Tölvumál - 01.11.1995, Blaðsíða 17
Nóvember 1995
Mynd 1 Innra skipulag Rannsóknarráðs íslands
um sem vísindalegar uppgötvanir
og tækninýjungar á sviði efnis-
tækni, tölvutækni og líftækni buðu
upp á. Víða í grannlöndunum var
stofnað til stuðningsáætlana til að
efla þekkingaruppbyggingu og
hvetja til innleiðslu nýrrar tækni í
hefðbundnum atvinnugreinum.
Nýjar áherslur
Á árunum 1980-1982 fór fram
mikil endurskoðun á vísinda - og
tæknistefnu íslendinga að tilhlutan
Rannsóknaráðs ríkisins. Annars
vegar fólst þetta í úttekt OECD á
stöðu vísinda og tækni hér á landi
og hins vegar í gerð nýrrar lang-
tímaáætlunar um rannsóknir í þágu
atvinnuveganna sem meðal annars
var lögð fyrir Alþingi veturinn
1982-1983. í ályktun sem Alþingi
samþykkti af þessu tilefni er meðal
annars ályktað að efla beri rann-
sóknir og þróunarstarfsemi með
eftirfarandi markmið að leiðarljósi:
- að þróa innlenda tcekni-
þekkingu og aðhæfa erlenda
tækni til að styrkja stöðu at-
vinnuvega landsmanna, meðal
annars í Ijósi harðnandi sam-
keppnisskilyrða á alþjóðavett-
vangi.
- að auka innlenda þekkingu á
sem flestum sviðum vísinda og
tœkni með framtíðarþarfir
þjóðarinnar í huga.
í greinargerð frá Rannsókna-
ráði sem fýlgdi ályktuninni er bent
á að ekki sé nægilega hugað að
öflun tækniþekkingar og fæmi og
með langtímaþarfir í huga og
jafnframt er sagt:
Líklegt er að á komandi árum
verði skjóttekinn fengur af nýtingu
auðlinda ekki eins sterkur þáttur í
efnahagsvexti og verið hefur, en
þáttur hugvits, þekkingar og
mannlegrar færni mikilvægari.
Því er nauðsynlegt að unnið verði
markvissara en verið hefur að
öflun færni á ýmsum sviðum sem
þörf erfyrir íframtíðinni. Afþeim
tœknisviðum sem líkleg eru talin
til að verða mikilvæg má nefna:
- raf- og rafeindatækni
- tölvu- og upplýsingatækni
- orkunýtingartækni
- lífefnatækni
- vatns- og sjávareldistækni
- fóður- og matvælatækni
A næstu árum mun Rannsókna-
ráð ríkisins beita sér fyrir könnun
á þessum sviðum með það fyrir
augum að gera tillögur að stefnu-
mótun og mun leita samvinnu við
stjórnvöld, stofnanir og atvinnu-
vegi í því efni.
Með þessari langtímaáætlun
Rannsóknaráðs og með ályktun
Alþingis má segja að málefni nýrra
tæknisviða hafi komist á dagskrá
af alvöru hjá ráðinu og hjá stjóm-
völdum. Fljótlega eftir þetta var
skipaður starfshópur á vegum
ráðsins til að kanna horfur á þróun
tölvu- og upplýsingatækni og gera
tillögur til ráðsins um eflingu þess
sviðs. Oddur Benediktsson próf-
essor var formaður en Páll Jens-
son, þá forstöðumaður Reikni-
Tölvumál - 17