Tölvumál - 01.11.1986, Page 13

Tölvumál - 01.11.1986, Page 13
Telexgeymsla Kerfið hagnýtir gagnagrunnkosti örtölvunnar á þann hátt að geyma öll innkomin og send skeyti. í þessu felst að undir venjulegum kringumstæðum er ekki þörf á hefðbundnum telexskrám. Þess i stað er einföldum leitarskipunum beitt til að kalla textann fram á skjá þegar þörf krefur. Einnig er hægt að prenta skeytið út á alla tölvuprentara. Sjálfvirk upphringing Þegar lokið er við að semja og leiðrétta textann sér kerfið um upphringinguna. Sé númerið á tali eða ekki næst samband af öðrum ástæðum, sér kerfið sjálfvirkt um að reyna aftur þar til skeytið kemst i gegn. Rafeindapóstur Með kerfinu má senda öll skeyti áfram eftir staðarneti. Að auki má meðhöndla allar innan- stokkstilkynningar sem rafeindapóst. Með þvi móti má á skjótan hátt koma skilaboðum til þeirra, sem hafa aðgang að útstöð. Fjölsending Oft þarf að senda mörgum aðilum sama telexritið. í kerfinu má fyrirfram afmarka hópa með allt að 99 áskrifendum. í stað þess að þurfa að margsenda sama textann, nægir að gefa upp hópnúmer og kerfið vinnur sendinguna sjáfvirkt. Eins og sjá má á ofangreindu er hér um að ræða byltingarkenndan búnað, sem áreiðanlega á eftir að spara mörgum telexnotendum mikinn tima, fé og fyrirhöfn. Nú þegar hafa fjölmörg fyrirtæki nýtt sér þessa tækni og má þar nefna t.d. ferðaskrifstofur, heildverslanir, skipaafgreiðslur og bifreiða- umboð. -uey. 13

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.