Alþýðublaðið - 30.09.1964, Síða 6
AUGUN ERU SPEG-
ILE SALARINNAR
AUGUN eru spegill sálarinnar,
Segir einhvers staðar, — og allir
hafa víst reynzluna af því, að sjá
má af tilliti manna, hvern hug
þeir bera til náungans. — Ýmis-
íegt af því fornkveðna þykja nú
kerlingabækur einar, en margt er
fneira í því sem hinir gömlu kváðu,
én grunnhyggnir nútímamenn
halda. ,
Vísindamenn við Chicago-há-
sköia hafa nú gert þá uppgötvun,
að augasteinninn stækkar, þegar
- Við hoi-fum á einhvern, sem okkur
geðjast að, — en dregst saman,
þegar við beinum augum okkar að
einhverjum, sem okkur fe21ur
ekki í geð.
Frá þessum niðurstöðum var
skýrt á sálfræðingaþingi í Los
Angeles nýlega. Prófessorinn, sem
skýrði frá þessari uppgötvun,
sagði, að þessi samdráttur og út-
víkkun væri ólíkt og annars eðlis,
— en þegar svipað gerist i birtu
og myrkri. Þessum hreyfingum
væri stjórnað af mismunandi
taugastöðvum.
Prófessorinn gerði tilraunir
með 34 stúdenta. Hann spurði þá
fyrst, hvort þeir væru fylgjendur
Johnsons eða Goldwaters, sýndi
þeim síðan myndir af frambjóð-
endunum og þá kom í Ijós, að
þriðjungur stúdentanna hafði logið
Þessi uppgötvun getur haft mik
ig gildi við yfirheyrslur og ann-
að slíkt, — þegar miklu varðar að
komast að hinu sanna í einhverju
máli.
Jafnframt staðhæfði prófessor
inn, að útvíkkunin væri mismun-
andi mikil. Augasteinninn stækk-
ar ekki nema um 4-5%, þegar
menn sjá eftirlætisstjórnmála
mann sinn, en um 41% þegar
glæsilegur fulltrúi veika kynsins
ber fyrir augu karlmanna.
BAK VIÐ TJÖLDIN
Danmörk: Hreinasta paradís.
Líklega hefur maðurinn ekkl
komið til íslands, — en ef til vill
mundi umsögnin hljóða á þessa
leið.
ísland: Aldingarðurinn Eden!
★ í IVÍoskvu er sérlsttijk ljóða-
búð, sem er mjög- vinsæl einkum
meðal ungá fólksins. Þarna fást
Uóð yfir þusund skálda sovézkra
og erlendra, og þarna er efnt til
stefnumóta ljóðaunnenda og Ijóð-
skálda. Skáldin standa oft sjálf á
bak við búðarborðið og selja verk
sín, skrifa nöfn sín á bækur þeirra
sem þess óska og gefa nýgræðing-
um góð r áð.
★ SÆNSKA hirðin gaf út opin-
bera yfirlýsingu á dögunum þess
efnis, að Karl Gustaf krónprins
Svíþjóðar hefði ekki tekið þátt í
því að kaffæra franska ljósmynd-
ara í Aþenu á dögunum. í yfirlýs-
ingunni sagði: „Karl Gustaf krón-
prins var ekkj nærstaddur, þegar
þetta gerðist". Krónprins Sviþjóð
ar er nú 18 ára að aldri.
JyL
★ Bókaútgáfufyrirtæki eitt í
New York hefur gefið út mat-
. reiðslubók með 90 uppskriftum að
hundamat.
★—★
★ EFTIK margra ára strit og
stapp hlaut hann orðu fyrir starf
sitt í verksmiðjunni. Að ajálfsögðu
komu blaðamenn og höfðu viðtal
við hann:
— Hvað eruð þér gamall?
— Sextugur.
—Og hvað iengi hafið þér nú
unnið hér?
— 65 ár.
— Já, — en það er alsendis ó-
mögulegt.
— Nú, — ég reikna yfirvinnuna
með!
★—★
★ B'REZKI blaðamaðurinn Art-
hur Eperon, sem víða hefur verið,
gaf nýlega út eins konar leiðar-
vísi um aðstöðu kvenna til daðurs
í hinum ýmsu Evrópulöndum. Hér
eru glefsur úr bæklingnum:
Frakkiand: Konurnar hugsa ekki
aðeins um hjónabandið heldur
einnig og ekki síður bankabókina.
ttalía: Leiðin til altaris er óhugn
anlega stutt. Gætið ykkar!
Spánn: Daður er útilokað. Jafn-
vel þótt hringur sé kominn á hend
ina skal gæta fyllztu varkárni.
Það á alltaf einhver hnif í ættinni.
Þýzkaiand: Land hinna róman-
tízku kvenna.
Þessar þrjár ungmeyjar sýndu nýmóðins höfuðföt á tízkusýningu í London nýlega.
kvæmt, — ef eiginmaðurinn á gamla enska derhúfu!
Oneitanlega hag-
Danir leyfa allt jboð
sem er skemmtilegt
Allt, sem er skemmtilegt, er
leyfilegt í Danmörku. Svo segir í
stærsta vikublaði Vestur-Þýzka-
lands, STERN, sem kemur út í
nærri tveim milljónum eintaka.
