Alþýðublaðið - 30.09.1964, Page 8
ÞJÓÐSÖGUR hafa ávallt myndazt um hin örlagaríku
morð sögunnar. Orðrómur og sögusagnir um morð
Abraham Lincolns, sem enn birtast, urðu að mestu
leyti til fyrstu mánuði eftir dauða hans. Sé nokkuð
dularfullt við slíka örlagaatburði, stafar misskilningur
oft frá æsifréttum og hugarburði.
Þar eð vitnisburð Lee Harvey
Oswalds vantaði, hefur reynzt
nauðsynlegt að endursegja ná-
kvæmlega allar þær staðreyndir,
sem leiddu nefndina til þeirrar
niffurstöðu, að Oswald hefði myrt
Kennedy forseta, gert það einn
og án ráða eða aðstoðar. Nefnd-
. in hefur ekki fundið neinar gild-
.|ar líkur fyrir því, að hann hafi
Verið þátttakandi í neins konar
samsæri, erlendu eða innlendu.
lEkki fundust heldur neinar sann-
. anir fyrir því, að hann hefði neitt
aamband við neinn glæpamann
eða aðila í glæpaheiminum eða
að hann hafi neitt samband haft
við morðingja sinn, Jaek Ruby,
nema sem fórnardýr hans. Allar
upplýsingar um þessi atriði hafa
verið raktar mjög ýtarlega í skýrsl
junni.
Nefndin hefur að auki athugað
ihinar ýmsu tilgátur, orðróm og
vangaveltur, sem hafa til orðið
vegna hinna sorglegu atburða 22,-
Í24. nóvember 1963. Er viðurkennt
að almannadómur um atburðina
hefur að minnsta kosti að nokkru
íeyti orðið fyrir áhrifum þessara
sögusagna.
t Margt hefur verið spurt um
■varðandi staðreyndir málsins af
einlægri undrun eða vegna rangra
upplýsinga, sem fram komu í sum-
um fyrstu fréttunum vegna hraða
viðburða þessa þrjá daga. Mest-
allur orðrómur og mestallar til-
raunir almennings til að gera sér
grein fyrir viðburðum þessum
snérust um þessar höfuðspurning-
ar: Var Lee Harvey Oswald hinn
raunverulegi morðingi forsetans?
Hvers vegna framdi hann morð-
ið? Hafði hann nokkra samverka-
menn? Og hvers vegna skaut Ruby
Oswald? Margar þær hugmyndir
og tilgátur, sem fram hafa komið,
hafa byggzt á grundvelli, sem
nefndin hefur talið verðskulda
gagngerða rannsókn.
Margt það fólk, sem var við-
statt forsetamorðið og dráp Os-
walds eða var í næsta nágrenni,
hefur átt upptök að ólíkum og
oft andstæðum upplýsingum. Eins
og við má búast við slikar að-
stæður, sáu mörg þessara vitna
eða heyrðu ekki það sama, eða
túlkuðu ekki á sama hátt það,
sem þau sáu eða heyrðu, og mörg
breyttu frásögnum sínum, þegar
þau endurtóku þær. Að auki voru
vitnin yfirheyrð af ólíkum aðilum
á óiíkum tímum við aðstæður,
sem gerðu nákvæma frásögn mjög
erfiða.
Jafnvel það fólk, sem var í bif-
reiðum í fylgd forsetans, var ekki
allt sammála í frásögnum sín-
um, því að það sá líka allt og
heyrði frá ólíkum sjónarhólum.
Að auki varð það fólk, sem næst
varð morðinu, fyrir andlegri og
líkamlegri áreynslu, sem hafði tií-
hneigingu til áhrifa á það, sem
fólkið taldi sig hafa séð og heyrt.
Af öllum þessum sökum var mik-
ið af röngum upplýsingum í þeim
fregnum, sem bárust frá Dallas.
Að nokkru leyti var þetta óhjá-
kvæmilegt, en hin mikla og end-
urtekna útbreiðsla jafnvel á
minnstu fréttum af morði forset-
ans hefur stuðlað að miklum fjölda
rangra ályktana. Þá hefur það enn
aukið á fjölda órökstuddra hug-
mynda, hvernig yfirvöld borgar-
innar létu frá sér fara upplýsing-
ar um rannsóknina, jafnvel áður
en unnt var að reyna sannleiks-
gildi þeirra. Prentvillur og mis-
tök í segulbandsupptökum hafa
valdið skekkjum, og sumar þeirra
hafa verið prentaðár án leiðrétt-
ingar allt til birtingar þessarar
skýrslu.
