurningu að biskupi í gletni:
,,Getið þér, háæruverðugi herra, sagt mér,
hvað er mtista kraftaverkið í gamla testament-
inu?“ Ungur tignarmaður og nákominn konungi
varð fyrri til svars og gall við: ,,Areiðanlega
það, þegar Elía ók til himna í glóandi eldvagn-
inum, án þess að svo mikið sem sviðtiuðu á hon-
um buxnaskálmirnar“. Mönnum varð litið til
biskups og þorðu ekki meir en svo að hlæja.
Biskup brosti við og sagði ofur-hægt: ,,Nei yð-
ar hátign; það var asrian hans Bíleams, sem
svaraði, án þess að húsbóndinn spyrði hana“.
Þá hlógu allir.
Þ. B. Nýtt Kirkjublað.
Tákn tímanna.
Balfour.
Hvergif er stjórnmálabaráttan eftirtektarveið-
ari en einmitt á Englandi nú um þessar mundir.
Frjálslyndi flokkurinn er þar rétt búinn að hnekkja
æfagömlu hefð ar-helgisvaldi lávarða-deildarinn-
ar, svo það er eigi nema skuggi þess, sem verið
hefir. Ihaldsflokkurinn vitaskuld sáróánægður
út af þeim ósigri og kennir ágætum leiðtoga
sínum um, Mr. Balfour. En sjálfsagt algerlega
með röngu. I Iann er langmestur afburðamaður
í sínum flokki og miklu betur til foringja fallinn
en nokkur annar,sem sá flokkur hafði áaðskipa.
Ef farið hetði verið að ráðum hans og tilslökun
sýnd fyrir löngu, myndi nú íhaldsmenn standa
miklu betur að vígi. En vegna óánægju og mót-
spyrnu innan flokksins, hefir hann sagt af sér og
heitir sá Bonar L a w, sem tekinn er við for-
ystu. Er hann eigi álitinn nærri því annað eins
mikilmenni og Balfour og ólíklegur til að láta
sér takast að lyfta flokknum upp úr því feni, sem
hann er fallinn niður í. Balfour er heimspeking-
ur utn leið og stjórnmálamaður. Heimspeking-
urinn frakkneski, B e r g s o n, sem nýlega var
staddur í London, benti á hann sem einn af allra
mestu mikilmennum heimsins, og svo fágætt að
sameina þetta tvent svo ágætlega í fari sínu:
Stjórnmálavizku og heimspeki.