Vísir - 03.03.1964, Síða 13
VlSIR . Þriðjudagur 3. marz 196...
13
Atvinnurekendur
í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, eru
beðnir að senda bæjarfógetanum í Kópavogi
skrá um alla starfsmenn sína, sem búsettir
eru í Kópavogi. Skrárnar óskast sendar inn-
an einnar viku frá b'irtingu þessarar auglýs-
ingar, að viðlagðri ábyrgð lögum samkvæmt.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Lögreglumaður
Staða lögreglumanns í Húnavatnssýslu er
laus til umsóknar. Laun samkvæmt launa-
kerfi ríkisins. Starfið veitist frá 1. apríl 1964.
Umsóknarfrestur er til 20. marz n.k. Um-
sóknir sendist sýslumanni Húnavatnssýslu,
er veitir nánari upplýsingar.
Skrifstofu Húnavatnssýslu, 29/2 1964
Jón ísberg
Trillubátur — bíll
2—3 tonna trilla til sölu. Á sama stað er til
sölu Ford ’57. Uppl. í síma 41282 kl. 12—1 og
7-8 e.h.
Bókari — gjaldkeri
Staða bókara, sem einnig annist gjaldkera-
störf, við sýslumannsembættið í Húnavatns-
sýslu er laus til umsóknar. Laun samkvæmt
launakerfi ríkisins.
Umsóknir sendist fyrir 1. apríl n.k. sýslu-
manni Húnavatnssýslu, sem einnig veitir
nánari upplýsingar.
Skrifstofu Húnavatnssýslu, 29/2 1964
Jón ísberg
Þoð er mcargf —
Framh. af bls. 7.
hingað inn, sérstaklega þegar
skuggsýnt er.
— Hvernig hefurðu komizt
yfir allt þetta safn?
— Þegar ég var á sjónum
sl. sumar náði ég í aiimikið af
fiskum og sjávardýrum. Nokk-
uð mikið af eggjum hef ég feng-
ið í Vestmannaeyjum, nokkra
fugla hef ég keypt og svo hafa
sumir kunningja minna verið
svo vingjarnlegir og sent mér
dýr, sem ég hef svo látið
stoppa upp.
80 til 90 þús. kr. tilboð
í safnið.
— Og þú ert ákveðinn í að
halda áfram að safna?
— Já, minnsta kosti fyrst
um sinn. Annars er þetta nokk
uð kostnaðarsamt tómstunda-
gaman, en ég get ekki sagt, að
ég sjái eftir þessu. Það er margt
verra hægt að gera, en að safna
dýrum. Fyrir nokkru fékk ég
freistandi tilboð í safnið, sem
hljóðaði upp á 80-90 þús. kr.,
en ég gat ekki hugsað mér að
láta það, þó svo vel væri boðið.
Ég er ákveðinn í að hlaða ein-
hvern tima arin úr steinun-
um, ef ég held á annað borð á-
fram.
— Þú hlýtur að þurfa mikið
húsrými undir safnið, ef þú held
ur áfram að safna fuglum, fisk
um, sjávardýrum og steinum?
— Það er aðal vandamálið.
Hingað til hef ég látið mér
nægja að hafa safnið í þessu her
bergi, sem ég leigi, en nú er
ég að hugsa um að flytja ein-
hvern hluta safnsins til Vest-
mannaeyja. Já, og hver veit,
nema maður seti upp náttúru-
gripasafn i Surtsey, þ.e.ajS. Vest
urey, sagði þessi ungi Vest-
mánnáéyingur að lokúm.
STEINHÚDUN H.F.
Jafnt fyrir híbýli sem
vinnustaði: ULBRIKA
húðun á GÓLF og
STIGA. án samskeyta.
mikið slitþol. einlitt og
og litmynztrað. ULBRIKA
á LOFT og VEGGI.
Varnar sprungum. spara
má finpússningu,
fjölbreytt áferð og
litaval.
Sími 2 38 82
F ramk væmdamenn
Nú er rétti tíminn til að panta hjá okkur. Við tökum
að okkur alls konar framkvæmdir, t. d. gröfum skurði
og húsgrunni og fyilum upp. Lóðastandsetningar,
skiptum um jarðveg, þekjum og helluleggjum. Girðum
lóðir og lönd. Einnig margs konar verklegar fram-
kvæmdir fyrir bændur. Útvegum allt efni og sjáum
um allan flutning.
AÐSTOÐ H.F.
Lindarg. 9, 3. h. Sími 15624.
Opið kl. 9—7 alla virka daga og 9 — 12 á laugardögum.
Bifreiðaeigendur
Trefjaplast er nýjung f boddyviðgerðum. Fljótvirkt, end
ingargott. Trefjaplast undir mottur á gólf er hljóðeinangr-
un. Ryðverjum bíla með sérstakri ryðvarnarfeiti. Látið ryð-
verja nýja bílinn strax. Uppl. í síma 17642 kl. 19—22 dagl.
ÞINGHÓLABRAUT 39, KÓPAVOGI.
SMÁRAKAFFI
Laugavegi 178.
Framreiðum ýmsa heita rétti í hádegi og allan
daginn. Ávallt fjölbreytt úrval af kökum og
brauði. Sendum brauð og snittur út í bæ eftir
pöntun. Sími 34780.
RAUÐAMÖL
Seljum fyllingarefni og rauðamöl.
Flytjum heim. Tekið á móti pöntunum alla
virka daga.
AÐSTOÐ H.F.
Lindargötu 9, 3. hæð . Sími 15625
Opið kl. 9—7 alla virka daga og 9—12 á laugardögum.
Smtmí Rafgeymar
6 og 12 volta jafnan fyrirliggjandi, einnig
kemiskt hreinsað rafgeymavatn.
Hlöðum rafgeyma.
SMYRILL . LAUGAVEGI 170 . Sími 1 2260
Landsmálafélagið VÖRÐUR Landsmálafélagið VÖRÐUR
Almennur félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 4. marz í Sjálfstæðishúsinu kl. 20.30.
DAGSKRÁ:
1. Framtíð íslands — Fjölþættari framleiðsla — Orku og iðjuver. Framsögumaður: Jóhann Hafstein.
iðnaðarmálaráðherra, 30 mín.
2. Fyrirspurnartími, iðnaðarmálaráðherra og fulltrúar úr Stóriðjunef ■ svara fyrirspumum, 60 mín.
3. Frjálsar umræður, 5-10 mín ræður.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið meðan húsrúm leyfir.
LANDSMÁLAFÉLAGK VÖRÐUR