Vísir - 03.03.1964, Side 1
:
i. •'
Tveir Hafnarfjarðarbátanna voru
með góðan afla í gær. Voru það
Reykjanesið með 35 tonn og Auð-
unn með 30 tonn. Nokkur hluti
aflans var ufsi. Þeir eru með net.
Aðrir bátar voru með minni afia.
Bátar ,sem eru með þorskanót, fá
lítið.
VISIR
84. árg. — Þriðjudagur 3. marz 1964. — 53. tbl.
Loftleiðir ráða erlendar
flugfreyjur-15 komu ígær
15 verðandi flugfreyjur hjá
Loftleiðum komu til landsins i
gærkvöldi. Þessar stúlkur, sem
allar eru af erlendu bergi brotn
ar flestar þýzkar munu brátt
hefja erfitt námskeið, sem mun
endanlega skera úr hvort þær
séu hæfar til fiugfreyjustarfs-
ins. Það sem stendur í vegi fyrir
að hægt sé að nota eingöngu Is-
«t
lenzkar flugfreyjur, er mála-
kunnátta, eða kunnáttuleysi, þvi
að fáar ísl. stúlkur hafa gott
vald á þýzku og frönsku.
Á námskeiðinu fá stúlkurnar
m. a. kennslu í notkun öryggis-
tækja og alls konar verklegum
björgunaraðferðum, þjónustu og
meðhöndlun farbega, „Ioftheilsu
fræði“ hjálp í viðlögum, fæðinga
hjálp o.f’. Nú sem stendur eru
flugfreyjur Loftleiða 60 að tölu,
en þegar Canadair vélamar
koma,. verða þær helzt að vera
a. m. k. 100, rneðal annars vegna
þess, að 6 flugfreyjur verða 1
hverri vél, í stað 3 eins og gerist
í hinum gömlu. Félagið gerir ráð
fyrir að vera búið að fá þann
hóp um I. júní n.k.
Góður ofli
LIITAD CFTIR STORVIRKJUNAR-
LANIHJA ALÞJODABANKANUM
Bankinn mun senda hingað athugunarnefnd
Hallgrímskirkja kost-
ar fullbúin 41 millj. kr.
I útvarpsviðtali í gær við ann
an sóknarPrest Hallgrímssókn-
ar sr. Jakob Jónsson, gaf hann
þær upplýsmgar að Hallgríms-
kirkja á Skólavörðuholti mundi
kosta 25 millj. króna fullgerð
að öðm Ieyti en því að álmur
tumsins væm þá enn ógerðar
og turninn steyptur upp í 27
metra hæð.
Það er verkfræðistofa Sigurð-
ar Thoroddsen sem annazt hefir
útreikninga á kostnaði kirkjunn
ar. Þar kemur fram að fullbúin
mun kirkjan kosta 41 miílj. kr.
Er það svipuð upphæð og t.d.
Háskólabíó kostaði, er það var
fullreist. Otreikningar verkfræði
firmans vom gerðir í fyrra.
Sr. Jakob Jónsson gat þess að
með því að leggja til kirkjunn-
ar 3-4 millj. króna á ári fram til
1974, myndi kirkjan þá tilbúin
til messuhalds
^ í janúarmánuði s.l. fóru
þeir dr. Jóhannes Nordal
bankastjóri, sem er for-
maður stóriðjunefndar,
og Eiríkur Briem, raf-
magnsveitustjóri ríkisins,
til Washington til að at-
huga lánsmöguleika hjá
Alþjóðabankanum til
næstu stórvirkjunar á ís-
landi. Bankinn mun síðar
senda hingað athugunar-
nefnd í sambandi við
þessa umsókn.
Sem kunnugt er koma einkum
tveir virkjunarstaðir til álita hér
á landi með stóriðnað fyrir aug-
um, það er Þjórsá við Búrfell og
Dettifoss í Jökulsá á Fjöllum. Vit-
að er af samanburðarrannsóknum,
sem gerðar hafa verið, að ódýrara
yrði að virkja við Búrfell, þótt
formlega hafi hvorugur staðurinn
verið valinn að svo stöddu. Þeir
Jóhannes og Eiríkur höfðu með-
ferðis vestur áætlanir allar um
virkjanirnar á báðum þessum
stöðum og lögðu fram í Alþjóða
bankanum með þeim skýringum,
sem óskað var eftir. Að sjálfsögðu
yrði ráðizt í þá virkjun, sem
bankinn vildi lána út á.
Jóhannes Nordal sagði í við-
tali við Vísi í morgun að Alþjóða
bankinn þyrfti að hafa lánsum-
Framh á bls. 6
Dr. Jóhannes Nordal,
bankastjóri.
Blaðið í dag
Bls. 3
- 4
- 7
Flugfólkið skemmti^
sér. Árshátið Flug-
félagsins.
Umferðarsíða. Um
bifhjólalögreglu.
Samtal við Áma
Johnsen, sem á gott
náttúrugripasafn.
—8 Frá þingi sveitar-
félaga.
— 9 Vantar fjármagn til
framleiðniaukningar.
Rætt í Verölagsnefnd:
FLEIRI IfÖRUR Á FRÍUSTA
HÆRRl ALAGNING
Undanfarna daga hefir Verð-
lagsnefnd setið á fundum og
undirbúið tillögur um afnám
verðlagsákvæða á fleiri vöru-
tegundum en nú er þ.e. að fleiri
vörur verði settar á svonefndan
frílista hvað álagningu snertir,
einnig um nokkra hækkun á á-
Iagningu á vörum bæði í smá
sölu og heildsölu. Má búast við
ákvörðun nefndarinnar í þessum
málum innan mjög skamms
tíma.
Álagning á vörum hefir ekkert
breytzt siðan 1961, eða i þrjú
ár. Á þessu tímabili hefir hins
vegar orðið mjög mikill kostn-
aðarauki við verzlun lands-
manna. Þannig hefir launakostn
aðurinn i verzluninni aukizt um
90% á þessu timabili og annar
kostnaður við verzlun einnig
Framh, á bls. 6
• *