Vísir - 03.03.1964, Síða 3
VÍSIR . Þriðjudognr 3. marz ls>o4.
3
Flugfólkið skemmtir sér
Flugmálastjóri, Agnar Kofoed Hansen, Guðmundur Vilhjálmsson, Örn Johnson og Bergur G. Gíslason og frúr þeirra.
Flugfreyjur, flugmenn, af-
greiðslumenn, fulltrúar og fólk
af öllum launaflokkum og
starfshópum skemmti sér saman
á föstudagskvöldið í Súlnasal
Hótel Sögu, en þar fór fram árs-
hátíð starfsfólks Flugfélags Is-
lands,
Það var glaumur og gleði
meðal starfsfólksins og greini-
lega að menn voru hingað komn
ir til að njóta hvíldar frá dag-
legu amstri.. Mörg skemmtiat-
riði voru flutt, m.a. fóru þeir
Róbert Arnfinnsson og Rúrik
Haraldsson með sérstakan þátt
eftir einhvem Flugfélagsstarfs-
mann (?) um flug og flugaf-
greiðslu, þar sem flugvallarmál
in og deilur um þau voru notuð
sem sérstakt krydd. Vakti þessi
þáttur óskipta athygli og miklnn
hlátur, enda sérlega vel saminn
Þarna fór einnig fram afhend-
ing starfsaldursmerkja og hlutu
20-ára merki þeir Jóhannes
Snorrason, yfirflugmaður og Sig
urður Matthíasson, fulltrúi. Ann
ars lýsa meðfylgjandi myndir
betur því sem fram fór en orð
mundu gera og látum við því
auga ljósmyndavélarinnar hafa
„orðið.“
4
Fagrar stúlkur á árshátíð Flug-
félagsins. Efst Elsa Jónsdóttir,
flugfreyja, Matthildur Haralds-
dóttir, skrifstofustúlka, Helga
ÍSveinbjömsdóttir, skrifst.stúlka,
Helga Gúðmundsdóttir, hlað-
freyja, Unnur Kristinsdóttir,
símamær, Þórhildur Þorsteins-
dóttir, flugfreyja og Guðrún Pét
ursdóttir, sfmamær.
öm Johnson (við hljóðnemann) og Guðmundur Vilhjálmscson, form.
stjómar F. I. afhenda Sigurði Matthíassyni 20 ára starfsaldursmerki
félagsins.
Nokkrir starfsmanna við afgreiðslur Flugfélagsins. Frá vinstri: Grétar Haraldsson, Haraldur Jóhann-
esson, Óli Friðþjófsson, Þórður Óskarsson, flugumsjónarmaður og Birgir Ólafsson.
Stjórn Starfsmannafélagsins hafði veg og vanda af skemmtuninni. Frá vinstri: Karl Sigurhjartar-
son, Sverrir Jónsson, Guðrún Kristinsdóttir, Þórður Óskarsson og Magnús Björnsson, form.