Lögrétta - 01.07.1933, Blaðsíða 35

Lögrétta - 01.07.1933, Blaðsíða 35
165 LÖGRJETTA 166 Hann ber sitt bar uns bogið skar brunnið er út við brennvins stút og stelpunnar. Hann nýtur sín best á næturnar — þá notar liann augun og fæturnar; þá bragðar hann aldrei einn einasta dropa þótt eg sje að bjóða’ honum tár. En — taki hann sjer frí, íær hann sjer sopa og gefur þá flott upp á gleðilegt árl Svo skundar hann út um borg og bý með brandí á ný, já, skál fyrir þvíl Um daginn sá jeg hann „daginn á eftir“, en þá var hann þunnur og fár, ekki af iðran og annara niðran, en — ástarsárl Hann hafði gleymt og glatað í ralli giænýrri kærustu á brekánsballi, sjeð hana’ að morni suður á Melum, með sjóara af Skaga í ástafelum. Svo ekki er að furða, þótt á hlaupi snurða og sorgina þurf’ hann í einhverju’ að urða — til dæmis í brandí, að baki hurða. Nei, sist er að furða. II. Augað frosið hart sem hörsl á vegi. Heilinn vökusljór á morgundegi. Hjartað sópað, alslaust eyðitorg. Einstæðingur múgs í höfuðborg. þreyttur, tómur, tómthúsmaður orðinn, trítlar listarlaus um veitsluborðin. Skálmin flosnuð, en flibbinn eins og mjöllin. Flárátt skim við gesta hlátursköllin. Brosir auðmjúkt — fyrir siðasakir, í sinnuleysi þess, sem bíður, vakir. En hann veit samt miklu, miklu fleira um mann og konu, en aðrir fá að heyra. Hann kann vel að þegja, það er list hans — þar er bygð og trygð að mestu vist hans; en aldrei má hann þiggja neitt af neinum nema drykkjufje og glas í meinum--------------- þolinmæði og þögn er lögmál sett. þjónn á minni en hálfan gestarjett. Hvar á hann að halla höfði sínu? Hjá henni Gunnu að norðan? Eða Trinu, henni að sunnan? — Siðla nætur fer hann, sundurslitinn kom og fór og er hann. Kofri! þú skalt heldur gista hjer, hjer á gamla sófanum hjá mjer. Til Oengsa, Dengsi! Litlu „L j ó ð i n“ mín lofaði jeg þjer, karlinn, að gefa og koma þeim til þín og það skal standa í pallinn. — Dengsi litli, lífið er langtum stærra að sárum, heldur en flestir hugsa sjer heilir, á þínum árum. Sumt er æska, er sjerðu hjer, sumt er ’in kalda elli og svo á að fara fyrir þjer: að falla — en halda velli! 'Reyfejavík. Hjer sá jeg ungur sólir fagrar skína á sakleysið um stjettarnar og torg og nú hefur dækjan haldið heimreið sína hjer í þessa yndislegu borg. Gömul afmælísvísa, ‘Cil Pjeturs 7Aagnússonar frá ©ílsbakfea. Heiðursmaður við háa og lá’a. Við heiða loftið glæddist þú. Það má segja um þig — en fáa — það var gott að fæddist þú! /Pfmælisósfeír, 15. september 1955. Mín fyrsta ósk er morgunkoss á kinn hjá kærustunni minni, Önnu Páls. Mín næsta ósk, að kyssa kollinn þinn og kyssa þig á augun, munn og háls. Mín þriðja ósk — að ralla frí og frjáls fæðingardaginn minn, í þetta sinn!

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.