Alþýðublaðið - 30.09.1964, Blaðsíða 16
Heyiit að auka
vatnið í bili
Síeykjavík, 29. sept. HP.
ENN er mjög vatnslítiö í Rcykiia
S'ík vegna snjóleysis í vetur og vor
<©g lítilla rigninga upp á síðkast-
«ð a‘ð því, er Þóroddur Th. Sig-
mrðsson, vatnsveitustjóri, tjáði
lölaðinu í dag. Sagði hann, að til-
■ snæli vatnsveitunnar til Reykvík-
rnga um að spara vatnið virtust
liafa borið svo góðan árangur, að
fcað væri eingöngu aðgæzlu þeirra
að þakka, að ekki er beinlínis um
vatnsskort að ræða nú. Rigning
nú um helgina bætti aðeins úr
ástandinu í bili, en sú aukning
stóð ekki lcngi.
Vatnsveitustjóri sagði, að nú
væri verið að dæla vatni úr 42 m.
djúpri borholu frá sumrinu 1962
sem ætlunin er að dýpka síðar,
í Gvendarbrunna, en sú borhola
er "innan Gvendarbrunnagirðing-
arinnar skammt frá gömlu lind-
unum. Er ætlunin að sjá, hvort
dælingin eykur á vatnsmagnið í
Framhald á síðu 4
25 ARA AFMÆLI
BLINDRAFELAGSINS
BLINDRAFÉLAGIÐ minntist
25 ára afmælis síns sunnudaginn
20. sept., í Blindraheimilinu
Hamralilíð 17, og hófst það með
kaffidrykkju, kl. 3 e. h.
Boðið var blindu fólki úr
iíeykjavík og aðstandendum þess,
0g einnig utan af landi. Ennfrem
tiir nokkrum öðrum gestum.
Formaður félagsins Margrét
Andrésdóttir setti hófið, og bauð
gesti velkomna.
Undir borðum voru ræður flutt
ar af þeim Hannesi M. Steplien-
een ritara félagsins er rakti
naokkra þætti úr sögu félagsins,
Bankastjóri
ú Akranesi
LANDSBANKINN hefur nú yfir
tekið Sparisjóðinn á Akranesi og
mun setja þar upp útibú í stað-,
inn! Hefur stjórn bankans ákveðið
tóðningu Sveins Elíassonar sem
-útibússtjóra á Skaga.
Svéinn er 43 ára gamall og
«eyndur bankamaður. Hann réð
4st fyrst til starfa við Landsbank
iann 1939 og hefur starfað þar
lcngst af síðán, þó ekki óslitið.
Sveinn er nú útibússtjóri í Lang
Iioitsútibúi í Reykjavík.
Skúla Guðjónssyni bónda á Ljót-
unnarstöðum, og Helga Elíassyni
fræðslumálastjóra er flutti kveðju
frá Blindravinafélaginu.
Á eftir skemmtu leikararnir
Anna Guðmundsdóttir, og Karl
Guðmundsson. Hófið var vel sótt
og stóð fram á kvöld og varð öll
um viðstöddum til mikillar á-
nægju.
Aðalfundur Blindrafélagsins var
haldinn 28. ág. sl. að Hamrahlið
17. Gefin var ýtarleg skýrsla um
rekstur siðasta árs, endurskoðað
ir reikningar lagðir fram og sam
þykktir.
Helztu niðurstöður þeirra eru
á þessa leið, að merkjasala nam
kr. 214 þús., reksturshagnaður kr.
1.2 millj., og skuldlaus eign í árs
lok kr. 4 millj. 489 þús. Félagið
naut byggingarstyrks frá Al-
þingi kr. 150 þús.
Fjárhagsleg afkoma var hag-
stæð, og átti þátt í því, m. a. að
stofnað var til happdræltis til
ágóða fyrir byggingarsjóð fólags
ins er heppnaðist mjög vel. Einrí
ig bárust að vanda stærri og
minni gjafir frá ýmsum aðilum er
oflangt yrði upp að telja, og'
beindi fundurinn einlægu þakk
læti til allra sem þar eiga hlut að,
bæði opinberra aðila, og fjöl-'
margra einstaklinga.
Framh. á bls. 4
Fyrsta spilakvöld Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur í þriggja kvölda
keppninni verður næstkomandi föstu
dagskvöld í Iðnó. Emil Jónsson sjáv-
arútvegsmálaráðherra ffytur stutt á-
varp, en á eftir verður sameiginleg
kaffidrykkja og dans.
Fyrir dansinum ieikur hljómsveit
EÞG. Fólk er hvatt til þess að mæta
¥01 og stundvíslega. Spilakeppnin hefst klukkan 8,30, en húsið er opn-
atf klukkan 8.
Miðvikudagíir 30. september
mmmm
Mynd þessa tók Ijósmyndari
Alþýðublaðsins inn í Heiðmörk
í gær af stíflu þeirri, sem unn
ið hefur verið að á vegum
Vatnsveitu Reykjavíkur síðan á
föstudag í þeim tilgangi að
reyna að auka vatnsmagnið í
Gvendarbrunnum, en ekki er
enn vitað hvort grunnvatns-
hækkun á þessum stað muni
auka vatnsrennslið I brunn-
ana. (Mynd: JV).
