Tölvumál - 01.07.2001, Side 10
ebXML
Skeytin eru byggð
upp á staðlaðan hátt,
í samræmi við ákveð-
na röð í viðskiptaferli
með skýrum orðaskil-
greiningum og útskýr-
ingum á viðskiptahug-
tökum og í samræmi
við útqefna staðla
ISO
nýtur ebXML stuðnings alþjóða- og
evrópsku staðlastofnananna ISO og CEN.
Með ebXML var stefnt að því að gera
fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum,
hvar sem er í heiminum, kleift að finna
hvert annað og eiga viðskipti bókhald í
bókhald á grunni staðlaðra XML skeyta.
Til þess að svo mætti verða þurfti að skapa
ramma fyrir samræmt verklag, hanna
tæknilýsingar og skilgreina viðskiptaferli
fyrir rafræn viðskipti á Netinu á grunni
XML. Formlegt markmið var að skapa
þannig alþjóðlega umgjörð um samræmt
rafrænt markaðstorg á aðeins átján mán-
uðum.
Skeytin eru byggð upp á staðlaðan hátt,
í samræmi við ákveðna röð í viðskiptaferli
með skýrum orðaskilgreiningum og út-
skýringum á viðskiptahugtökum og í sam-
ræmi við útgefna staðla ISO eftir því sem
kostur er. Leitast var við að venjuleg við-
skiptakerfi gætu með lítilli fyrirhöfn að-
lagast hinu skilgreinda vinnulagi og
skeytaútfærslum. Þannig var megináhersla
lögð á að uppfylla þarfir lítilla og meðal-
stórra fyrirtækja en víðtæk notkun þeirra á
rafrænum viðskiptum er forsenda al-
mennrar útbreiðslu þeirra. Þá var tryggt í
upphafi að skilgreiningarnar væru öllum
aðgengilegar og án endurgjalds.
Til Vínarborgar
Reglulegir vinnufundir ebXML á þessum
18 mánuðum fóru fram um allan heim.
Auk San José var með jöfnu millibili
fundað í Brússel, Boston, Tokyo, Vancou-
ver og loks í Vínarborg í maí sl. Skemmst
er frá því að segja að í byrjun höfðu marg-
ir sem stóðu utan við þessa vinnu mikla
vantrú á því að þetta ætti eftir að takast, en
reyndin varð önnur.
Greinarhöfundur tók þátt í hinum 5
daga lokafundi í Vínarborg ásamt Tryggva
Þórðarsyni hjá Hugbúnaði hf., formanni
rvXML-stýrihóps ICEPRO. Það var sér-
stakt að verða vitni að því hvernig fulltrú-
urn frá ólíkum þjóðum, en ekki síður frá
fyrirtækjum sem alla jafna eiga í harðri
samkeppni, gekk að vinna sarnan. Eðli
málsins samkvæmt var skipst á sjónarmið-
um, oft all harkalega, um útfærslu mis-
munandi þátta enda oft ólíkir hagsmunir á
ferðinni. En eindreginn vilji þátttakenda
til að sigla fleyinu í höfn og örugg og sam-
hent stjórn UN/CEFACT og OASIS leiddi
til þess að menn gátu gengið uppréttir frá
borði.
Þótt Vínarfundurinn sé formleg loka-
höfn er ekki þar með sagt að verkefninu sé
endanlega lokið. Nýr kafli í vinnunni við
ebXML tekur við. UN/CEFACT og
OASIS munu héðan í frá skipta einstökum
verkþáttum á milli sín en eftir er að útfæra
nánar ýmis atriði, m.a. að tryggja innleið-
ingu staðalsins í einstökum löndum og í
mismunandi atvinnugreinum. Þetta þýðir í
raun að tæknilegar og viðskiptalegar skil-
greiningar og ferli hafa verið mótuð, mik-
ill fjöldi tilvísana í grunneiningar á borð
við magneiningar og heiti á gjaldmiðlum
hafa verið ákvarðaðar, en eftir er að útfæra
ebXML fyrir samskipti fyrir mismunandi
starfsemi. Samkvæmt sameiginlegri vilja-
yfirlýsingu, sem samþykkt var á Vínar-
fundinum, verður skipuð samráðsnefnd
frá báðum stofnunum og áfram unnið
sameiginlega að því að koma ebXML á
framfæri. Þá bíður það stofnana og sam-
taka á borð við EAN og CEN/ISSS - upp-
lýsingatæknisviðs staðlastofnunar Evrópu
- að útfæra nánar ebXML fyrir evrópskan
markað og sambærilegra stofnana annars
staðar í heiminum að vinna út frá sama
grunni.
Leiðarljós ebXML
Sem fyrr segir var og er markmið ebXML
að hanna rafrænan samskiptamáta, þar
sem fyrirtækjum hvar sem er í heiminum
er gert kleift að leita hvert annað uppi, að
skapa viðskiptatengsl í kjölfarið og eiga
bein viðskipti á samræmdan hátt. Alla
þessa þætti má gera sjálfvirka að meira
eða minna leyti, og þar með minnka og í
flestum tilfellum útrýma þörf fyrir hand-
virka íhlutun. Eftirtalin atriði voru þátttak-
endum leiðarljós á mánuðunum átjánflj:
• Gera rafræn viðskipti einföld og auð-
veld í notkun með útfærslu á grunni
XML.
• Hanna tæknilegar skilgreiningar með
eins breiðri skírskotun og unnt væri.
• Leggja áherslu á að skapa alheimsstað-
al sem nær yfir allar atvinnugreinar til
notkunar í viðskiptum milli fyrirtækja
og í viðskiptum milli fyrirtækja og
neytenda.
• Samþætta uppbyggingu og innihald
10
Tölvumál