Alþýðublaðið - 30.09.1964, Qupperneq 2
Jftltstjóran Gylíi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. - Fréttastjóri:
Arni Gunnarsson. — Ritstjórnarfuiltrúi: EiBur GuBnason. — Símar:
14900-14903. — Augiýsingasími: 14906. — Aðsetur: AlþýBuhúsið viB
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Askriftargjald
kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintaklð. — (Jtgefandi: Alþýðuflokkurinn.
WARREN
NÆSTA vor verða hundrað ár liðin frá morði
Abraham Lincolns Bandaríkjaforseta. Segir svo á
-einum stað í Warren-skýrslunni, að enn í dag megi
sjá settar á prerit alrangar hugmyndir um morð
Lincolns og fullyrðingar varðandi það, sem ekki
standist.
Það er rétt hjá Warren-nefndinni, að þjóðsög-
ur myndast . jafnan um söguleg mannvíg. Nú eru
þjóðsögur oft ódrepandi. Þess vegna kemur eng-
'um á óvart, þótt ýmsar efasemdir heyrist enn um
anorð Kennedys fyrir tæplega ári. Warren minriir
á, að síðfundinn sannleikur eigi oft erfitt með að
hlaupa uppi lyg^r æsifréttanna.
Hvað sem öllu þessu líður, hefur skýrslu
Warrens verið vel tekið, enda virðist hún unnin
af mikilli nákvæmni og án allra hleypidóma.
Mannkynið getur eftir aðstæðum unað vel við, að
hér var ekki um pólitískt samsæri að ræða, þar
sem slíkt hefði haft alvarlegar afleiðingar. Kenne-
dy hafði sjálfur orð á, að auðvelt væri að myrða
forseta, ef vilji væri fyrir hendi. Sem betur fer
er nú minna um pólitísk morð þjóðhöfðingja en
áður, en geðbilaðir menn eða rótlausir einstakl-
ingar í ósátt við tilveruna verða vafalaust lengi til.
Frá þeim stafar nú helzt hætta á þessu sviði.
SELFOSS
NÝJU VEGALÖGIN, sem Alþingi samþykkti
í vetur, gerðu ráð fyrir miklum stuðningi ríkisins
við varanlega gatnagerð í bæjum og kauptúnum.
Sérstök ákvæði voru um fámenn byggðarlög, þar
sem fjölfarnar umferðaæðar liggja um byg'gðina.
Nú eru hafnar stórfelldar malbikunarfram-
kvæmdir ó Selfossi, og munu þær breyta miðbæn-
■ um þar til muna. Er það jafn ánægjulegt fyrir íbúa
þessa myndarlega byggðarlags og þær þúsundir
annarra, sem eiga leið um Selfoss. Þetta er ánægju
legur vottur um þýðingu hinna nýju vegalaga og
vonandi aðeins byrjun á því gagni, sem af þcim
: verður í framtíðinni.
KEFLAVÍK
ÞAÐ ER ánægjulegt, þegar unga fólkið í hin-
um ýmsu byggðum landsins fær aukinn áhuga á
íþróttum og kemst að raun um, að það getur stað-
izt hverja raun í keppni <við aðra, jafnvel hina
stóru Reykjavík.
Nú hafa Keflvíkingar orðið íslandsmeistarar
í knattspyrnu í fyrsta sinn. Hefur þessi viðburður
vakið mikinn fögnuð heima fyrir og verður án efa
til þess, að áhugi unga fólksins vex enn og yfir-
völd gera meira átak en nokkru sinni til að skapa
góða aðstöðu til íþróttaiðkana.
Alþýðublaðið óskar Keflvíkmgum til ham-
ingju með þennan glæsilega sigur!
Hentugiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiu
HUSGÖGN
HIBYLAPRYÐI H.F.
* SÍMI 38177 Á
uiiiiuiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiMiiiiuiiiuiuuiiimiiiiiiiiiiiiimiiiuiiiiiiiiiiimmmiii i n iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii«i»
f ^ Getum viS hjálpað Indverjum?
-*• Þeir Kunna ekkert til fiskveiða.
Megum við missa menn til aS kenna þeim?
