Lögrétta - 01.07.1933, Síða 37

Lögrétta - 01.07.1933, Síða 37
LÖGRJETTA 170 169 Ólsen les upp prentaðan leiðarvísi á þýsku, „Pumpen, pumpen“. Þeir dæla og dæla, kveykja á hverri eldspýtunni eftir aðra kringum hausinn, en ekki sjest votta fyrir því að kviknað sje á. Jeg gat ekki stilt mig, þótt jeg þættist sofa, en fór að hlæja. „Þar hló marmennill“, sagði Iiannes. En Ólsen: „Við skulum ekki vera að þessum andskota, en fá okkur Wiský!“ Hættu þeir við að hita sjer vatn í toddýið og drukku „sjússa“. Með öðrum orðum: „primusinn" var þá sú nýjung, að tveir mentuðustu menn landsins og lyfsali í viðbót kunnu ekki að kveykja á primusáhaldi; höfðu ekki þekk- ingu á að hita hausinn fyrst með olíu, eða suðuspritti. Hannes var þá landritari og bjó í húsi því, sem Guðm. Björnson landlæknir eign- aðist síðar, en þá var æfinlega kallað Smiths hús. Hannes þótti mjög fríður maður og var það eftir því sem alrnent þykir og þótti; hann var mjög dökkur á hár og í andliti, suðrænn yfirlitum, feitlaginn og þungur á sjer á efri árum. Einhverju sinni sá jeg þá sitja saman við borð, út við glugga á kontór Ólsens í Latínuskólanum, Guðmund lækna- skólakennara Magnússon, Hannes og ólsen og voru þeir að staupa sig; sátu þeir lengi og ræddu saman, en ekki drukku þeir nema eitt glas hver. Voru kátir og hlógu dátt. Jeg var að gjóta augunum til þeirra og virða fyrir mjer þessa stórfenglegu menn og þótt jeg væri þá ungur og ekki víðreistur var jeg að hugleiða, hvort víða um löndin sætu saman, af einskærri tilviljun, þrír svona svipmiklir, stórvaxnir og fallegir karlmenn sömu þjóðar í smákauptúni. Svip- mestur þótti mjer Ólsen, fríðastur Hannes og gáfulegastur Guðmundur — og allir gáf- aðir, fríðir og svipmiklir. Það var fögur sjón. Hannes var hvers manns hugljúfi og vin- sæll, svo sem best gerist, hvar sem hann kom og fór. Einhverju sinni bráðlá honum á að komast frá Isafirði til Reykjavíkur, en enga skipsför að hafa. Norskur útgerðar- maður, Ellefsen að nafni, sem þá var vestra, komst á snoðir um þetta og sendi einn hvalabáta sinna með hann til Reykjavíkur og beið báturinn hans. Heyrði jeg, að þessi sami öðlingur hefði gefið honum húsið við Tjamargötu, ráðherrahúsið svonefnda, sem hann seldi landinu síðar góðu verði, þegar Björn Jónsson tók við; heyrði jeg Björn skammaðan fyrir að hafa látið landið borga honum sómasamlega fyrir! Hugmyndir íslendinga um höfðingslund hafa tekið stakkaskiftum síðan þessi saga gerðist og átti Hannes góðan þátt í þeirri framför, eins og flestu því, sem þá var gert til hagsbóta fyrir landslýðinn. Hann hugsaði lítið, eða kanske ekkert, um sína pyngju, en gaf alla tíð á báða bóga; kom það sjer vel fyrir þjóðina, að hann átti vitra og vel efnaða vini svo sem Tryggva Gunnarsson, Bjöm Ólsen og Jónassen land- lækni. — Samlíf Hannesar og konu hans Ragn- heiðar var bæði fágætt og ágætt; hún var í raun og veru svo sem amma, móðir, eigin- kona, systir, unnusta og dóttir, alt eftir því sem honum var fyrir bestu í það og það skiftið, enda fluggáfuð. Ljóðaflokkur sá, sem hann orti um hana látna og prentaður er í hinni skrautlegu útgáfu af ljóðmælum hans, er eitt hið merkilegasta mannlegt document í seinni tíma skáldskap í íslensk- um ritum og mun gera þau bæði ódauðleg; veit jeg, satt að segja, ekki, að hvoru þeirra jeg dáist meira. Það var með hana í huga og fvrir augum, meðan hún var í fullu fjöri, að jeg setti saman þessi stef: Vel er að fausk- ar fúnir klofni, felli þeir ei hinn nýja skóg; en hjer fjell grein af góðum stofni — grisj- aði dauðinn meira en nóg. Því svo eru not að nema rjóður, að nýgræðinginn vanti ei skjól. Strjáll er enn vor stóri gróður, stend- ur hann engum fyrir sól. — Mjer flaug í huga fram í tímann, að hún væri fallin í val- inn og fann svo til vegna bamanna, sem jeg sá hugskotssjón skjólvana nýgræðing. Dásamlegt er ímyndunaraflið — að n.insta kosti þeim sjálfum, sem það hefur. En ótamið og bandalaust er það háskalegt og viðsjálsgripur, bæði í list og lífinu. Gamli Heimdallur, tímaritið, flutti ein-

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.