Tölvumál


Tölvumál - 01.11.1995, Síða 6

Tölvumál - 01.11.1995, Síða 6
Nóvember 1995 Frá orðanefnd Eftir Stefán Briem Á síðustu árum hefur aukist mjög að menn noti glugga þegar þeir vinna á tölvur. Orðanefnd er því um þessar mundir að huga sérstaklega að íslenskum heitum fyrir hugtök er varða glugga- umhverfi. Algengt er að mörg orð séu í gangi manna á meðal fyrir sömu hugtökin og brýnt að greiða fyrir því að bestu hugmyndimar verði ofan á. Orðanefnd áformar að viðra orðalista fyrir glugga- umhverfi í Tölvumálum fljótlega. Heiti á eldri hugtökum eru einnig í endurskoðun hjá orða- nefndinni. Orð sem hafa lent ffemst í virðingarröð hjá orðanefnd í Tölvuorðasafninu (2. útg. 1986) hafa ekki alltaf hlotið sama frama hjá tölvunotendum. 1 Tölvuorða- safninu er til dæmis gefið orðið háttur (e. mode) í merkingunni ‘tiltekinn valkostur í vinnslu’. Einnig er þar gefið samheitið hamur. í þessu tilviki virðist sam- heitið hafa orðið ofan á hjá tölvu- notendum. Orðanefnd hefur því ákveðið að breyta hjá sér virð- ingarröð þessara orða þannig að hamur verði aðalheiti þessa hug- taks en háttur verði samheiti þess. 1 öðrum tilvikum á orðanefnd erfitt með að fallast á það sem virðist hafa orðið ofan á hjá tölvu- notendum að svo stöddu. Ástæöan fyrir mismunandi niðurstöðu gæti stundum verið sú að röksemdir orðanefndar hafi ekki náð til tölvunotenda. aðgerðarhnappur Sem dæmi má taka spuming- una um hvort skrifa á aðgerðar- hnappur eða aðgerðahnappur (e. function key). í Tölvuorðasafninu er ritað aðgerðarhnappur en annars virðist algengara að menn riti aðgerðahnappur. Orðanefnd fylgir þeirri reglu að þegar fyrri liður í samsettum orðum er eignar- fallsmynd þá sé miðað við eintölu nema merking eða aðrar gildar ástæður kalli á fleirtölu. Algengast er að þessir hnappar séu efst á hnappaborðinu og séu merktir F1, F2 o.s.frv. Með (forrits)skipun er hægt að skilgreina tiltekna aðgerð fyrir hvern þessara hnappa þannig að tölvan framkvæmi þá aðgerð í hvert sinn sem stutt hefur verið á hnappinn. Hnappurinn hefur þá verið skilgreindur sem hnappur þessarar tilteknu aðgerðar og úr því verður til orðið aðgerðar- hnappur. Orðið hnappaborð ber hins vegar að rita þannig af því að um er að ræða borð margra hnappa. Orðanefnd leggur því til að menn riti r-ið í miðju orðsins aðgerðarhnappur og taki mið af þessum röksemdum við ritun annarra samsettra orða. heimta, heimt Annað dæmi er sögnin heimta og samsvarandi nafnorð heimt. I Tölvuorðasafninu er gefið: heimt kv. Það að fínna og ná í gögn í upplýsingakerfi. - retrieval heimta so. Finna og ná í gögn í upplýsingakerfi. - retrieve Orðanefnd þykir tölvunotendur nota þessi orð minna en vert væri. Algengara er að menn noti sögnina sœkja eða jafnvel endurheimta í þessari merkingu og samsettu nafnorðin endurheimt og upplýs- ingaheimt. Þessi nafnorð eru reyndar einnig í orðasafninu en endurheimt er þar skilgreint í nokkuð frábrugðinni merkingu (e. recovery). Ef til vill er að veljast fyrir mönnum að sögnin heimta hefur einnig aðra merkingu, ‘krefjast’. Lítil hætta virðist þó á að misskilningur komi upp. Sú merking sem skilgreind er í orða- safninu er þekkt m.a. í orðatil- tækjunum að heimta úr helju. heimta fé af fjalli og heimtur voru góðar. Gallinn á sögninni sækja er að hún felur aðeins í sér að ná í en ekki að finna fyrst það sem á að ná í. Annar galli er sá að heiti vant- ar á aðgerðina að sœkja, því að nafnorðið sókn þykir ekki nógu gott fyrir þessa merkingu. Orða- nefnd telur reyndar að merking ensku sagnarinnar retrieve sé það fjölbreytt að stundum sé rétt að þýða með sœkja en þá þyrfti aðra skilgreiningu en fyrir sögnina heimta. Þessu verða væntanlega gerð skil í næstu útgáfu Tölvuorða- safnsins. En tölvunotendur eru hvattir til að nota óhikað orðin heimta og heimt þegar aflað er gagna úr gagnagrunnum og öðrum upplýsingakerfum. Stefán Briem er ritstjóri Tölvuorðsafns og starfsmaður orða- nefndar Skýrslutœkni- félags Islands. Netfang: stefan@ismal. hi. is 6 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.