Tölvumál - 01.11.1986, Síða 5
meiði við það sjónarmið að fjárhagslegur ávinn-
ingur af tölvuvæðingunni sé litill sem enginn.
TÖLVUMÁL biða þess að fá tækifæri til að birta
sjónarmið þessara manna og kynna þá hlið mála sem
að þeim snýr.
Vissulega eru til dæmi um snjallar lausnir á
vandamálum þar sem tölvunotkun hefur verið beitt.
í þessu blaði er til dæmis sagt frá nokkrum
kunnum erlendum tölvukerfum, sem skila eigendum
sinum góðum afrakstri. Þau eiga það reyndar
sameiginlegt að mega frekar teljast upplýsinga-
kerfi en tölvukerfi. Segja má að þau séu
verðugir fulltrúar nýrra sjónarmiða i hönnun
upplýsingakerfa þar sem allt snýst um vitneskju
þá er kerfin varðveita, en tölvuforritin sjálf
eru i raun aukaatriði.
Þau fyrirtæki, sem eiga og reka þessi kerfi telja
upplýsingamálin of mikilvæg til að fela þau i
umsjá tölvumannanna.
óneitanlega væri fróðlegt fyrir lesendur
TÖLVUMÁLA að fá tækifæri til að kynnast þeim
skoðunum sem fremstu tölvumenn okkar hafa á þvi,
sem þeir telja mestu máli skipta nú. Ekki væri
síður áhugavert að kynnast hugmyndum þeirra
stjórnenda, sem standa fremst i notkun
upplýsingatækni hér á landi. Vonandi gefst
mönnum timi til að lita af tölvuskjánum, leggja
frá sér söluáætlanirnar eða ýta til hliðar
greiðsluáætlunum með sjö stafa upphæðum á
töluliðunum og miðla þeim áttahundruð félögum,
sem fá TÖLVUMÁL i hendur mánaðarlega, af reynslu
sinni.
Menn þurfa alls ekki að vera hræddir um að
ritnefnd TÖLVUMÁLA hnýti athugasemdum við
greinar, sem hún er ekki sammála.
Stefán Ingólfsson
5