Mikið af tilgátum þeim, sem
verið hafa á kreiki síðan 22.-24.
nóvember, hafa verið settar fram
af fólki, sem venjulega talaði í
góðri trú. Sumar skekkjur hafa
einfaldlega stafað af ófullkom-
inni þekkingu á viðburðunum. í
þeim flokki eru yfirlýsingar lækn-
anna við Parkland sjúkrahúsið, en
þeir voru við dánarbeð forset-
ans og lýstu sárum hans fyrir
blaðamönnum á eftir. Staðreynd-
ir varðandi • sárin komu ekki: í
Ijós fyrr en við krufningu, sem
lokið var fyrir næsta morgun. Nú
er það eðlilegur þáttur í rann-
sóknum að leiðrétta fyrri fullyrð-
ingar um staðreyndir á grundvelli
síðari og fyllri athugunar. En þáð
er ekki oft, sem slík rannsókn
fer fram í hinu sterka ljósi heims
8 30. sept. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
frétta, og leiðréttingar, sem síðar
•koma fram, eiga erfitt með að
hlaupa uppi hinar upphaflegu
æsifréttir.
Til er enn einn þáttur tilgátu
og orðróms, sem gerði verk nefnd-
arinnar flóknara og umsvifameira.
Allmargt fólk þóttist hafa séð Os-
wald eða Ruby á ýmsum stöðum
og ýmsum tíma í Bandaríkjunum
eða erlendis. Aðrir þóttust hafa
séð í sjónvarpi næstu daga eftir
morðið ýmis mikilsverð atvik.sem
enginn annar hefði tekið eftir.
Enn aðrir héldu vegna myhdar,
sem víða var birt, að Oswald hefði
verið á tröppum Skólabókageymslu
Texas, þegar forsetinn var skot-
inn. Um allt land skýrði fólk frá
orðum, sem það hafði heyrt, sam-
tölum, ógnunum, spádómum og
skoðunum, sem því virtist hafa
einhverja þýðingu í sambandi við
morðið. Margt fólk sagði blöðum
eða sjónvarpi fyrst frá hugmynd-
um símim eða „upplýsingum frá
fyrstu hendi.“ Ýmsir breyttu frá-
sögnum sínum síðar, þegar þeir
voru yfirheyrðir af opinberum
rannsóknaraðilum,
Rannsóknarstofnanir Banda-
ríkjanna eyddu miklum tíma í að
athuga slík vitni. Rannsóknin á
miklum fjölda sögusagna og til-
gátna náði til nálega allra lands-
hluta í Bandaríkjunum og flestra
hinna meginlandanna.
Starf nefndarinnar var einnig
torveldað af vitnum og öðrum,
sem vöru riðnir við rannsóknina,
en seldu til birtingar upplýsing-
ar, er snertu málið. Þetta fólk
seldi stundum myndir og skjöl,
stundum endurminningar, oft áð-
ur en nefndin hafði tækifæri til
að yfirheyra það. Sumu af þeim
upplýsingum, sem var þannig birt,
var breytt frá upphaflegri mynd
og veittu þær almenningi rangar
hugmyndir. Þegar slíkar upplýs-
ingar voru birtar í smáum skömmt
um, oft ýktar eða rifnar úr sam-
hengi, komu þær af stað nýjum
hugarórum og héldu- við lýði
þeim, sem fyrir voru. Þessi starf-
semi olli nefndinni erfiðleikum
og var lítill greiði við almenning.
Þessari grein er ætlað að leið-
rétta útbreiddustu villur varðandi
staðreyndir. Falskar eða óná-
kvæmar tilgátur varðandi inorðið
og skylda atburði eða settar við
hlið yfirlit-s um það, sem nefnd-
in telur vera rétt. Tilgáturnar
eru teknar til meðferðar undir
eftirfarandi fyrirsögnum:
1. Hvaðan komu skotin?
2. Hver var morðinginn?
3. Ferðir Oswalds frá kl. 12.33
til 1:15 hinn 22. nóvember
1963.
4. Morð Tippit lögreglumanns.
5. Oswald eftir handtökuna.
6. Oswald í Sovétríkjunum.
7. Ferð Oswalds til Mexíkó-
borgar.
8. Oswald og amerískar stjórn-
ardeildir.
9. Um þátttöku í samsærum.
10. Ýmsar ákærur.
Hvaðan komu
skotin?
Til eru tilgátur þess efnis,
að sum eða öll þeirra skota, sem
miðað var á Kennedy forseta eða
Conally ríkisstjóra, hafi komið
frá járnbrautarbrúnni, þegar for-
setabifreiðin nálgaðist hana, eða
frá einhverjum öðrum stað en
Skólabókageymslu Texas. Þessar
tilgátur hafa verið studdar með
ýmsum fullyrðingum, sem nefnd-
in hefur athugað vandlega, meðan
á rannsókninni stóð, og hafnað
sem tilhæfulausum. Þessar til-
gátur verða taldar upp hér á eftir
með niðurstöðum nefndarinnar.
