Alþýðublaðið - 30.09.1964, Page 9
M MOBÐ KENNEDYS
grain), brot að þunga 44,6 grain
-og 21,0 grains og enn önnur brot
of lítil til að hægt sé að telja
þau. Þessar málmleifar benda til,
að ekki færri en tveim kúlum
hafi verið hleypt af. Nefndin
telur, að þremur kúlum hafi
verið skotið.
Orðrómur: Kúla fannst á börum
þeim, sem Kennedy forseti not-
aði í Parkland sjúkrahúsinu.
Niðurstaða: Engin kúla fannst á
börunum, sem Kennedy forseti
notaði. Næstum heil kúla fannst,
þegar hún valt út af börunum,
sem Conally ríkisstjóri lá á.
Örðrómur: Aðstoðarlögreglustjóri
Dallashrepps, E. R. Walthers,
fann kúlu í grasi nærri morð-
staðnum skömmu síðar.
Niðurstaða: Walthers hefur neit-
að, að hann hafi nokkra kúlu
fundið eða sagt nokkrum manni,
að hann hefði fundið kúlu. Hann
gerði vandlega leit að slíkri kúlu
með öðrum aðstoðar-lögreglu-
stjóra 2 eða 3 dogum eftir morð-
íð.
Orðrómur: Bifreið forsetans
stöðvaðist andartak eða nálega
stöðvaðist eftir fyrsta skotið.
Þetta bendir til þess, að öku-
manni hafi fundizt skotin koma
að framan og hafi því hikað við
að aka undir brúna.
Nið'urstaða: Bifreið forsetans
stöðvaðist ekki eðá næstum
Stöðvaðist eftir fyrsta skotið eða
neitt annað skot. Ökumaðurinn
William R. Greer, hefur borið,
ati hann hafi aukið hraðann eft-
Sr það, sem var sennilega annað
skotið. Kvikmyndir sýna, að bif-
reiðin hægði ferðina andartak
eftir fyrsta skotið, en jók síðan
ört ferðina.
Orðrómur: Bifreið forsetans
hafði lítið hringlaga gat eftir
byssukúlu á framrúðunni. Þetta
er sönnun þess, að skotið var að
forsetanum framan við bifreið-
ina.
Niðurstaða: Það fór engin byssu-
kúla gegnum framrúðuna. Smó-
brot af blýi fannst innan á gler-
inu, en smásprungur utan á
glerinu þar á móti. Þetta blý
var sennilega frá einni þeirra,
sem hittu forsetann, og hefur
því komið aftan og ofán frá.
Sérfræðingar sýndu fram á, að
sprungurnar í glerinu komu frá
'höggi innan á rúðuna.
Orðrómur: Sárið á hálsi forsetans
stafaði af kúlu, sem skotið var
frantan frá að því er læknar
Parkland sjúkrahússins héldu
fram.
Niðurstaða: Læknar Parklands-
sjúkrahússins héldu í fyrstu, að
.sárið framan á hálsinum gæti
annað hvort stafað af kúlu, sem
fór þar inn eða kom út, en þeir
gerðu enga rannsókn til að skilja
á milli slíkra sára. Síðar, þegar
skýrslan um krufninguna lá fyr-
ir, voru læknarnir á Parkland
sammála því, að það hefði verið
sár, þar sem kúla kom út.
Orðrómur: Það er óhugsandi, að
.dæknarnir á Parkland sjúkrahús-
inu hafi ekki snúið forsetanum
við og tekið eftir kúlusárinu
aftan á hálsi hans.
Niðurstaða: Parkland-læknarnir
hafa staðfest, að forsetinn hafi
legið á bakinu, meðan hann var
til meðferðar þar í sjúkrahúsinu
og þeir hafi ekki snúið honum
við. Þeir voru önnum kafnir við
að reyna að bjarga lífi hans.
Þess vegna urðu þeir ekki varir
við sárið aftan ó hálsi hans,
fyrr en þeim var sagt frá því
síðar.
Orðrómur: Fyrsta kúlan hitti for-
setann í hólsinn, þegar hann ók
eftir Houston stræti í áttina að
Skólabókageymslu Texas. Bif-
reiðin beygði þá til vinstri á Elm-
götu, áður en fleiri kúlum var
skotið á forsetann.
Niðurstaða. Áður en krufning
leiddi í ljós, að skotin komu
aftan frá, voru vangaveltur þess
efnis, að fyrsta skotinu hefði
verið hleypt af, áður en bifreið
forsetans beygði inn á Elmgötu.
Eins og þessi skýrsla ieiðir í
ljós, hittu allar kúlurnar for-
setann aftan frá og á því tíma-
bili, að það getur ekki samræmzt
hugmyndinni um að fyrsta kúlan
hafi hitt, meðan bifreiðin var á
Houston stræti. Kvikmyndir
sýna, að fyrsta kúlan hitti for-
setann eftir að bifreiðin hafi
beygt inn á Elmgötu og ók frá
Bókageymslunni.
