Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Page 41

Eimreiðin - 01.05.1917, Page 41
IOI son sér ekki til að bera hornin öll og báðar húðirnar, svo Snati segir honum að fleygja því á hrygg sér heim undir borgarhliðið. Kóngsson þiggur þetta. og lætur alt á hundinn, nema húðina af minna nautinu; hana rogast hann sjálfur með. Skilur hann þar alt eftir við borgarhliðið, gengur fyrir kóng og biður hann ganga með sér þangað; afhendir hann honum nú húðirnar og hornin af nautunum. Kóngur undrast mikillega hetjuskap hans, og segir engan hans líka vera raunu; þakkar hann honum innilega fyrir verkið. Eftir þetta setur kóngur hann hið næsta sér. Virtu allir hann mikils og héldu hann hina mestu hetju; og jafnvel gat nú ekki Rauður mótmælt því, en fór þó altaf versnandi í þeim á- setningi, að ráða hann af dögum. • Eitt sinn kemur honum gott ráð í hug. Gengur hann því fyrir kóng og kvaðst þurfa að tala nokkuð við hann. Kóngur spyr, hvaö það sé. Rauður segir, að -sér hafi nú dottið í hug gullskikkjan góða, gulltaflið góða og lýsigullið góða, sem kóngur hafi mist hérna um árið. Kóngur biður hann að minnast ekki á það. Rauður spyr, hvort kóngi muni ekki lítast sama og sér. Kóngur spyr, hvað það sé. Rauður segist sjá, að Hringur sé afbragðsmaður, og halda, að honum vinnist alt; hafi sér því komið til hugar, að ráða kóngi að biðja h.ann að leita upp þessa dýrgripi og vera kominn með þá fyrir jólin. Skuli hann lofa honum dóttur sinni í staðinn. Kóngur segir, sér þyki í alla staði ósæmilegt fyrir sig, að inna að slíku við Hring, þegar hann geti ekki vísað honum til þeirra. Rauður lætur sem hann heyri ekki undanfærslu kóngs, en telur sífelt um fyrir honum, þangað til kóngur lætur að orðum hans. Pegar mánuður var til jóla, þá var það einn dag, að kóngur kemur að máli við Hring, og segist ætla að biðja hann stórrar bónar. Hringur spyr, hver hún sé. Kóngur segir: »Hún er sú, að sækja fyrir mig gullskikkjuna mína góðu, gulltaflið mitt góða og lýsigullið mitt góða, sem stolið var frá mér hérna um árið. Ef þú getur fært mér þetta fyrir jólin, skal ég gefa þér dóttur mína«. Hringur mælti: »Hvar ætti ég helzt að leita?« Kóngur mælti: »Pú verður að segja þér það sjálfur, því ég veit það ekki«. Hringur gengur nú burt frá kóngi, og er hljóður í skapi, því hann þóttist í vanda staddur, en þótti þó á hinn bóginn ágætt að eiga von á kóngsdóttur. Snati sér nú, að húsbóndi hans er

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.