Tölvumál - 01.10.1988, Side 12

Tölvumál - 01.10.1988, Side 12
Niðurstaðan varð sú, að jákvætt svar fékkst frá tveimur fyrirtækjum. Okkur leist mun betur á annað þeirra, Lattice Inc., sem þekkt er af þýðendum fyrir forritunarmálið C, og hófust þar með langar og strang- ar samningaviðræður. Þeim lauk ekki fyrr en um ári síðar, í apríl á þessu ári, er samningur fyrirtækjanna var undirritaður í höfuðstöðvum Lattice í Lomband í Illinois-fylki. Samstarf við Lattice Inc. Lattice-fyrirtækið hefur um 100.000 viðskiptavini og er vel þekkt meðal forritara. Það er dótturfyrirtæki annars hugbúnaðarfyrirtækis er nefnist SAS Institute. SAS er meðal 10 stærstu hugbúnaðarfyrir- tækja í Bandaríkjunum. Með samningi Artek við Lattice urðu þáttaskil hjá Artek. Lattice sér að öllu leyti um markaðs- og sölumál, auglýsingar, samningu og prentun handbóka, þjónustu, fjölföldun, dreifingu, og svo framvegis, enda verður þýðandinn seldur með Lattice-nafninu. Artek snýr sér algjörlega að tæknimálum, það er áframhaldandi þróun þýðandans, flutnings hans yfir á ný stýrikerfi og smíði viðbótarhugbúnaðar. Segja má að Lattice sé í hlutverki útgefanda, en Artek í hlutverki höfundar. Artek á að sjálfsögðu þýðandann áfram og getur rift samningnum við Lattice ef þeir standa sig ekki í stykkinu. Samningurinn felur eftirfarandi aðalatriði í sér: í fyrsta lagi greiðir Lattice fastar upphafsgreiðslur í áföngum til Artek. í öðru lagi fær Artek hlutfall af söluandvirði þýðandans í sinn hlut. í þriðja lagi eru Artek tryggðar lágmarkstekjur í hverjum mánuði, óháð sölu. Til viðbótar eru svo ýmsir smærri tekjuliðir fyrir Artek, til dæmis í sam- bandi við svokallaða OEM-samninga og flutning þýðandans yfir á nýjar tölvur og stýrikerfi. Það kemur fram í markaðsáætlunum Lattice, að þeir hyggjast verja mun hærri fjárhæðum til auglýsinga og kynningar á þýðandanum en Artek hefði verið fært um að óbreyttu. T.d. er ætlunin að verja upphæð sem nemur rúmlega öllu stofnhlutafé Artek h.f. í auglýsingar mánaðar- lega, eftir að þýðandinn kemur á markað undir Lattice nafninu snemma á næsta ári. Niðurstaða Niðurstaða mín eftir þessa reynslu okkar af útflutningi hugbúnaðar er sú, að ef ætlunin er að selja á stórum markaði, verður annað hvort að útvega til þess mikið fjármagn eða leita samstarfs við erlend fyrir- 12 TÖLVUMÁL

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.