Tölvumál - 01.07.2001, Side 20
Menntun
I Ijósi þessarar
reynslu býður mennta-
málaráðuneytið kenn-
urum, í skólum sem
hyggja á fartölvu-
væðingu, undirbún-
ingsnámskeið þeim
að kostnaðarlausu
Breyttir kennsluhættir
þurfa að eiga sér að-
draganda með skipu-
lagðri undirbúnings-
vinnu.
• Þung til lengdar
• Dýrt
Hva& hefur áunnist?
Kennarar hafa farið á margs konar nám-
skeið um notkun tölvunnar og Netsins í
þeim tilgangi að bæta kennsluna. Nem-
endur hafa einnig öðlast aukna færni í
notkun upplýsingatækni. Með samstarfi
við framleiðendur hugbúnaðar hafa nýjar
leiðir verið þróaðar því Islendingar eru um
margt í fararbroddi á sviði upplýsinga-
tækni í skólastarfi. Þátttaka í innlendum
og erlendum samvinnuverkefnum hefur
gert okkur kleift að fylgjast vel með því
sem er að gerast í kringum okkur og efla
íslenskt skólastarf.
UT-skólarnir hafa samvinnu sín á milli
um ýmsa þætti þróunarstarfsins. Til dæmis
hafa kennarar haldið sameiginglega fag-
greinafundi um hvernig best sé að hagnýta
upplýsingatækni og auka samstarf skól-
anna. Dæmi eru um áfanga sem hafa verið
þróaðir og kenndir með dreifnámsaðferð,
að hluta til staðbundið í hverjum skóla
fyrir sig en að hluta til með fjarnámssniði.
Aðferðin er fólgin í samnýtingu námsefnis
á Neti jafnframt því sem hver kennari ber
ábyrgð á ákveðnum þáttum námsefnisins.
I ljósi þessarar reynslu býður mennta-
málaráðuneytið kennurum, í skólum sem
hyggja á fartölvuvæðingu, undirbúnings-
námskeið þeim að kostnaðarlausu. UT-
skólarnir koma að skipulagi námskeið-
anna svo reynsla þeirra megi nýtast sem
best í öðrum skólum.
UT-grunnskólarnir
Breyttir kennsluhættir þurfa að eiga sér
aðdraganda með skipulagðri undirbún-
ingsvinnu. I grunnskólunum hefur verið
lögð áhersla á undirbúning og endur-
menntun kennara áður en farið yrði að
breyta kennslufyrirkomulagi.
A Eyrarbakka og Stokkseyri er virk
þátttaka í samskiptaverkefnum. Netið er
notað á fjölbreyttan hátt til umræðu og
samvinnu. Til dæmis hefur fjarfundabún-
aður skólans verið nýttur til funda með
nemendum og kennurum í öðrum löndum.
I Arbæjarskóla er þráðlaust fartölvuver
sem er færanlegt milli kennslustofa.
Reynslan af því er góð, einkum eru tungu-
málakennarar ánægðir með að komast á
Netið með nemendum.
I Varmalandsskóla hefur verið unnið
með ný forrit, meðal annars við kynningu
á safninu í Snorrastofu sem er í nágrenni
skólans. Samningar hafa verið gerðir við
fleiri stofnanir og skóla í nágrenninu varð-
andi notkun hugbúnaðar og samvinnu á
Netinu.
UT-framhaldsskólarnir
Tilraunaverkefni með fartölvur nemenda
var áberandi í þróunarstarfi síðasta skóla-
árs og næsta vetur verður haldið áfram á
sömu braut.
I Fjölbrautaskólanum við Armúla voru
myndaðir sérstakir fartölvuhópar í
nokkium áföngum. Hjá fjölmörgum hóp-
um var farin sú leið að taka einn tíma á
viku af hefðbundinni stundaskrá en kenna
með dreifnámssniði þess í stað. Næsta
skólaár er gert ráð fyrir að þorri kennara
bjóði upp á fartölvustudda kennslu og öll-
um nemendum býðst að koma með far-
tölvu í skólann ef þeir vilja.
í Fjölbrautaskóla Suðurlands var sú leið
farin í fyrrahaust að skilgreina nokkra
áfanga með sérstakri áherslu á fartölvu-
notkun. Þar á meðal er tilraunaáfangi í
jarðfræði, eðlisfræði og efnafræði með
áherslu á þverfagleg vinnubrögð í raunvís-
indum. Kennslan dreifðist í sal og víðar
um skólann. Næsta skólaár verða allir
kennarar með fartölvur og aðstaða er fyrir
alla nemendur til að vera með fartölvur í
skólanum ef þeir vilja.
Kennarar í Menntaskólanum á Akureyri
hafa nú verið með fartölvur í tvo vetur og
nota upplýsingatækni í flestum greinum. í
vetur var gerð tilraun með að hafa einn
bekk þar sem allir nemendur nota fartölvu
og þykir sú tilraun hafa tekist vel. Næsta
vetur er áætlað að tveir bekkir á fyrsta
skólaári og tveir á öðru ári verði fartölvu-
bekkir.
Neffréttir
Nemendur og kennarar UTskólanna skrif-
uðu í vetur daglega fréttir úr skólastarfi á
mbl.is, www.mbl.is/utskolar. Jafnhliða
samningi við Morgunblaðið um fréttaskrif
fengu skólarnir ókeypis aðgang að gagna-
safni Morgunblaðsins. Við vetrarlok var
notkunin mæld þannig að nú er ljóst
hvernig safnið var nýtt í skólunum.
20
Tölvumál