Alþýðublaðið - 30.09.1964, Síða 10
MORÐ KENNEDYS...
Framhald úr opnu.
Gluggastengurnar í bifbreiðaskúr
Pain l'jölskyldunnar voru eign
frú Paine og voru þar enn eftir
að Oswald fór til vinnu 22. des-
ember. Frú Paine og Marina Os-
wald báru að Oswald hefði ekki
nefnt gluggastengur. Eftir morð-
ið fannst tómur pakkinn skammt
frá glugganum, þar sem skotið
. var. Gluggastengur voru þar
engar.
Orðrómur: Um morguninn 22.
nóvember var Oswáld með sam-
starfsmönnum sínum í húsinu
og skildi ekki við þá fyrr en
S hann fór niður til að sjá forset-
■- ánn fara fram hjá, sennilega
.- lega ekki síðar en kl. 12:15.
y Niðurstaða: Um morguninn var
C Oswald ekki með samstarfs-
mönnum sínum, og fyrir morðið
sást hann síðast uppi á sjöttu
; hæð um kl. 11:55 f. h. Sá sem
sá hann, var Charles Givens,
. samstarfsmaður hans.
Orðrómúr: Mögulegt er, að kjúkl-
ingsleifar, sem fundust á sjöttu
hæð, hafi verið skildar eftir af
manni, sem var í vitorði með
Oswald og sem hefði dvalizt
þarna alla nóttina.
C Niðurstaða: Kjúklingurinn hafði
f verið snæddur af Bonnie Ray
£ Williams, skömmu fyrir hádegi
f 22. nóvember. Williams vann
þarna í húsinu, og fór niður á
C fimmtu hæð, þegar hann hafði
f lokið við að matast. Þar var hann
þegar skotunum var hleypt af.
Oswald borðaði ekki af þessum
kjúklingi, né drakk hann héld-
ur úr gosdrykkjarflöskunni, sem
fannst nálægt leifunum af kjúkl-
ingnum.
5
* Orðrómur: I Ijós kom við prófun
á rannsóknarstofu, að leifarnar
jT af kjúklingnum, sem fannst á
1 sjöttu hæð voru 2 daga gamlar.
Niðurstaða; Það var Bonnie Ray
Williams, sem skildi þessar mat-
arleifar eftir þarna skömmu eft-
ir hádegi 22. nóvember.
Orðrómur:8 millimetra ljósmynd,
sem áhugaljósmyndari tók klukk-
an 12:20, tíu mínútum áður en
morðárásin var framkvæmd,
sýnir tvo skugga bera við glugg-
ann á sjöttu hæð Skólabóka-
geymslunnar.
Niðurstaða: Mynd, sem áhugaljós
myndari, Robert J. E. Hughes,
að nafni, tók örskömmu áður en
morðárásin var framkvæmd,
sýnir skugga í suðausturhorn-
glugganum á sjöttu hæð. í ljós
hefur komið við rannsökn FBI
og í ljósmyndaskýringamiðstöð
flotans, að þetta var skuggi af
kössum í grennd við gluggann.
Orðrómur: Mynd, sem birtist í
fjölmörgum blöðum og tímarit-
um eftir morðið, sýndi Lee H.
Oswald standa á tröppunum
framan við skólabókageymsluna
rétt áður en bílalest forsetans
ók fram hjá.
Niðurstaða: Maðurinn á tröppun-
um fyrir framan húsið, sem sum-
ir héldu að væri Oswald, er í
raun og veru Billy Lovelady, einn
af starfsmönnum Skólabóka-
geymslunnar, sem er dálítið
svipaður Oswald. Lovelady hefur
þekkt sjálfan sig á myndinni, og
aðrir samstarfsmenn hans, sem
standa þar hjá honum, hafa vott-
að, að myndin sé af honum, en
Oswald hafi ekki verið nálægur.
Orðrómur: Pósthúsið í Dallas,
sem Oswald lét senda riffilinn í,
var bæði á nafni hans og nafni
A. Hiddel.
' Niðurstaða: Það er ekki vitað
hvort Oswald nefndi, að póst til
A. Hiddel skyldi setja í þetta
hólf, þegar hann sótti um að fá
það. Samkvæmt reglum banda-
rísku póststjórnarinnar var þeim
hluta eyðublaðsins, þar sem get-
ið var nafna annarra, sem höfðu
afnot af hólfinu — hent, þegar
hólfinu vgr lokað 14. maí 1964.
Sumarið 1963 fékk Oswald póst-
hólf í New Orleans og tilnefndi
þá nafnið Hiddel auk nafns síns
og konu sinnar. Hiddel var upp-
áhaldsdulnefni, sem Oswald not-
aði alloft. Þrátt fyrir nákvæma
leit, hefur enginn maður fundizt
með því nafni í Dallas eða í
Ngw Orleans. Þetta var bara
nafn, sem hann hafði búið til
fyrir sjálfan sig.
