Tölvumál - 01.07.1992, Síða 6
Júlí 1992
Atkvæðagreiðslukerfi Alþingis
Þorvaldur Gunnlaugsson, deildarsérfræðingur Alþingi
Haustið 1991 var keypt til
Alþingis þýskt ráðstefnu- og
atkvæðagreiðslukerfi frá Bráhler
Inc. og er Radíóstofan hf umboðs-
maður hér. Radíóstofan sá um
uppsetningu þess í þingsal
Alþingis. Það samanstendur af
litlu plastboxi á borði hvers þing-
manns, fjarstýringu í forsetaborði
og OS/9 miðtölvu sem er stjórnað
frá VT220 skjá og sendir niður-
stöður á prentara. Birtingartöflur
voru hannaðar og gerðar af
Tölvuþjónustu Kópavogs hf.
Sú leið var farin að setja upp
VT220 skjáhermu á SUN ELC
UNIX tölvu (Wyse 185 function)
til að geta stjórnað kerfinu og
tengja einnig prentaraportið inn
á UNIX vélina. Björn R. Björns-
son sá um hönnun og gerð stjórn-
og samskiptaforrits sem skrifað
var í C. Það talar við ráðstefnu-
tölvuna, stýrir henni og fær upp-
lýsingar frá henni, vinnur úr þeim
niðurstöður og raðaða lista og
birtir á prenturum og birtingar-
töflum það sem við á.
Þegar kveikt er á UNIX vélinni er
stjórn- og samskiptaforritið sett
upp með einni skipun og birtist
þá VT220 skjáhermugluggi og
sýnir hann stöðu þýska kerfisins
á hverjum tíma. Einnig birtist
gluggi fyrir tilkynningar frá
stjórn- og samskiptaforriti. I val-
mynd er hægt að fá sér nokkra
atkvæðagreiðsluglugga og keyra
í þeim INFORMIX 4GL forrit.
Þorvaldur Gunnlaugsson hefur
séð um þá hlið sem snýr að
gagnagrunninum. Hægt er að
undirbúa nokkrar atkvæða-
greiðslur fyrirfram. Sé alkvæða-
greiðsla sett af stað kviknar ljós
á fjarstýringu í borði forseta. Sé
önnur sett af stað bíður hún þar
til sú fyrri sleppir sambandinu
við ráðstefnukerfið. Til að at-
kvæðagreiðsla fari í gang þarf
að skrá um hvað hún snýst
(tengja hana framvindu máls) í
Frá formanni frh.
reynslu sem við getum aflað
okkur í gegnum þau en ekki síður
vegna þeirra sambanda sem
myndast og hægt er að nota, ekki
síst þegar sótt er að hagsmunum
okkar á alþjóðavettvangi.
Við höfum kosið að einbeita
okkur að fagfélögum á Norður-
löndum (NDU og norrænu
skýrslutæknifélögin) og á al-
þjóðavettvangi (IFIP).
Nýlega var mér boðið á aðalfund
CECUA, sem haldinn var í
Brússel. CECUA eru Evrópu-
samtök töluvnotendafélaga. Var
það ágætt tækifæri til þess að
kanna hvort æskilegt væri að
Skýrslutæknifélagið sækti um
aðild. Niðurstaðan af þessari
ferð var sú að það myndi ekki
þjóna hagsmunum okkar að sækja
um aðild að CECUA að sinni.
Takmarkaður tími og fjárráð gera
það mjög mikilvægt að beina
kröftum okkar í farvegi sem skila
árangri.
SÍ 25 ára
Á næsta ári verður Skýrslu-
tæknifélag íslands 25 ára. Stjórn
SI hyggst minnast þessara
tímamóta með viðeigandi hætti
og verður skýrt nánar frá því
þegar líður á þetta ár.
Tölvuoröasafn SÍ
Að undanförnu hafa stjórn SI og
Orðanefnd SI unnið að því að
finna l'löt á endurútgáfu Tölvu-
orðasafns félagsins. Er þar
erfiðast við að eiga hinn mikla
kostnað sem útgáfunni er samfara
en hann hefur það í för með sér
að langan tíma tekur að ljúka
undirbúningi útgáfunnar.
Margar hugmyndir til að leysa
þetta mál eru nú til umfjöllunar
og er það von okkar að það
takist að gefa út ódýrt en vandað
Tölvuorðasafn áður en langt um
líður með sameiginlegu átaki
stjórnar, Orðanefndar og félags-
manna.
Sumarkveöja frá
stjórn
Þar sem þetta er síðasta tölublað
Tölvumála þar til á haust-
mánuðum óska ég, fyrir hönd
stjórnar, öllum félagsmönnum og
fjölskyldum þeirra, ánægjulegs
sumars og þess að þeir megi koma
heilir heim að loknu fríi!
6 - Tölvumál