Tölvumál - 01.07.2001, Page 13
Microsoft. Net
.NET
Gísli Rafn Ólafsson
Project 42 var ætlað
að hrinda af stað
nýrri hugsun innan
Microsoft
Þessi hugmynd byg-
gði á nýju tekjulíkani
þar sem notendur
gerðust í raun áskrif-
endur að vefþjónustu
þessari \ stað þess
að kaupa pakka-
lausnir
Grundvallarhug-
myndin á bakvið
.NET er að hugbún-
aður er ekki lengur
byggður upp sem
pakkavara sem þú
kaupir út I búð
Fyrir um 2% ári síðan gerði hugbún-
aðanisinn Microsoft sér grein fyrir
því að markaðurinn fyrir sölu á hug-
búnaði væri á góðri leið með að mettast og
gæti því ekki haldið áfram að vaxa jafn ört
og hann hafði gert undanfarinn einn og
hálfan áratug. Á sama tíma varð þeim
einnig ljóst að sú kúvending sem gerð var
á fyrirtækinu í maí 1995 var einungis
fyrsta skrefið í áttina að því að laga hug-
búnað og hugbúnaðargerð að Netinu.
Project 42
í upphafi árs 1999 var fyrir tilstilli Bill
Gates sett í gang verkefni sem kallaðist
„Project 42“ (en 42 er skírskotun í fræga
sögu Douglas Adams „Hitchhiker’s Guide
to the Galaxy“). Project 42 var ætlað að
hrinda af stað nýrri hugsun innan
Microsoft. Allt frá hinu fræga minnisblaði
Bill Gates frá 1995 („The Internet
Tidalwave") hafði hver og ein deild innan
Microsoft einungis spáð í það hvernig
þeirra eigin vara gæti notað Netið.
í Project 42 voru hins vegar valdir lykil-
starfsmenn úr sem flestum deildum
Microsoft og búnir til vinnuhópar í kring-
um ákveðna þætti sem voru sameiginlegir
með öllum deildunum. Dæmi um slíka
hópa voru t.d. hópur sem einbeitti sér að
því hvernig dreifa mætti hugbúnaði á auð-
veldari hátt á Netinu og hópur sem mark-
aði stefnu í því hvernig nota mætti sömu
gagnagrunnsvélina fyrir allar vörur
Microsoft (í stað þriggja eins og nú er).
Annar hópur einbeitti sér að dreifingarað-
ferðum á hugbúnaði í gegnum Netið.
I raun má segja að þarna hafi verið um
mjög breiða stefnumótunarvinnu að ræða,
vinnu sem síðan átti eftir að nýtast vel
þegar .NET fór að fæðast. Project 42 lauk
síðan á vordögum 1999 með fundaröð þar
sem helstu stjórnendum Microsoft voru
kynntar niðurstöður vinnuhópanna.
NGWS
Það var síðan um mitt ár 1999 að Bill
Gates og aðrir af leiðtogum Microsoft
fóru að kynna innan fyrirtækisins þá hug-
mynd að byggja hugbúnað upp sem sam-
safn af vefþjónustum. Þessi hugmynd
byggði á nýju tekjulíkani þar sem notend-
ur gerðust í raun áskrifendur að vefþjón-
ustu þessari í stað þess að kaupa pakka-
lausnir. Hugmynd þessari var gefið vinnu-
heitið NGWS sem stóð fyrir Next Gener-
ation Windows Services.
Fljótlega fór þessari hugmynd að vaxa
hryggur innan Microsoft og fleiri og fleiri
deildir fóru að endurskipuleggja þá vöru
sem þær voru að vinna að svo að hún
passaði inn í þetta líkan. Ekki var komið
neitt markaðsheiti fyrir þessa hugmynd,
en margar deildir völdu að bæta við plús
(+) fyrir aftan nafn vörunar til auðkennis
að um NGWS-vöru væri að ræða. Þetta
var upphaflega dregið frá COM+, en á
mismunandi tímum voru til Storage+,
Forms+, ASP+ og fleiri skyldar vörur.
.NET fær nafn
Það var svo loks á vormánuðum árið 2000
sem markaðsdeildin hjá Microsoft gat
fundið og komið sér saman um vöruheiti
sem væri í senn einfalt og jafnframt gríp-
andi. Fyrir valinu varð .NET, en mánuðina
á undan hafði Sun Microsystems keyrt
mjög vel heppnaða auglýsingaherferð
undir slagorðinu „við erum punkturinn í
.com“.
I júní sarna ár hélt Microsoft síðan
mikla kynningarráðstefnu um .NET.
Kynnt voru slagorð eins og „hugbúnaður
sem þjónusta“, „vefþjónusta“, „XML
XML XML“ og „óháð vélbúnaði“, en
flestir sem komu af ráðstefnunni eða
fylgdust með henni í gegnum Netið voru
ekki mikið nær um það hvað hafði verið
kynnt. Það var kannski ekki neitt skrýtið,
því að á þessu stigi var hugmyndin um
.NET enn mjög óljós innan fyrirtækisins
sjálfs. Þó svo að flestir starfsmenn næðu
því hvert ætti að stefna, voru fáar áætlanir
í gangi sem miðuðu í þá átt.
En hvað er .NET?
Grundvallar hugmyndin á bakvið .NET er
að hugbúnaður er ekki lengur byggður
Tölvumál
13