Orðrómur: Talið er að bíl for-
setans hafi verið ekið á 12-20
mílna hraða, og því hafi hann
verið álíka erfitt skotmark og
hermenn eiga verst við að glíma
í orrustu.
Niðurstaða: Milli þess sem fyrsta
og annað skotið hittu forsetann,
var meðalhraði bílsins um það
bil 11,2 mílur á klukkustund.
Vitni með sérfræðiþekkingu
hafa borið, að bíllinn muni hafa
verið gott skotmark, þar eð hann
fjarlægðist skyttuna í beinni
línu.
Orðrómur. Oswald gat ekki hafa
skotið þrem skotum úr Mann-
licher Carcano riffli á 5Vz sek-
úndu.
Niðurstaða: Nákvæm prófun úr
fram á þessu á vegum nefndar-
innar og vitni með sérfræði-
þekkingu hafa borið, að hægt sé
að skjóta þrem skotum úr riffl-
inum á 5Vz sekúndu. Hafa ber
í huga að hlaðið skothylki var
til staðar í rifflinum og Oswald
þurfti aðeins að hleypa af og
taka svo tvisvar í hleðsluboltann
til að geta hleypt af í annað og
þriðja skiptið. Vitnin báru, að
ef skot númer tvö hefði misst
marks, hefði Oswald verið 4,8
til 5,6 sekúndur að skjóta skot-
unum öllum þrem. Ef annað-
hvort fyrsta eða þriðja skotið
missti marks hafði Oswald rúm-
lega sjö sekúndur til að skjóta
þremur skotum.
Orðrómur: Oswald var ekki
nægilega góð skytta til að geta
unnið verkið á þennan hátt.
Niðurstaða: Oswald var góð
skytta (sharpshooter and marks-
man) meðan hann var í hernum.
Kona hans, Marina Oswald hefur
borið, að maður hennar hafi æft
sig að færa hleðsluboltann meðan
þau voru í New Orleans. Enn-
fremur sögðu sérfræðingar, að
kíkirinn hefði gert morðingjanum
kleyft að skjóta hraðar og nákvæm
ar. Það er niðurstaða nefndarinn-
ar, að Oswald hafi getað framið
morðið með rifflinum.
Orðrómur: Tegundarheiti riff-
ilsins, sem notaður var við morð-
ið stóð á honum. Þess vegna
hefðu þeir, sem fundu riffilinn á
gólfi SkólabókageymVkvnnar átt
að geta séð af hvaða tegund hann
var.
Niðurstaða: Þótt riffill sé skoð-
aður, þarf ekki að sjást hver fram-
leiðandinn er. Á riffilinn er
greypt, að hann sé framleiddur á
Ítalíu. Fritz höfuðsmaður og Day
lautinant, sem handléku hann
fyrst, sögðu af hvaða gerð hann
væri.
Orðrómur: Riffillinn, sem
fannst á sjöttu hæð Skólabóka-
geymslunnar, var talinn vera
Mauser 7.65. Þetta var skoðun
mannsins, sem fann hann, Sey-
mour Witzman.
Niðurstaða: Witzman, sem í
fyrstu taldi, að riffillinn væri af
Mauser gerð, og Eug'ene Boon,
lögreglufulltrúi fundu riffilinn.
Hann rétt leit á hann og sá, að
hann var með hleðslubolta, og
taldi að þetta væri Mauser riff-
ill, sem er mjög svipaður Mann-
licher-Carcano riffli. Sérfræðing-
ar á rannsóknarstofu lögreglunn-
ar kváðu síðar upp þann úrskurð,
að þetta væri ítalskur riffill með
hlaupvíddinni 6,5.
hins örugga og trausta sveitar-
stjórnarmanns sem í öllu vildi
heiil og hag sveitarfélaganna.
Tómas Jónsson, var kvæntur
Sigríði Thoroddsen dóttur Sigurð
ar Thoroddsen, verkfræðings og
yfirkennara og Maríu Claessens.
Þau eignuðust fimm börn: Maríu,
sem gift er Þórði Gröndal verk-
fræðingi, Jón, lögreglustjóri í Bol-
ungarvík, sem kvæntur er Sigur-
laugu Jóhannesdóttur. Sigurð, við
slciptafræðing, sem kvæntur er
Rannveigu Gunnarsdóttur. Krist-
ínu, gift Jóhannesi Sigvaldasyni
búfræðikandidat og Herdís, sem
stundar nám í Menntaskólanum í
Reykjavík.
Með fráfalli Tómasar Jónssonar
er mikill harmur kveðinn að fjöl-
skyldu hans, og vil ég ljúka þess-
um línum með þvi að votta frú
Sigríði og börnum hennar inni-
lega hluttekningu mína og fjöl-
skyldu minnar um leið og ég
þakka Tómasi Jónssyni samstarf
og vináttu liðinna ára.
