Frækorn - 15.08.1902, Side 5
F R Æ K O R N.
orðnir svo einhuga um niðurstöðu þá, er
»kritíkin« hafi komist að viðvíkjandi
gamla testamentinu, og að allt sé nú
orðið svo ljóst í þeim efnum, og falli
eins og í löð. Allar háskóladeildirnar
við lútersku háskólana hafi þegar í öllu
viðurkennt þá niðurstöðu. En þetta ery
aðeins staðhæfingar. »Kritíkin« er að eins
áð litlu leyti komin að fastri niðurstöðu.
Skoðanir þeirra manna eru mjög skiftar.
Mest af því^ sem komið hefur verið fram
með í þeim efnum, eru getgátur, sem
ýmist aldrei vérða sannaðar eða að
minnsta kosti hingað til eru mjög illa
sannaðar. Og að því er háskólana
snertir, þá veit eg ekki til, að sé komin
ákveðin yfirlýsing um »kritíkina» frá
r. einum þeirra. Annað mál er það, að
fleiri eða færri áhangendur þeirra skoð-
ana kunna að vera til meðal kennara í
öllum skólum. En naumast mun unnt
að að benda á þrjá slíka menn, sem sé
sammála jafnvel um aðal-atriði. Dillmann
er með sínar getgátur, Wellhausen með
sínar, König með sínar, Kayser, Reuss,
Cornill, Robinson, Smith með sínar, o.
s. frv. Fáein dæmi að eins vil eg nefna.
Wellhausen og Giesebrecht ætla, að að
því nær allir Davíðs sálmar sé til orðn-
ir á þeim tíma, er útlegð Gyðinga í Ba-
býlon stóð yfir, eða eftir það. Hitzig
og Olshausen telja mikinn hluta þeirra
orktan á Makkabea-tíðinni. Bythgen tel-
ur að eins fjóra sálma frá þeirri tíð.
Robinson Smith kannast við, að sumt í
sálmunum frá go. til 150. sé frá því
tímabili, en ekkert í sálmunum þar á
undan. Þá fjóra sálma sem áður voru
nefndir, segir hann vera frá stjórnartíð
Artaxerxesar; en suma frá gríska tíma-
bilinu. Hitzig telur Davíð hafa orkt 14
af sálmunum, Ewald 11, Schultz 17,
Bythgen 1, Cornill að eins brot af ein-
um, Delitzsch 44, o. s. frv. Niðurstöðu
þá, sem einstakir lærðir menn hafa kom-
ist að, láta hinír, sem að eins hafa eftir
öðrum, vera allsherjar niðurstöðu visind-
anna.
: Að því er snertir spámennina, þá skal
að eins eitt dæmi nefnt. Margir hinna
lærðu manna, sem hafa verið að eiga við
gamla testamentis-»kritík«, haldaþví fram,
að spádómsbók Jónasar sé skáldskapur
93
frá 5. öld fyrir Krist; sumir, að hún sé
lítið eitt eldri; aðrir, að hún sé lítið eitt
yngri. Og þetta vilja þeir rökstyðja með
því, 1) að málið á bókinni og efni henn-
ar sé svo, að hún geti ekki verið frá
8. öld; 2) að hún innihaldi á likingar-
máli sögu um það, er kom fyrir Jónas;
3) að hún sé stýluð gegn eínrænings-
anda Gyðinga í trúarefnum. Annar íiokk-
ur biblíu-rannsakenda er þeirrar skoð-
unar, að í bókinni sé sögulegur kjarni
frá 8. öld, sem vaxið hafi við að ganga
i munnmælum. Síðan hafi sagan verið
skrásett og færð í líkingarmálsbúning
nálægt árinu 500 f. Kr. Eins á að vera
með ýmsa innskotskafla, sem sagt er að
sé í spátnannabókunum hinum, frumrit
Mósesbókanna o. s. frv. -
Þetta læt eg nú nægja til þess að
sýna, að niðurstaða »kritíkarinnar« er
enn sem komið er engan veginn óyggj-
andi eða fastákveðin; engin ástæða því
enn til að hælast um. Mörgu, sem nú
er haldið frarn, getur áður en langt líð-
ur orðið hafnað. Það verður því að leyfa
mönnum að berjast á móti mörgum svona
löguðum nýmælum og hinni óheilsusam-
legu, roggnu »kritík«, sem eingin mót-
mæli þolir. Gætnir vísindamenn, sem
að eins hafa það markmið að leita sann-
leikans, verða að fá að vinna verk sitt í
friði. Þeir munu leiðrétta skekkjurnar
hjá sér sjálfir. En vér, sem ekki erum
því vaxnir að takast á hendur hinar víð-
tæku málfræðilegu og sögulegu rannsókn-
ir, verðum að hafa þolinmæði til að bíða
og varast að kveða upp nokkra dóma í
máli því, sem vér berum ekki nægilegt
skyn á. — —
En það, að bíða, geta menn ekki eða
vilja ekki. Oðar en vísindamennirnir
hafa leitt þá eða j>á ályktan út af rann-
sóknum sínum eða komist að einhverri
svo kallaðri niðurstöðu, henda margir,
sem hafa allt sitt vit frá öðrum á aðra
og þriðju hönd, þær kenningar á lofti
og halda þeim fram sem óyggjandi sann-
Ieik. INIeð gumi miklu er þeiin þeytt
út í allar áttir. A torgum úti eru þær
boðaðar, og i lífinu eru þær reyndar.
Það var einkum til að vara menn við
slíku háttalagi að eg ritaði línur þessar.
Hvað sannleikur er, á almenningur heimt-