Tölvumál - 01.11.1986, Síða 22
Fleiri dæmi
Auk þeirra dæma, sem lýst hetur verið hér að
framan má telja upp mörg fleiri. Til dæmis um
svið þar sem möguleikar upplý-singatækninnar
virðast vera góðir má nefna bankastarfsemi og
fjármálastarfsemi. Eitt af þeim upplýsinga-
kerfum, sem er best þekkt á þvi sviði er Cash
Management Account kerfi Merill Lynch. í þessu
kerfi heldur fyrirtækið utan um innistæður
viðskiptamanna sinna og skuldir þeirra. Það
dregur saman uppiysingar um ávisanareikninga,
sparnaðarreikninga, kreditkortareikninga og ymsar
aðrar tegundir reikninga i eigu hvers
skjólstæðings.
Mánaðarlega er honum sent samandregið yfirlit um
stöðu allra reikninganna. Þá flytur kerfið
sjálfkrafa fé, sem gefur litinn arð yfir á þá
kosti, sem ávaxta það betur.
Með þessu kerfi hefur Merill Lynch tekist að ná
til fjölmargra aðila, sem fela þeim umsjón með
ávöxtum fjár síns. Fyrirtækið annast nú ávöxtun
85 miljarða dollara fyrir viðskiptamenn sina. Af
þessum markaði er hlutur þess nú um 70%.
Fleiri athyglisverð uppiysingakerfi eru i notkun
hjá fjármálafyrirtækjum. Segja má að verðbréfa-
og hlutabréfamarkaðurinn í Bandarikjunumn sé nú
að miklu leiti tölvustyrður. Menn eru reyndar
alls ekki á einu máli um hvort það sé kostur eða
ókostur.
Þau notkunarsvið, sem drepið hefur verið á i
þessari stuttu grein eru langt i frá tæmandi.
Undanfarin misseri hefur öðru hverju mátt lesa
greinar um dæmi svipuð þessum i blöðum, sem
fjalla um viðskipti og upplýsingatækni.
Áhugamönnum um tölvumál og uppiysingatækni er
bent á að fylgjast vel með þessari þróun þvi
sennilega er hér að finna dæmi um þau fyrirtæki,
sem tekið hafa skrefið inn i uppiysingatæknina að
fullu. Eins og menn eru þegar orðnir sér
meðvitaðir um eru "tölvukaup" ekki lengur
lausnarorðið, heldur rétt notkun uppiysinga. -si.
22