Jónas Guðmundsson
Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar
Síöasti iBinritunardagurinn er í dag,
miðvikudaginn 30. sept.
Innritun:
Reykjavík.
í síma 1-01-18 og 3-35-09 frá 2—7.
wHjlfíKlf
Kópavogur.
í síma 1-01-18 frá 10 f. h. — 2 e. h. og 20
Hafnarfjörður.
í síma 1-01-18 frá 10 f. h. — 2 é. h. og 20
Keflavík.
í síma 2097 frá 3 — 7.
22.
22.
Minningarorð
Framhald af 5 *íðu
fyrst og fremst fulltrúi Reykjavík
ur hjá Sambandi íslenzkra sveit-
arfélaga, en raunsæi hans var svo
mikið og hann hafði svo full-
kominn skilning á hlutverki sínu.
að enda þótt Reykjavík yrði stund-
um að færa fórnir í samtökum
sveitarfélaganna skildi hann að
það var ekki síður í hennar þágu,
að samstarf og vinátta
skapaðist milli sveitarfélaganna.
Samband íslenzkra sveitarfélaga
hefur nú slitið barnsskónum og er
orðið þýðingarmikið tæki í nýrri
sókn sveitarfélaganna til að búa
íbúum sínum sem bezt og farsæl-
ust lífskjör. Tómasi Jónssyni ber
ekki sízt að þakka það, sem áunn-
izt hefur, því hinn sanni Reykvík-
ingur, som hann var, og hinn
sanni fulltrúi höfuðborgarinnar
hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga,
var hann þó fyrst og fremst hinn
sanni sveitarstjómarmaður, sem
leit á það sem skyldu sína að leysa
málin með hag heildarinnar fyrir
augum.
Fyrir störfin í þágu Sambands
íslenzkra sveitarfélaga endurtek
ég nú þær þakkir, sem ég færði
Tómasi Jónssyni á landsþingi
sambandsins fyrir rúmu ári síð-
an, og allir þingfulltrúar tóku und
ir, og ég veit að hans mun ávallt
verða minnzt meðal íslenzkra og
erlendra - sVeitarstjórnarmanna,
sem honum urðu þar samferða sem
Vijja stuðla að
(Framheld af 7 sifln)
nótur fyrir stærri samsetningar.
Það hefur sem sagt farið vax-
andi á undanförnum árum, að nota
þessi hljóðfæri, munnhörp'u, gít-
ar og harmóniku til alls konar
a'.þjóðlegra músikiðkana.
Hvað gítarinn og harmón-
ikuna snertir hefur oft verið
sannað, að þessi hljóðfæri geta
gegnt þýðingarmiklum lilutverk-
um, en það þarf mikla æfingu og
tækni til þess að geta spilað vel
á þau ekki síður en önnur. En til
þessa hafa þau ekki notið verð-
skuldaðrar virðingar, en verið
notuð á léttari máta, og mögu-
leikar þeirra eklci nýttir til hlít-
ar.
Öðru máli er að gegna með
fiðluna, sem er ekki nema fjögurra
strengja hljóðfæri, en möguleikar
hennar hafa verið nýttir ttl hins
ítrasta. Fiðlan er eitt af meist-
arahljóðfærunum og einn af með-
limum í strokhljóðfærafjölskyld-
unni sem er undirstaða allra
synfóníuhljómsveita.
— Er skólinn fullskipaður?
— Ennþá vantar í nokkrar
deildirnar, en sumar þegar full-
skipaðar.
-— Hvað viltu segja um almenna
tónlistariðkun á íslandi?
— Um aldamótin var hér mik-
ið um músiklíf víða í heimahús-
um. Mikið um söng og orgelleik,
sem hefur liorfið og lítið komið í
staðinn, nema ef vera skyldi dans
og dægurlög a£ léttustu gerð.
Þessu er öðru vísi farið með
aðrar þjóðir, sem hafa varðveitt
heimilis og alþýðumúsik sína, allt
til þessa dags og haldið henni við.
Þó að við höfum útvarp og sjón-
varp er það ekki afsökun fyrir
því að leggja þetta til hliðar, —
þennan menningarauka heimil-
anna. — Og að lokum vildi ég
segja þetta: — Við viljum stuðla
að aukinni alþýðumúsik í heima-
húsum og styðja fólk til að stunda
músiknám. Sér í lagi beinum við
orðum okkar til alþýðunnar í
verkalýðsfélögunum, en við leggj-
ura sérstaka áherzlu a, að fá sem
flest verkalýðsfélög með okkur
og fá þau til að líta á . skólann
sem sína eigin stofnun.
jtJO 30. sept. 1964 —f ALÞ.YÐUBLABIÐ