Tölvumál - 01.11.1995, Síða 12
Nóvember 1995
um kennslu. Með hjálp alnetsins
munu nemendur, hvar sem þeir eru
staddir í heiminum, geta sett á sig
hjálm með skjám fyrir framan
augun, heyrnartólum og hreyfí-
skynjurum. Hjálmurinn er tengdur
við tölvu nemandans sem aftur
tengist tölvu skólans um alnetið.
Skólinn getur þess vegna verið í
annarri heimsálfu. Þrátt fyrir það
sér nemandinn í hjálmi sínum
fyrirlesara sem stendur uppi við
töflu, talar og skrifar á töfluna (sem
hvenær sem er má afrita yfir í tölvu
nemandans). Námsbækur og gögn
eru einnig send yfír alnetið til
lestrar af skjá eða útprentunar eftir
vild. Nemandinn getur valið sér
fyrirlestra og fyrirlesara af lykla-
borði tölvu sinnar og komið á
framfæri spurningum annað hvort
í töluðu eða rituðu máli. Allur
heimurinn mun hafa aðgang að
bestu fyrirlesurum í hverju fagi
fyrir sig og lágmarksþörf verður
fyrir hefðbundna fyrirlestrasali
með stólaröðum. Meira að segja
verður unnt að setja upp umræðu-
hópa heimshorna á milli þar sem
þátttakendur sjá hvem annan og
heyra í hjálmum sínum eins og þeir
sætu saman á kaffíhúsi. Bókasöfn
færast yfir á tölvunetið og unnt
verður að leita í öllum helstu bóka-
söfnum heims að tilteknum bókum,
höfundum eða flettiorðum.
Louvre skoðaðí
hægindastól
Viðskipti sem í dag byggjast á
pappír eru smám saman að færast
inn á tölvunetin þannig að reikn-
ingar, pantanir, tollskýrslur, farm-
bréf o.s.frv. eru send beint milli
tölva. í auknum mæli munu inn-
kaup, einkum á sérvöru, færast yfír
í rafeindabúðir (,,sýndarbúðir“) á
alnetinu, þar sem neytendur geta
gengið um sýndargólf og valið
vörur úr sýndarhillum. Varan er
svo send heim og andvirðið dregið
af debetkortareikningi.
Helstu listasöfn og fræðasöfn
heimsins verða aðgengileg á net-
inu. British Museum og Louvre
verður unnt að skoða án þess að
fara úr hægindastólnum heima.
Auk þessa verða allar upplýsingar
tiltækar, jafnt fyrir leika sem lærða,
um það sem fyrir augu ber.
Hvað ber að gera?
Unnt væri að halda svona áfram
lengi, en spumingin er: Hvar ætlum
við íslendingar að standa í þessu
öllu saman? Þessi bylting er að fara
af stað, eins og örtölvubyltingin
árið 1976 og iðnbyltingin öld fyrr.
Ætlum við bara að bíða eftir því
að sjá hvað Japanir, Bandaríkja-
menn og Evrópuþjóðir finna upp
á þessu sviði og kaupa það svo,
eða ætlum við að taka þátt í þróun-
inni og njóta ávaxtanna? Það er
hlutverk stjómmálamanna að sjá
um að umhverfi atvinnulífs sé eins
hagstætt og unnt er miðað við ytri
aðstæður.
Hvað upplýsinghraðbrautina
varðar er nauðsynlegt að ríki og
sveitarfélög sjái um eftirfarandi:
* að samskiptaleiðir inn og út úr
landinu sé greiðar (dæmi um
þetta er ljósleiðarastrengurinn
CANTAT-3 sem Póstur og sími
á hlutdeild í),
* að skattlagning á samskipti sé
í hófi (þar með talið afgjald
Pósts og síma í ríkissjóð),
* að ríki og sveitarfélög bjóði út
verk á sviði upplýsingatækni á
almennum markaði en semji
ekki beint við erlenda aðila eða
láti vinna verk í eigin tölvu-
deildum,
* að leggja áherslu á tölvusam-
skipti og tölvupóst í opinberri
stjórnsýslu og upplýsingagjöf
til almennings,
* að rýmka til á samskiptamark-
aðnum og leyfa samkeppni þar
sem því verður við komið,
* að samstarf verði milli ríkis,
sveitarfélaga, Pósts og síma,
háskóla og atvinnulífs um að
flýta ljósleiðaratengingu innan-
lands (t.d. innan Reykjavíkur)
og veita fyrirtækjum og háskól-
anum aðgang að opnu neti fyrir
lágmarksgjald til að þróa nýja
þjónustu og hugbúnað fyrir
alnet sem að lokinni prófún á
heimamarkakði yrði útflutn-
ingsvara.
* ísland á að sækja um aðild að
Evrópusambandinu og verða
með því fullgildur þátttakandi
í mótun Evrópu framtíðarinnar.
Evrópusambandið leggur
gríðarlega áherslu á upplýs-
ingatækni og samskipti enda
vita þeir sem er að þetta svið
mun skera úr um samkeppnis-
hæfni þjóða á næstu öld.
Evrópa eða
Árbæjarsafn
Við íslendingar þurfum að
velja. Ætlum við að dunda hér
næstu öldina yfir hverfulum fiski
og kenjóttum rollum og ætlast til
að það færi okkur lífskjör á við
aðrar þjóðir, eða ætlum við að taka
þátt í mótun nýrrar aldar upp-
lýsinga og tækni? Ætlum við að
bjóða okkar unga og vel menntaða
fólki umhverfi sem getur keppt við
það sem annars staðar gerist, eða
ætlum við að lifa á átaksverkefnum
einum saman? Ætlum við að vera
fullgildir þátttakendur í Evrópu
framtíðarinnar eða stefna mark-
visst að því að verða stærsta
Árbæjarsafn heims?
Jón Baldvin Hannibals-
son er þingmaður og
formaður Alþýðu-
flokksins
12 - Tölvumál