Alþýðublaðið - 30.09.1964, Síða 1
44. árj>:. - Miffvikudagur 30. september 1984 - 222. tbl.
GÓÐ SALA
HVALFELLS
Reykjavik 29. sept. GO.
ÞRÍR Reykjavíkurtogarar seldu
afla sinn erlendis í gær og í dag,
Ingólfur Arnarson seldi í Cuxhav
en í gær, 149 tonn fyrir 126,600
mörk, Ilallveig Fróðadóttir í dag
á sama stað, 105 tonn fyrir 87,
000 mörk og Hvalfell í Bremerhav
en í dag 139 tonn fyrir 136.000
mörk. Sala Hvalfells er mjög góð,
enda var skipið með miklið af
ufsa og ýsu, sem hvort tveggja
er góður sölufiskur á Þýzkalands
markaði. Meðalverð á kg. hefur
því verið um kr. 10.50.
Gottfred Bern■
höft látirm
GOTTFRED Bernhöft, stórkaup-
tnaður er látinn. Hann lézt s.l.
oótt úr hjartasiagi. Þessi kunni
horgari fæddist 12. janúar 1905
•g hefur stundað kaupsýslu í
Reykjavík í tugi ára.
Löndunarbiö
er nú eystra
Reykjavík 29. sept. GO.
NÚ er víðast að skapast löndun
arbið eystra, enda verið landburð
ur undanfarna sóiarhringa. Helzt
er nú pláss í verksmiðjunum á
Bakkafirði og Vopnafirði og lítils
hátta á Borgarfirði, en skipin fara
ógjarna svo langt norður eftir með
afiann. Lokið mun þó við ad losa
úr flestum þeim skipum sem fengu
veiði í fyrrínótt, en útlit er fyr-
ir að þau skip, sem fengu veiði í
nótt, verði að bíða til morguns
eítir löndun, a.m.k. sum hver.
Eitthvað af skipum, sem voru
hætt veiðum, eru nú að tínast
austur aftur. Vitað er um nokkra
Reykjavíkur- og Vestmannaeyja
báta og í hádegisútvarpinu í dag
var auglýst eftir hásetum á Mar
gréti frá Siglufirði, sem fara mun
austur og halda veiðum áfram.
Síðan klukkan 7 í gærmorgun
til jafnlengdar í morgun tilkynntu
12 skip um afla sinn, samtals 13,
800 tunnur og mál. Þau voru
þessi:
Framhald á 13; síðu
ANDRITIN
YRSTA
BANSKA Þ_____________________
Búizt við nýjum átökum Frumvarp í næstu viku
(Kaupmannahöfn, sept. NTB).
EITT af fyrstu málunum, sem nýkjörið þing í Danmörku mun taka afstöðu
til, er afhending mikils hluta norrænu handritanna úr safni Árna Magnússon-
ar og Konungsbókhlöðunni til Háskóla íslands. Þar með mun blossa upp á ný
harðvítug deila milli vísindamanna og danskra stjórnmálamanna, og óbeint
mun Noregur einnig dragast inn í þær deilur.
SLÁTRA 7-8
ÞÚS. FJÁR
Hólmavík, 29. sept. . JA - HP
VEÐUR er nú sæmilegt hér um
slóðir og hefur það verið svo und-
anfarna viku. Slátrun hófst fyrir
háifum mánuði og lýkur um 10.
okt. Slátrað er á einum stað, — hjá
Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, en
þar verður sennilega slátrað sam-
tals milli 7 og 8 þús. fjár. Aðrar
göngur eru enn eftir, en verða að
líkindum um aðra heigi. Heima-
bátar eru á handfæraveiðum og
með net, en afli hefur verið heldur
tregur.
Margir í Danmörku halda því
fram, að Norðmenn muni bera
fram svipaðar kröfur um afhend-
ingu handrita, fái íslendingar siun
hluta handritanna afhentan.
í raun og veru hafði þingið, sem
áður sat, samþykkt með 110 at-
kvæðum gegn 39 að afhenda ís-
lendingum handritin, en lögin um
þetta öðlast þó ekki gildi fyrr en
nýkjörið þing hefur samþykkt þau
að nýju. Er það af þeim sökum, að
þriðji hluti þingmannanna æskti
þess, að í þessu máli yrði faríð að
ákvæðum stjórnarskrárinnar um
eignaupptökin. Ríkisstjómin leit
ekki svo á, að hér væri um eigna-
upptöku að ræða, en beygði sig
samt fyrir kröfu þingsins.
Hinn nýi fræðslumálaráðherra
Danmerkur K. B. Andersen býst
við að lögin muni lögð fram 7.
október, óbreytt með öllu. Verði
lögunum breytt, getur þriðji hluti
þingmanna krafizt þess að höfð
verði sama málsmeðferð og áður,
þ. e. a. s. að Iögin öðlist ekki gildi
fyrr en annað þing liefur um þau
fjallað.
Bent er á, að það flýti fyrir fram
kvæmdum dönsku stjórnarinnar í
málinu, að næsti fundur Norður-
Iandaráðs verði haldinn í Reykja-
vík í febrúar. í Reykjavík hefur
þegar verið komið á fót stofnun,
sem taka skal við handritunum, og
er prófessor Einar Ólafur Sveins-
son forstöðumaður hennar.
Verði afhending handritanna
samþykkt á ný, eins og allt bend-
ir til, mun málinu líklega ekki þar
Kramh a bi,- 4
Varð á milli
í kjöthamri
Á ÞRIÐJUDAGINN Vildi það
slys til í verzluninni Hlíð.akjör,
að 18 ára gömul stúlka varð á
milli í kjöthamri með þeim afleið
ingum að liún slasaðist mikið á
hendi. Ekki var hægt að losa hend
ina úr hamrinum fyrr en Uamar-
inn hafði verið sagaður af.
SAIGON, 29. sept. (NTB-Rb.)
Nguyen Khan hershöfðingi
sagði í Saigon í dag, að hugsanlegt
væri að hann segði af sér sem for-
sætisráðherra innan tveggja mán-
aða.
Svör viö spurningum
................. i sammggganB
um morðið á Kenne
SÍÐAN Kennedy forseti var
myrtur í Dallas, hafa komið fram
margar og ólikar skýringar á
morðinu. í fyrstu héldu sumir,
að Sovétríkin eða öllu frekar
Castro stæðu á bak við morðið.
Aðrir töldu frá upphafi að það
væri samsæri öfgamanna til
hægri, og margt var nefnt til
þar á milli.
Fyrir utan slíkar tilgátur hefur
verið á kreiki margs konar orð-
rómur, kviksögur breiddar út,
efasemdum um eitt eða annað
verið haldið lifandi. Og síðast en
ekki sízt má nefna heiðarlegar
vanga veltur fólks, sem fannst
hinar opinberu skýringar ekki
trúlegar.
Eftir skýrslu Warren nefndar-
innar virðast þessar efasemdir
enn koma fram og eiga án efa
eftir að verða lífseigar. En
nefndin reyndi að rannsaka
hverja bugmynd, hvern orðróm,
hverja efasemd. í sérstökum
kafla fjallar nefndin um þessi
mál og leggur fram niðurstöður
sínar.
Alþýðubiaðið telur fróðlegt að
flytja einmitt þennan knfla
skýrslunnar í heild. Birtist fyrsti
hlutinn í blaðinu i dag, en fram
hald verður næstu tvo daga.
Þarna er hinum fræga Buchanan
svarað og öðrum af hans sauðar
húsi. Lesendur geta dæmt um
sjálfir hverjum þeir vilja trúa.