Dagsbrilnár-full-
trúar á þing ASÍ
Á HADEGI í dag var liðinn frest
ur til að skila framboðstillögum
um fulltrúa Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar á 29. þing Alþýðu
sambandsins. Aðeins ein tillaga
kom fram, tillaga uppstillingar-
Fulltrúar á
þing ASÍ
nefndar og trúnaðarmannaráðs, Og
voru því allir af þeirri tillögu
ajálfkjörnir sem aðalfulltrúar og
varafulltrúar á Alþýðusambands-
þing.
Fulltrúar Dagsbrúnar eru 34 og
fara hér á eftir nöfn aðalfulltrúa.
Eðvarð Sigurðsson
Guðmundur J Guðmundsson
Tryggvi Emilsson
Tómas Sigurþórsson
Kristján Jóhannsson
Halldór Björnsson
Hannes M. Stephensen J
Andrés Guðbrandsson
Árni Þormóðsson
Fx-amh. á bls. 4.
EFTIRTALIN verkalýðsfélög hafa
lokið kosningu fulltrúa á þing Al-
þýðusambandsins:
ÞRÖTTUR á Siglufirði, þar urðu
þessir fulltrúar sjálfkjörnir: Gunn
ar Jóhannsson, Óskar Garibalda-
son, Þorvaldur Þorleifsson, Jón
Kr. Jónsson og Kolbeinn Frið-
bjarnarson. Varamenn: Hannes
Baldvinsson, Páll Jónsson, Anton
Sigurbjörnsson, Jörgen Hólm og
Sveinn P. Björnsson.
FÉLAG KJÖTIÐNAÐARMANNA
kaus einn fulltrúa, Kristján Guð-
mundsson og Geir Jónsson til
vara.
ESJA verkalýðsfélag Kjósverja
kaus einn fulltrúa, Brynjólf Guð-
mundsson og Ásgeir Nordalxl til
vara.
NÓT, sveinafélag netagerðar-
manna, kaus einn fulltrúa, Hall-
dói-u Guðmundsdóttur og Þórð V.
Þorfinnsson til vai-a.
FRAMSÓKN, verkakvennafélag-
ið í Reykjavík kaus 17 fulltrúa og
jafnmarga til vara. Listi stjórnar
og trúnaðarmannaráðs varð sjálf-
kjörinn og skipa hann þessar kon-
ur: Jóhanna Egilsdóttir, Jóna Guð-
jónsdóttir, Guðbjörg Þorsteins-
dóttir, Ingibjörg Bjarnadóttir, Ingi
björg Örnólfsdóttir, Þórunn Valdi
marsdóttir, Pálína Þorfinnsdóttir,
Guðrún Þorgeirsdóttir, Hulda Otte
sen, Guðbjörg Brynjólfsdóttir,
Guðrún Björnsdóttir, Guðbjörg
Guðmundsdóttir, Línbjörg Árna-
dóttir, Kristín Símonardóttir, i
Jenný Þorsteinsdóttir og Helga
Guðmundsdóttir.
Varafulltrúar: Helga Guðna-
dóttir, Kristbjörg Jóhannesdóttir,
Anna Guðnadóttir, Guðmunda Ól-
afsdóttir, Agnes Gísladóttir, Elín
Guðlaugsdóttir, Guðrún Stephen-
Framhald á síðu 4
ií FUJ FUNDUR |
| í KEFLAVÍK |
j; AÐALFUNDUR FUJ í jj
11 Keflavík verður haldinn í J!
j; Ungó kl. 10 næstkomandi j;
;! fimmtudagskvöld. J!
!; Auk venjulegra aðalfund- j;
;! arstarfa verða kosnir full- j!
! j trúar á 20. þing SUJ.
;; FUJ félagar eru livattir til J!
!! að' f jölmenna. i j
Stjórnin' j;
MMHMMHMMMV MVtHMHt
UPPSKERAN EKKI
í MÉÐALLAGI
Hvolsvelli, 29. sept. - ÞS - HP
KARTÖFLUUPPTÖKU í Rangár-
vallasýslii er 'viðast lokið nema hjá
Ólafi Jónssyni I Oddhól, sem vera
mun einn mesti kartöflubóndinn i
sýslunni í ár. Hann setti niður
mikið af kartöflum og það svo
snemma, að kartöfluuppskeran hjá
honum virðist vera allsæmileg, en
víðast hvar annars staðar er hún i
tæpu meðallagi.
Fyrstu göngum og réttum er að
Ijúka í dag hér í sýslunni, og er
verið að rétta í Hvolsrétt og einn-
ig í Austur-Landeyjum. Slátrun
gengur vel, og er búizt við, að
henni ljúki fyxr en venjulega, enda
hefur alltaf verið slátrað á laug-
ardögum 'nú í haust, þar sem að-
staða til geymslu á kjöti batnaði
í fyrrah’aust við byggingu frysti-
hússins á Hvolsvelli. Slátrað er á
2 stöðum hjá Sláturfélagi Suður-
lands, - í Djúpadal og á Hellu, svo
og í sláturhúsi Ffiðriks Friðriks-
sonar í Miðkoti í Þykkvabæ.