Tölvumál - 01.07.2001, Síða 11
ebXML
Það sem gerir ebXML
eins öflugt og raun
ber vitni er einmitt sú
áhersla og metnaður
sem lögð hafa verið í
að skilgreina við-
skiptaferli og líkön
mismunandi XML verkefna í einn not-
hæfan XML viðskiptastaðal.
• Skapa vettvang sem gat beint kröftum,
sem áður fóru í mörg skammtímaverk-
efni, í einn sameiginlegan farveg til
langs tíma.
• Uppfylla þarfir innan einstakrar at-
vinnugreinar og milli þeirra og þarfir
viðskiptavina þeiixa.
• Forðast að búa til einkalausnir sem
leggja á væntanlega notendur l'járhags-
legar kvaðir eða tæknilegar kröfur urn
tiltekinn hugbúnað til að nota ebXML.
• Vinna hörðum höndum að því að lækka
kostnað tengdan notkun á rafrænum
viðskiptum.
• Styðja öll helstu tungumál.
• Styðja alla helstu þjóðlega og alþjóð-
lega viðskiptaskilmála.
• Brúa bil viðurkenndra EDI- og XML
staðla.
• Eftir ntegni að styðjast við tilmæli um
einföldun í rafrænum viðskiptum sem
fram koma í SIMAC yfirlýsingunni.2
Sýn ebXML
Til að viðskipti tveggja fyrirtækja geti
orðið að veruleika, verða þau að eiga kost
á að finna hvort annað og þær vörur og
þjónustu sem þau hafa upp á að bjóða. í
framhaldinu þurfa þau að ákvarða hvaða
viðskiptaferli (e. business process) og
skjöl eru nauðsynleg til að af viðskiptum
geti orðið og hvaða grunneiningar (e. core
components) skuli unnið með. Þetta skal
útskýrt nánar:
Viðskiptaferli
Það sem gerir ebXML eins öflugt og raun
ber vitni er einmitt sú áhersla og metnaður
sem lögð hafa verið í að skilgreina við-
skiptaferli og líkön og útfæra fyrir XML.
Með því er fyrirtækjum unnt að laga sig að
því ferli sem nauðsynlegt er að báðir aðilar
fylgi við framkvæmd viðskipta og sernja
um skilmála tengdum viðskiptunum. Hér
er farið eftir ákveðnum leiðurn og sam-
skiptaflötum til gera það kleift að flytja
skjöl á milli tölva og vinna úr mótteknum
eða sendum skeytum á hvorum enda. Þegar
fyritæki hafa samið urn heppilegt líkan er
unnt að draga upp rnynd af þörfum og skil-
yrðum, tímaröð viðskiptafærslna og hlut-
verki hverrar aðgerðar.
Á meðfylgjandi mynd, sem með ein-
földuðum hætti sýnir hvernig rnenn sjá
virkni ebXML fyrir sér í viðskiptum
tveggja fyrirtækja, má sjá hvernig fyrir-
tæki A sendir og tekur á móti slíkum upp-
lýsingum og er merkt í reit 1. Þegar fyrir-
tækin A og B hafa fundið hvort annað,
sent og flutt niður það sem kalla má þver-
snið og svið hvors annars og aðlagað eigin
kerfi (reitir 2-4), er þeim ekkert að van-
búnaði að semja formlega sín á milli um
hvemig þau haga viðskiptum sínum og
ljúka þeim síðan.
Grunneiningar
Annar þáttur sem segja má að sé horn-
steinn ebXML eru grunneiningar (e. Core
Components). Þetta er kjarninn í þeim
upplýsingum sem fyrirtækin skiptast á og
gerir þeint kleift að hafa sama skilning og
nákvæmlega sömu viðmiðun á þýðingu
einstakra staka. Dæmi um þetta er banka-
reikningur sem þarf að innihalda lág-
marksupplýsingar á borð við nafn eig-
anda, viðskiptareikning og númer. Einnig
má nefna skammstafanir á mynt, þyngdar-
einingar o.þ.h., sem byggt er á skilgrein-
ingum ISO og fleiri stofnana.
Endurskipulagning vinnulags
Það er ekki nægjanlegt að taka aðeins upp
þær skilgreiningar og aðlagast samskipta-
ferlum sem ebXML staðalinn felur í sér.
Ætli fyrirtæki sér að hafa ávinning af upp-
töku staðlaðra Netviðskipta á grunni
ebXML, er nauðsynlegt að stjórnendur
hafi metnað til að gera þau að viðteknum
viðskiptamáta í stað pappírs eða símbréfs
og hrinda í framkvæmd ýmsum róttækum
breytingum á vinnulagi starfsmanna við
innkaup, markaðssetningu og sölu. Ætla
má að það sé ekki hvað síst þessi atriði
sem hafa hamlað framþróun EDI hérlendis
sem erlendis þrátt fyrir órnæld tækifæri til
hagræðingar sem þess háttar viðskipti
bjóða uppá.
Framtíð EDI
Til áréttingar skal tekið fram að sú fjár-
festing sem íslensk fyrirtæki hafa lagt í
hefðbundið EDI er síður en svo úrelt. EDI
tæknin er enn í fullu gildi enda jókst fjöldi
EDI notenda nteira en nokkru sinni áður á
síðasta ári og horfur eru svipaðar á þessu.
Tölvumál
11