Lögrétta - 01.07.1933, Page 36

Lögrétta - 01.07.1933, Page 36
167 168 L ö G R J E T T A 7v\enn, sem jep men — Sígurð Sígurðsson / 0 tIS> frá Ærnarholtl. Tlannes Tíafsteín, Ef til vill væri það rjettast og vitið mest, að leiða þann vanda hjá sjer, að semja minn- ingarskrif um þennan þjóðkunna glæsi- rnann; en sú er bót í máli, að minning hans er almennings eign í landi voru og þolir því misfellur og vankanta, sem verða á þessum línum mínum. Þegar jeg gekk inn í Latínuskólann var jeg mjög vel undirbúinn af sjera Valdemar Briem; hafði t. d. samið latneska stýla í tvo vetur, frá 1. októbermán. til 14. maímán., að hátíðum og sunnudögum frádregnum. Jeg hafði því góðar ástæður til að frílista og spóka mig við hvað eina, sem dægrastytting var að, þegar jeg kom til Reykjavíkur og beið inntökuprófs í 2. bekk. Þá hittist svo á, að mikil sundalda, eða á- hugi á sundlist var að rísa meðal ungra p i 11 a í Reykjavík; s t ú 1 k a hefði ekki á þeim árum mátt láta það spyrjast um sig, að hún sýndi og sæi sig nakta undir berum himni. Gott dæmi um hugsunarháttinn má telja það, að nokkrar ungar stúlkur tóku sig til um líkt leyti og æfðu sig í róðurlist, en Adam var ekki lengi 1 þeirri Paradís — bát- urinn þeirra var fljótlega skírður (en hann var sexmannafar) „kvennafar" og þar með var sá áhugi útkulnaður. Fyrsta stúlkan, sem sýndi sig á götum bæjarins á hjólhesti, vakti umtal og hneykslaði marga; svo ó- mannaður var höfuðstaður landsins. En Hannes Hafstein mun hafa verið góð- ur sundmaður, eftir því sem þá þótti, á hans æskuárum. Virðist mjer erfiljóð hans eftir Áma Finsen benda í þá átt og atvik, er henti hann þegar enskur botnvörpungs- skipstjóri ætlaði að drekkja honum vestra, en mishepnaðist. svo yndislega. Hannes ljet róa sig út að honum á smábát, en þegar þeir koma að skipshlið, draga skipverjar upp vír- inn, sem báturinn lagðist yfir, og hvolfa úr bátnum; lagðist Hannes til sunds, þungt klæddur og hjelt sjer uppi um stund, þar til skipverjar skömmuðust sín og drógu hann upp á þilfarið; var hann þá að þrotum kom- inn, einkum vegna þess, að hann átti erfitt með að losa sig við mann, sem hjekk í hon- um. Hann var mállaus um hríð, enda með h j artabilun. Heyrði jeg hann segja Birni Ólsen frá at- viki þessu svo óbrotið og látlaust eins og liann væri að segja sögu af einhverju, sem iionum kæmi ekkert við sjálfum. Togarinn lijet Royalist, en málað yfir „erxið“ („Oya- list“). Glæpamaður sá, sem stjórnaði þessu hermdarverki, slapp við makleg málagjöld í bili, en Tryggvi Gunnarsson kom orðsend- ingu, eða brjefi, um þetta til Danmerkur mjög bráðlega og var togaraskipstjórinn liandsamaður við ólöglegar veiðar við Jót- landsströnd skömmu síðar, sat lengi í betr- unarhúsi, en var sökum dugnaðar og sjó- menskuhæíileika sinna veitt skipstjórn aft- ur. Druknaði hann í fyrstu fiskiför sinni til Islands og rak — að sögn — hauslausan; hafði sennilega hákarl klipt af honum haus- inn en almenningur lagði út sem „æðri stjórn“, og með rjettu. En að þetta, sem jeg hef minst hjer á sundlist, er mjer svo hugstætt, stafar lík- lega af því, að Hannes ljet einu sinni falla orð í minn garð, orð, sem jeg ætíð áður hafði heyrt rangnefnt: marb e n d i 11, en hann rj ettnefndi: marm e n n i 11. Það var seint um kvöld, þótt bjart væri, að jeg kom heim úr sundgamni við Krýju- stein, svo seint, að jeg var hræddur um að jeg fengi ákúrur hjá fóstra mínum, ef hann yrði þess var; flýtti mjer að hátta, en heyri rjett á eftir að opnuð er forstofuhurðin og heyri mannamál. Inn ganga þeir Ólsen, Hafsteinn og Tvede lyfsali. „Við skulum reyna hann“, segir Ólsen og iabba þeir allir þrír inn í smáherbergi við hliðina á svefnherbergi mínu og kemur Ól- sen með í höndunum eitthvert áhald úr kopar, eða messing og setur á gólfið. Hann- es og Tvede leggjast á gólfið á hnje, en

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.