* BjóSum ungum Indverjum skipsrúm.
miimii imiM>ii •liimiimiiniiiiiiiiiiiimiiiíiiimmimiiiiimmmimiHm'iiimuiiiiiimmmmmimmmiiMimiff
GUÐMUNDUR JÓNSSON hef-
tir skrifað mér og gerir að um-
talsefni forystugrein liér í blað-
inu þar sem rætt var um að við
gætum aðstoðað Indverýa tii þess
að þeir gætu hafið virkar fisk-
veiðar til bjargar sér, en þar eru
hungursneyðir svo að isegja land-
lægar, en hins vegar kunna þeir
sáralítið að afla sér fiskjar eða að
vinna hann og nýta.
ÉG MAN EKKI BETUR en að
nokkrir íslenzkir skipstjórar hafi
einmitt dvalizt meðal Indverja að
tilhlutan Sameinuðu þjóðanna til
þess að kenna þeim eitthvað á
þessu sviði, en Indland er stórt
og þjóðin fjölmenn svo að kennsl-
an hefur kannski lítinn árangur
borið enn sem komið er. Giið-
mundi finnst að ekki komi til
mála að við hefjum útflutning á
fóiki til Indlands í þessum til-
gangi, enda erfiðleikar miklir hjá
okkur á vinnumarkaðinum. Hins
vegar leggur hann til, að við bjóð
um að taka Indverja á fiskiskip
okkar svo að þeir geti lært af eig-
in raun. Þykir mér það athyglis-
verð tillaga.
GUÐMUNDUR Jónsson skrif-
ar: „Ég skrifa þér ekki oft, Hann
es minn. Oftast er ég þakklátur
fyrir pistla þína sem jafnan hafa
orðið til vakningar á ýmsum svið
um. Ég varð satt að segja liálf
undrandi eftir lestur leiðarans í
blaðinu okkar föstudaginn 18. þ.
m. Hann ber yfirskriftina: „Hjálp
um índverjum.
ÉG ER FYLGJANDI því, að við
reynum að hjálpa þeim sem hjálp
ar þurfa, eftir því sem við erum
megnugir, og tel það raunar sjálf
sagt. Satt er það að við eigum mik
ið af vel kunnandj fólki til sjós
og lands, — en sannariega erum
við ekki aflögufærir til annara
þjóða á því sviði. Skip eru bund-
in við landfestar af mannleysi.
Fiskiðjuver anna vart og stundum
alls ekki því sem að berst vegna
Skorts á vinnuafli. Flestar starfs-
greinar auglýsa svo að segja dag
lega eftir fólki til starfa.
VEGNA ÞESSA VIL ég spyrja:
„Úr hvaða starfsgrein t.d. sjávar-
útvegsins sem er fjárhagsgrunnur
þjóðfélagsins, — erum við aflögu
færir íslendingar, og þá í þeim
mæli sem Indverjum og öðrum
álíka stórþjóðum, væri til nokk-
urs framdráttar á atvinnusvið-
inu? Ég lít svo á að við séum eins
og stendur þannig staddir, ég segi
sem betur fer, atvinnulega, að við
getum ekki lánað stórþjóðum fólk,
enda þótt þær hafi þess fulla
þörf, og æskilegt kynnj að vera
að vera þessu umkominn. — Enda
ekki langt síðan við urðum að
flytja inn vinnuafl, og g^rum
raunar enn.
EN VIÐ GETUM lijálpað Ind-
verjum á annan hátt, heldur en
hefja útflutning þangað á ungu
fólki í þeim mæli er að gagni
kæmi — slíkri stóriðju. Við eig-
um að bjóða þeim að taka við
fólki frá þeim (þar er nóg af því)
og kenna því aðferðir okkar tii
sjós og lands varðandi sjávaraf-
urðir. Þeir liafa helzt til margt
fólk, og við helzt til fátt. Mér virð
ist að þetta gætj verið Það hag-
kvæmasta sem hægt væri að gera
í þesum efnum. Þrátt fyrir góðan
vilja til aðstoðar'sem þessarar, sð
ég ekki að við séum aflögufærir f
dag“.
Hannes á horninu. ■ í
'16250 VINNINGAR!
#
Fjórði hyer miði vinnur að meðaltaíil
Hsestu vinningar 1/2-milljón kronuft
Lægstu 1000 krónur.
Öregið 5. hvers mánaðar.
U 30. sept. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