Tölvumál - 01.11.1986, Side 14

Tölvumál - 01.11.1986, Side 14
BESTU FYRIRTÆKI í BANDARÍKJUNUM Tvö bandarísk tíxnarit birta árlega yfirlit eða lista um stærstu fyrirtæki þar i landi. Tima- ritið FORTUNE birtir lista um þau 500 framleiðslufyrirtæki, sem hafa mesta veltu. Þessi listi er velþekktur á meðal manna, sem fylgjast með viðskiptasiðum blaðanna. Hann gengur undir nafninu "FORTUNE 500". Þá birtir timaritið Business Week lista yfir 1000 verðmætustu fyrir- tæki i Bandarikjunum. Verðmæti fyrirækjanna er reiknað sem samanlagt söluverð allra hlutabréfa þeirra. Fortune 500 Á meðal FORTUNE 500 eru 25 fyrirtæki, sem framleiða tölvubúnað. Stærst þeirra er að sjálfsögðu "blái risinn". IBM er i 5 sæti á listanum og hafði færst upp um eitt sæti frá árinu áður. í 55 sæti listans er Digital Equipment. DEC fluttist upp um 10 sæti. í næsta sæti á eftir Digital kom Honeywell og i 60 sæti var Hewlett-Packard. Alls voru 6 tölvufyrirtæki á meðal 100 stærstu fyrirtækjanna. Rekstrarafkoma þessara stærstu tölvufyrirtækja er hins vegar betri en staða þeirra á listanum gefur til kynna. IBM skilaði mestum rekstrarhagnaði allra fyrir- tækjanna. Hagnaður IBM var 35% meiri en hagnaður Exxon, sem kom næst. Hagnaður Hewlett Packard skipaði fyrirtækinu i 33 sæti og Digital Equipment var i 38 sæti. Top 1000 Listi Business Week sýnir nokkuð aðra mynd en FORTUNE 500 listinn. Eins og fyrr segir endurspeglar TOP 1000 listi timaritsins mat þeirra, sem festa fé sitt i hlutabréfum á 14

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.