Tölvumál - 01.07.2001, Page 25
CeBIT 2001
en þar sem hefðbundnar einmenningstölv-
ur eiga í hlut og sú tilhneiging nú orðið að
hverfa aftur til fortíðar, og vista allt mið-
lægt, muni áreiðanlega koma boðtólum og
léttbiðlurum til góða.
Með MPEG-4 þjöpp-
unartækni má ná
þokkalegum gæðum
um hægar fjarskipta-
línur og þar með
talið á farsímanetum
Ný þjöppunartækni
Það sem hefur komið að hvað allra mestu
gagni fyrir tölvunotendur í gegnum áranna
rás eru ýmsir möguleikar til að þjappa
saman gögnum, það er að segja að minnka
umfangið án gagnataps eða að minnsta
minnsta kosti vera svo lítið að það komi
ekki að sök. Það virðist ekki skipta máli
þó bæði diskar stækki sífellt og hraði í
fjarskiptum aukist stöðugt, enn er brýn
þörf á að þjappa sarnan efni og sú tækni er
í stöðugri mótun. Alkunna er hvernig beita
má þjöppunartækni á skrár af ýmsu tagi en
skemmra er síðan almennt var farið að
beita slíku á mynd og hljóð. Þekktast er
það sem kallað er MP3 en þetta er eitt af-
brigði MPEG þjöppunartækninnar og hef-
ur verið notað rnikið til að þjappa saman
hljóðefni þannig að umfang tónlistar getur
í bætum talið minnkað um 90% án veru-
legrar gæðarýrnunar.
Afbrigðið MPEG-2 er notað á DVD
diskum en núna er að koma til sögunnar
MPEG-4 en með þeirri þjöppunartækni
má ná þokkalegum gæðum, sem mun
svipa til myndbandsgæða, um hægar fjar-
skiptalínur og þar með talið á farsímanet-
um. MPEG-4 er álitinn tæknilega rnjög
fullkominn staðall og fyrir utan að auð-
velda miðlun hreyfimynda er hann saminn
með gagnvirka margmiðlun í huga og því
kjörinn til notkunar á Netinu. Ýmsir leið-
andi framleiðendur hafa þegar tekið við
sér og hafið þróun á þar til gerðum
MPEG-4 kubburn. Getum er leitt að því að
sagan í kringum MP3 og Napster muni
endurtaka sig í tengslum við myndefni
lolvumál
25