Orðrómur: Skotin, sem drápu for
setann, komu frá járnbrautar-
brúnni yfir hinn þrefalda veg.
Niðurstaða. Kúlurnar, sem hittu
háls og höfuð forsetans og
særðu Connally ríkisstjóra,
komu aftan og ofan frá. Ekkert
bendir til þess, að skotið hafi
verið að forsetanum frá nein-
um öðrum stað en Skólabygg-
ingunni.
Orðrómur: Engir verðir voru á
járnbrautarbrúnni 27. nóvem-
ber.
Niðurstaða: Hinn 22. nóvember
voru tveir Dallas lögreglumenn
á verði á járnbrautarbrúnni,
þeir J. W. Foster og J. C. White,
lögregluþjónar. Þeir hafa stað-
fest, að þeir hafi aðeins hleypt
starfsliði járnbrautanna út á
brúna.
OrðrómuriTil eru vitni.sem telja,
að skotin hafi komið frá járn-
brautabrúnni.
Niðurstaða: Nefndin veit ekki um
nein vitni, sem sáu skotum
hleypt af frá brúnni. Framburð-
ur og yfirlýsingar hinna tveggja
lögregluþjóna og þrettán járn-
brautarstarfsmanna, sém voru á
brúnni, staðfesta, að engum
skotum var hleypt af á brúnni.
Flest þessara vitna, sem nefndu
uppruna skotanna, töldu, að þau
hefðu komið frá Elm og Houston
strætum.
Orðrómur: Riffilskothylki fannst
á brúnni.
Niðurstaða-.Ekkert skothylki neins
konar fannst á brúnni og ekkert
vitni hefur gefið sig fram með
upplýsingar um að hafa fundið
skothylki.
Orðrómur: Vitni að morðinu hef-
ur borið, að það hafi séð mann
hlaupa á bak við steinvegg brú-
arinnar og hverfa.
Niðurstaða: Frú Jean L. Hill bar,
að hún hefði eftir að skotunum
linnti séð hvítan mann í brún-
um frakka og með hatt hlaupa
í vesturátt í'rá Bókageymslunni
í áttina til járnbrautarteinanna.
Rannsakaðar voru allar kvikmynd
ir, sem til voru af svæðinu eft-
ir skotin, kannaður hefur verið
á ný vitnisburður einstaklinga,
sem voru í nágrenni við morð-
staðinn, starfsmenn Dallas lög-
reglunnaf' og hreppslögreglunn-
ar, en engin staðfesting fékkst
á framburði frú Hill og eng-
ar upplýsingar fengust um maim-
inn, sem frú Hill lýsti.
Orðrómur: Þegar eftir skotlaríð-
ina sást lögreglumaður af mót-
orhjóli hlaupa upp grasbrekku
til hægri við skotstaðinn, og
veitti hann eftirför manni og:
konu, sem reyndu að flýja a£
brúnni.
Niðurstaða: Engin vitni hafa
nokkru sinni haldið þessu fram
og ekkert styður þennan frám-
burð. Lögregluþjónn, Clyde A.
Haygood, steig af mótorhjól! á
götunni og liljóp upp brekkuna.
Hann bar, að hann hefði engan
séð hlaupa af brúnni. Síðar, kl.
12:37 síðdegis gaf hann skýrslu
um að skotin hefðu komið frá
Skólabókageymslu Texas.
Orðrómur: Skotið var á forset-
ann og Conally ríkisstjóra fleiri
en þrem kúlum, ef til vill fimm
eða sex.
Niðurstaða: Allur þorri upplýs-
inga bendir til þess, að þrem
kúlum hafi verið skotið, en af
þeim hittu tvær Kennedy forseta.
Sérfræðingar hafa borið fram
sannfærandi skoðanir þess efn-
is, að eitt þessara tveggja skota
hafi einnig komið í Conally rík-
isstjóra. Nokkur vitni töldu sig
heyra fleiri en þrjú skot, en
mikill meirihluti þeirra heyrði
aðeins þrjú skot.
Orðrómur: Að minnsta kosti fjór-
ar eða fimm kúlur hafa fundizt.
Niðurstaða: Eftir morðið fundust
málmleifar af kúlum. Meðal
þeirra var næstum heil kúla, —
158,6 „grain” (0,065 grömm hvert
Byssan, sem Oswald framdi
ódæðið með.