Efnisyfirlitinu fylgir mynd af
dönskum hjónaleysum, en myndin
er helmingi stærri en mynd af
Liibke forseta, Erhard sambands-
kanzlara, Willy Brandt borgar-
stjóra og Konrad Adenauer til
samans. Og textinn með dönsku
myndinni er svohljóðandi:
í Danmörku hefst blóma-
skeið ástarinnar snemma. Engum
finnst það athugavert, — þvert á
móti. Uppeldisfræðingar og lækn
ar reyna í þess stað að kenna
börnum, h.vernig bezt sé að kom-
ast hjá óasskilegum afleiðingum.
Inni í blaðinu eru sex síður
með myndum af dönskum stúlk-
um undir fyrirsögninni: ,,Kyn-
þokki um fermingu, — ástin fyrst
yfir tvítugt." Og myndatextarnir
eru í þessum stíl: Smjör og
kex er afdrifaríkast fyrir örlög
Danmerkur", „Litla, ríka þjóðin
liéfúr engár áhyggjur". „Ástin er
orðin að leikfangi". ,Allir ung-
lingar hafa peninga handa á milli
í velferðarríkinu Danmörku“.
Inni í blaðinu eru ennfremur
viðtöl við danska rithöfunda,
lækna, presta og sálfræðinga tun
álit þeirra á danskri æsku. Land-
inu er lýst á þann veg, að þar
verði yfir >8000 ógiftar stúlkur
mæður árlega, en ríkið sjái vel
fyrir þeim, — þær getj fengið vist
á. sérstökum stofnunum fyrir um
1000 kr. (ísl.) á mánuði, og börn-
unum sé komið fyrir á barnaheim-
ilum fyrir tæpar 200 kr. (ísl.) ó
Iviku, á meðan móðirin vinpur úti.
Edel Saunte borgarstjóri er
: spurður um ástandið, og að því
! er blaðið segir, telur hann, að hið
opinbera verði að taka afleiðing
unum af afstöðu æskunnar.
Niðurstaða þýzka vikublaðsins
, er, að Danmörk sé paradís æsku-
| fólks, og birt eru viðtöl við marga
| unglinga á aldrinum 46-20 ára, —
alla nafngreinda. Ein úr þeirra
hópi, sem er af ríku foreldri í
JCaupmannahöfn segir svo í blað-
j inu:
! — Við höfum einskis frekar að
óska. Sjáið þér til. Kannski hef
ég meiri peningaráð en aðrar
stúlkur á minum aldri vegna þess,
| að foreldrar mínir eru ríkir. En
i hvað á ég að gera með þessa
■ peninga? Það eru ekki „betri“
:skólar“, ekki „betri sjúkrahús" og
ekki „betri elliheimili“ fyrir ríkt
fólk í landi okkar.
STERN klykkir út með þessu:
— Danskir unglingar tala svo
hreinskilnislega og sjálfstætt um
ástalíf sitt, að manni verður um
og ó.
Danskt blað sagði frá þessum
greinarskrifum þýzka blaðsins fyr
ir skömmu, — og Dönum var aug-
ljóslega líka um og ó yfir lestr-
inum.
'★ ÍTALSKA skipið Etna, sem er
10900 lestir að stærð, ér á leið til
Tókíó með vistir handa ítölsku
íþróttaköppunum, sem taka munu
þátt I Olympíuleikunum í Japan.
Að sjálfsögðu eru vistirnar að
drýgstum hluta spaghetti (makka-
rónur). 600 manna áhöfn er á skip
inu, — en gert er ráð fyrir, að
Etna komi til Jokohama, liafnar
horgar Tókíó 4. október.
★—★
★ SAGT er, að í Mondoro Orien
tal héraðinu á Filippseyjum verði
sérhver verkamaður að geta sýnt
fimm rottuhala, áður en hann fær
útborguð mánaðarlaunin. Þetta er
liður í baráttunni gegn rottugang
ingum þarna í héraðinu, segir í
blöðum frá Manilla.
★ FLOKKUR „bitnikka" hreiðr
aði um sig í húsi einu, sem Elísa-
bet Englandsdrottning á í lijarta
Londonar. Síðliærðir piltar og
stúlkur í níöþröngum síðbuxum
gerðu sig heimakomiu í liúsinu,
þar sem margir dýrlegir kvöld-
verðir voru lialdnir fyrir fyrir-
fólk heimsins á fyrri öld.
Unglingarnir höfðu nefniiega
komizt á snoðir um, að húsið stóð
autt og þótti þá ekkert sjálfsagð-
ara en að nota húsaskjólið. Eins
og fyrr segir, batt lögreglan skjót-
an endi á dýrðina.
★—★ :
★ FRANK Sinatra hefur neyðst
til að afþakka tilboð, sem honum
hafa borizt um kvikmyndaleik og
söng. Sjarmaknippið er nefnilega
slæmur á taugum og á að gang-
ast undir ýtarlega læknisrann-
sókn í haust.
$ 30. sept. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