Morðinginn
Tilgátur þess efnis, að Os-
Avald hafi ekki getað verið morð-
ingi Kennedys forseta, byggjast
á margvíslegum fullyrðingum. —
Meðal þeirra er sú, að Oswald hafi
ekki getað vitað um leið bifreiða-
lestarinnar, áður en hann kom til
vinnu 22. nóvember, að hann hafi
eins getað haldið á gluggatjalda-
stöngum í pakkanum sem hann
hafði þá með sér, að annað fólk
í byggingunni hafi getað skotið
úr rifflinum, að Oswald hafi ekki
getað skotið á þeim tíma, sem
hann hafði, að hann hafi ekki verið
nógu góð skytta til að hæfa með
rifflinum, að það hafi verið fleira
fólk í matstofu Bókageymslunn-
ar, þegar M. L. Baker lögreglu-
þjónn sá hann, að ekkert vitni
hafi getað borið, að Oswald hafi
sézt í glugganum. Hver þessara
fullyrðinga verður nú rædd í ljósi
þess framburðar og þeirra sönn-
unargagna, sem nefndin fékk til
íhugunar.
Orðrómur: Oswald hefði ekki get-
að þekkt leið bifreiðalestarinnar,
áður en hann kom til vinnu 22.
nóvember.
Niðurstaða: Leið bifreiðarinnar
innar var birt í báðum blöðum
Dallas 19. nóvember og ló því
fyrir að minnsta kosti 72 stund-
um áður en Oswald mætti til
vinnu 22. nóvember.
Orðrómur: Leiðin, sem sýnd var
í blöðunum, var merkt eftir Main
stræti undir járnbrautarbrúna,
götulengd frá Bókageymslunni.
Þess vegna gat Oswald ekki vit-
að, að leiðin mundi liggja fram
hjá Skólabókageymslu Texas.
Niðurstaða: Leiðin, sem birt var
sýndi bifreiðalestina beygja af
Mainstræti um Houston og síð-
an til vinstri á Elmgötu til veg-
arins til Stemmons hraðbrautar-
innar. Þessi leið var greinilega
sýnd í frásögnum og á kortum,
sem birt voru um leiðina. Þar
var ekki minnzt á, að haldið
skyldi áfram eftir Mainstræti til
hins þrefalda vegar undir járn-
brautabrúna.
Orðrómur: Leið bifreiðalestarinn
ar var breytt 22. nóvember eftir
að kortið hafði verið prentað.
Leiðinni var breytt frá Main-
stræti yfir til Elmgötu til að hún
færi fram hjá Skólabókageymslu
Texas.
Niðurstaða: Bifreiðaleiðin var á-
kveðin 18. nóvember og birt 19.
nóvember í Dallas blöðunum.
Leiðinni var ekki breytt eftir
það. Leiðin gerði ráð fyrir, að
bifreiðalestin snéri af Mainstræti
eftir Houston upp að Elmgötu
og beygja þar inn á Elmgötu.
Orðrómur: Eðiilegasta og rökrétt-
asta leiðin hefði verið beint nið-
ur Mainstræti undir brúna inn
á Stemmons hraðbrautina. Það
er unnt að aka frá Mainstræti
yfir á hliðarbraut við Stemm-
ons handan við brúna.
Niðurstaða: Hin eðlilega, beina og
eina leyfilega leið út á Stimm-
°ns hraðbrautina frá Mainstræti
er um Houston og Elmgötu. Til-
raun til að komast yfir á hliðar-
götu Stimmons frá Main handan
við brúna hefði reynzt erfið
vegna vegarbrúnar, sem skiptir
Mainstræti og Elmgötu. Við slíka
tilraun hefði orðið að taka S-
beygju mjög krappa og hefði
bifreið forsetans orðið að hægja
á sér eða því nær stöðvast.
Orðrómur: Vera má, að Oswald
hafi haldið á gluggatjaldastöng-
um í brúnum pappír, sem hann
sást bera inn í bygginguna, þar
eð hann vanhagaði um glugga-
tjöld, þar sem hann bjó.
Niðurstaða: Samkvæmt fram-
burði frú A. C. Johnson, húseig-
anda, sem Oswald bjó hjá á
Norður-Beekleybraut 1026, voru
í herberginu hansagardínur,
gluggatjaldastengur og glugga-
tjöld, þegar Oswald bjó þar. —
Framhald á síðu 10.
í skýrslu Warren-nefndarinnar er kafli, þar sem nefndin
svarar öllum helztu efasemdum, mótbárum, orðrómi, tilgátum
og öðru því, sem fram hefur komið varðandi morð Kennedys
forseta. Hér birtist þessi athyglisverði kafli í heild, og geta
lesendur dæmt sjálfir, hvort þeir trúa Warremnefndinni eða
öðrum. Þetta er spennandi lestur.
Hentugar tækifærisgjafir
Nýkomið fjölbreytt úrval af smekklegum
tækifærisgjöfum frá Danmörku og Finn-
landi.
Kristján Siggeirsson hf.
Laugavegi 13.
... .... ==---=^i
Starfsfólk vantar
Flakara og pökkunarstúlkur vantar í frysti-
húsið Hvammur, Kópavogi. Upplýsingar
í síma 41868 og 36286.
Fólk vantar til frystihússtarfa
FISKUR h.f.
Hafnarfirði. — Sími 50-993.
SENDISVEINN
óskast fyrir hádegi,
HAMPIÐJAN H.F.
Stakkholti 4. — Sími 11600.
Atvinna
Tveir duglegir ungir menn óskast til starfa í máln-
ingarverksmiðju okkar nú þegar.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Siippféíagiö í Reykjavík h.f.
Mýrargötu. — Sími 10123.
Lisfdansskóii
Guðnýjar Péfursdóffur
Reykjavík & Kópavogi
Kennsla hefst 5. október næstkomandi.
Innritun og upplýsingar frá kl. 1—7 daglega í
síma 40-486 — 40-486.
Listdansskóli Guð'nýjar Pétursdóttur.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 30. sept. 1964 9