Lögrétta - 01.07.1933, Blaðsíða 6

Lögrétta - 01.07.1933, Blaðsíða 6
107 108 L ö G R J En — í Guðrúnar me> jar muna mýkstan jeg fann hann una við löndin svo ljós og fríð.---- Man jeg enn meyna ungu með metnað og kapp á tungu og eggjan á óþckt lönd. Eins man jeg augun fríðu og ómana töfraþýðu, bergmál frá blíðheims strönd. Mundi’ eg ei markið kunna? Mundi jeg tveimur unna og fá ekki reist við rönd? — Til orustu ómur kallar; óma jeg heyri og gjalla lúðra um land og sjá. Önnur við yndi og hlýju ástina mina nýju vermir með bros á brá. — Grímhildar gígju hreimar glitrandi titra og streyma; vekja mjer þögn og þrá. 4. Vorblær. í blámóðu blikandi fjalla. í bjarma af liðinni tíð mig ársöngvar kliðmjúkir kalla og kvakandi þrestir í hlíð. Um gróandi grund og glófögur sund, frá sólgyltum sindrandi tindi að sjónhring á glitrandi lá er hvíslað um æskunnar yndi og oilífa fagnaðar þrá. það leiftrar um veröld svo víða; það vorar um sjerhverja braut. Fram sjálfkrafa ljóðin mín líða og losna við áhyggju’ og þraut. TJm vengi og ver er vorblærinn fer til Menglaðar minningar reika og minja frá liðinni stund. — Að tibrá sjer ljósálfar leika og logum um Grímseyjarsund. Sem vorbla^r er gleðin i Gjúkunga höll og í Gjúkunga veiðum um land. E T T A Lítt þekkist þar ósigur, æmtan og hop, er öðlingar halda, um brand. •Tafn tiltæk er Gunnari hamingjuhönd við hörpu og blikandi skálm. Og aldrei sjest Högna þar bregða í þrún, er brynþvari gnauðar um hjálm. Að ganga með fóstbræðrum löndin að leik er ljúft þeim, sem vandist að rjá. Svo marga stund glaða jeg vissi um vang að vart mun slíkt títt vera’ að sjá. Kn fastast tók harpan þó huga minn æ og hlýjast og sterkast mig dró. Og fúsastur gekk jeg á Grímhildar fund er hjá Guðrúnu’ ’hún hljóðfærið sló. Hver hamingjulind varð þar ljósbjört og tær; í ljóma hvert framtíðarstarf. Hið ókomna snerti sem angandi vor, Hið atliðna i blámóðu hvarf. Sem stormur i bliðviðris fjarlægð burt, flýr svo fjarlægðust kappgimi og strið. Hver þpá gerðist hljóð og hver ósk fjell í fang á fullsælli liðandi tíð. — Eitt kvöld gekk jeg þögull úr Gjúkunga sal og gekjc út í kvöldsvalan lund. Um sólarlagsbilið við sátum þar tvö og seipt mun hún fymast sú stund Er Guðrúnar kinn mjer að hjartastað hneig i hvislandi vomætur þey. — þó þriðjungur ríkis sje rausnarleg gjöf er hún cýr samt hjá þvílikri mey. 5. HvaB? Jeg veit ekki glögt, hvað valda má þeirri varurð á okkar fundum. F.r til þin um kvöld jeg glaður geng fer geigur um hug minn stundum. Sem hendingskast eitt, sem harðydd ör minn huga sú spurning nemur hvort hafi jeg brotið lögmál leynt í Ijósmál er seinna kemur. Við aftanskrúð vors mjer unað ber þitt ástriki á margar lundir. En — stundum fær alt annars svanna svip um sólríkar morgunstundir.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.