Tölvumál - 01.11.1995, Blaðsíða 18
Nóvember 1995
stofnunar Háskólans, var fenginn
til að að ritstýra skýrslugerð hóps-
ins og kom hún út í ársbyrjun 1986.
Starfshópurinn gekkst meðal
annars fyrir nokkrum ráðstefnum
um hugbúnaðariðnað, um íslensk-
an rafeindaiðnað og um upplýs-
ingaþjónustu og byggði starfs-
hópurinn niðurstöður sínar m.a. á
viðhorfum sem þar komu fram.
Megintillaga nefndarinnar var
að leita bæri sérstakrar íjárveit-
ingar frá Alþingi til að byggja upp
upplýsingaiðnað með opinberum
framlögum að upphæð 65 milljónir
króna á ári í ijögur ár (verðlag
1986). Áhersla var lögð á samstarf
opinberra aðila og samtaka at-
vinnulífsins um framkvæmd slíkrar
áætlunar. I meginatriðum snerist
áætlunin um eftirfarandi atriði:
1. Uppbygginguþekkingarásviði
upplýsingatækni.
2. Eflingu tölvuiðnaðar.
3. Skipulag upplýsingamála.
4. Um upplýsingaveitur og upp-
lýsingaþjónustu.
5. Gæða- og stöðlunarmiðstöð.
6. Persónuvemd.
7. Félagslegarrannsóknirááhrif-
um upplýsingatækninnar.
Viðbrögö Rann-
sóknaráðs ríkisins
og stjórnvalda
Á þeim tíma sem tillögur starfs-
hópsins komu fram blésu nýir
vindar í málefnum rannsókna- og
þróunarstarfsemi, því árið 1985
gerði ríkisstjóm Islands sérstaka
samþykkt um stofnun Þróunar-
félags íslands og um sérstakt 50
milljón króna framlag í styrktar-
sjóð á vegum Rannsóknaráðs ríkis-
ins til að hvetja rannsóknir og
þróunarstarf í þágu nýsköpunar í
atvinnulífí. Þótt ekki væri hægt
með því takmarkaða fjármagni að
fylgja að fullu tillögum starfs-
hópsins um fjárveitingu að upphæð
65 milljónir króna á ári í heildar-
átak á sviði upplýsingatækni, var
þó hægt að byrja stuðning við
margvísleg verkefni sem lutu að
uppbyggingu þekkingar og eflingu
þróunarstarfs í tölvu- og hugbún-
aðariðnaði. Hefur hlutur tölvu-
þjónustu, svo og verkefna þar sem
tölvutækni og hugbúnaður er
mikilvægur þáttur, verið umtals-
verður og vaxandi þáttur í styrk-
veitingum úr Rannsóknasjóði, (nú
Tæknisjóði á vegum Rannsókna-
ráðs Islands). Lauslega áætlað er
þessu hlutdeild um 20% af styrk-
veitingum á tímabilinu. Mörg af
árangursríkustu verkefnum sem
sjóðurinn hefur stutt, að því er
varðar nýmæli í útflutningi, er
einmitt á sviði tölvutækni og hug-
búnaðargerðar. Má þar nefna
eftirfarandi dæmi:
1. Þróun tölvusjóntækni með sam-
vinnu Marel hf., Upplýsinga-
og merkjafræðistofu Háskólans
og SH, SÍF og Sjávarafurða-
deildar SÍS (nú íslenskar
sjávarafurðir hf.).
2. Vaki-fiskeldiskerfi hf. - tæki til
talningar og greiningar á stærð
og lögun fiska í fiskeldisstöðv-
um og ám.
Roþskali
Mynd 2. Heildarútgjöld til RoÞ ásamt vergri þjóðarframleiðslu árin 1971 til 1993
og framlag fyrirtækja til RoÞ, (Yerðlag ársins 1993 í þús. kr.) VþF ska|j
□ Heildarútgjöld til RoÞ □ Framlag fyrirtækja til RoÞ
1 Verg þjóðarframleiðsla
18 - Tölvumál