Vísir - 03.03.1964, Síða 16
¥ÍSIR
v Þrifljudagur 3. marz 1964.
r
„Islenzkir
Beatles" á
hljómleikum
Meðal unglingahljómsvelta sem
koma fram á miðnæturhljómleik-
um sem haldnir verða í Háskóla-
bíói annað kvöld veða í Háskóla-
lenzku Beatles. Þeir kalla sig að
visu Hljóma, en það dylst engum
sem heyrir söng þeirra, eða sér
klæðaburð, svo ekki sé minnzt
á klippinguna, hver fyrirmyndin
er.
Framh á bls 6
Frá vinstri: Karl, Erlingur, Gunnar, Eggert og Rúnar.
Gjaldeyristekjur flugfélagunnu eru
orðnur yfir 600 milljónir
Höfuðkúpubrot
Brúttógjaldeyristekjur flugfél
aganna námu árið 1962 572,7
miilj .kr. Tölur fyrir árið 1963
liggja ekki fyrir en um tals-
verða aukningu mun hafa verið
að ræða þannig, að öruggt má
telja, að brúttógjaldeyristekjur
flugfélaganna á því ári hafi num
ið yfir 600 milljónum króna.
Upplýsingar þessar er að
finna í nýútkomnum Fjármála-
tíðindum í grein um greiðslu-
jöfnuðinn við útlönd. Samkv.
því, er þar kemur fram, hafa
brúttógjaldeyristekjur flugfélag
anna verið sem hér segir frá
1958: Árið 1958 88,2 millj. 1959
111.0 millj: 1960 278.8 millj.
1961 382.2 millj. 1962 572.7
millj.
Útgjöld íslenzkra flugvéla er-
lendis hafa sömu árin verið sem
hér segir:
Árið 1958 81,7 millj. 1959 90,9
miilj. 1960 214, 2millj. 1961 306
8 millj. 1962 433,1 millj.
Samkvæmt framangreindum
tölu hafa brúttótekjur flugfélag
anna numið hærri upphæð í
gjaldeyri 1962 en allar brúttó-
gjaldeyristekjurnar af útfluttri
saltsfld það ár en þær námu um
550 millj .kr. — Flugfélögin skil
uðu til bankanna 67.5 millj. kr.
í gjaldeyri 1962 og 122,5 millj.
kr. 1963.
Drengur slasaðist illa í gær, er
hann íenti fyrir stórri vörubifreið
á Laugaveginum móts við Þverholt.
Drengurinn, Hörður Þórsson,
Laugarnesvegi 92, átta ára að aldri.
kom á reiðhjóli austan Laugaveg-
inn, en á móts við Þverholt var
stórri vörubifreið ekið þvert í veg
fyrir drenginn og kvaðst ökumað-
urinn ekki hafa séð til ferða hans.
Drengurinn skall á hlið bifreiðar-
innar og ennfremur er talið að
Framhald á bls. 6.
BEIT EYRAD
Eftir harða viðureign f svefnlier-
bergi einu hér I bæ, beit einn með-
limur Sinfóníuhljómsveitar íslands
eyra af félaga sínurn, sem hann
hafði verið að skemmta sér með
þá um nóttina. Hafði verið sam'-
kvæmi hjá þeim er eyrað missti, og
árásarmaðurinn orðið eftir er aðrir
fóru, sökum þess að hann var talinn
of ölvaður tll að skila sér heim.
Um nóttina rumskaði hann svo,
fór á fætur og inn í svefnherbergi
hjónanna, þar sem hann fór að ó-
náða konuna. Eiginmaðurinn varð
að vonum ókvæða við og vildi vísa
gestinum á dyr, en sá vildi hvergi
fara. Tókust þeir þá á og lyktaði
þeirri viðureign þannig að gesturinn
læsti tönnunum í eyra húsbóndans,
og beit úr því stykki, sem hefur
ekki sézt síðan. Lögreglan
var kvödd á vettvang og flutti hún
húsbóndann á slysavarðstofuna, en
síðan var þeim báðum boðið til
gistingar í Síðumúla, það sem eftir !
var nætur. Málið er í rannsókn en
þeim er árásina gerði hefir verið !
vísað úr hljómsveitinni um stund-
arsakir Það skal tekið fram að báðir
mennirnir eru Þjóðverjar.
170 rúmlesta fískiskip í
smíðum hjá Stálvík h.f.
Um þessar mundir er unnið af
fullum krafti hjá Stálvík h.f. við
smíði á 170 rúmlesta glæsilegu
fiskiskipi fyrir Hraðfrystihúsið
Jökul h.f., Keflavík. Áætlað er að
smíði þess verði lokið fyrir n. k.
sumarsíldveiðar. Þetta er þriðja
skipið, sem Stálvík h.f. smiðar, en
áður hefur fyrirtækið smíðað tvo
olíubáta fyrir Skeljung og Olíufé-
lagið, og hafa þeir báðir reynzt
mjög vel.
Stálvík h.f. hefur í vetur smíðað
fiskiskipið í hlutum inni í húsi.
Þyngsti hlutinn vegur 10.1 smá-
Iest. Fyrir hálfum mánuði voru
hlutarnir teknir út og þeim raðað
saman. Smíði skipsins hefur gengið
vel og vinna nú um 30 menn hjá
fyrirtækinu. Teikninguna af fiski-
skipinu fyrir Jökul gerði Ágúst G.
Sigurðsson skipaverkfræðingur.
Miklar byggingaframkvæmdir
eru nú fyrirhugaðar hjá Stálvík h.f.
og hyggst fyrirtækið Ijúka bygg-
ingu aðalstöðvarhússins næsta sum
ar, en fiskiskipið nú byggt á grunni
þess húss. Gert er ráð fyrir að
hægt sé að byggja allt að 300 smá-
lesta skip með öllum útbúnaði
nema möstrum í hinu nýja stöðvar-
' húsi. Þegar lokið er við smíði að-
! alstöðvarbyggingarinnar og búa
j stöðina vélum, eftir kröfum þess
i skipulags, sem hún er mótuð í, er
I sköpuð vinnuaðstaða fyrir um 100
manns. Þannig búin á stöðin að
j geta smíðað fjóra 250 rúmlesta
j fiskibáta á ári. Innkaupsverð þeirra
í dag er nálægt 46 milljónum
króna og þar af sparast 50% í
gjaldeyri, ef smíðin fer fram hér
heima. Stálvík h.f. telur sig geta
boðið sama verð og nú er á skip-
um í Noregi. Fyrirtækið er nú til-
búið að semja um smiði á næsta
skipi 170 — 200 rúmlestir að stærð,
j og getur afhent það fyrir n. k.
vetrarvertíð, ef samið er fljótlega.
Framkvæmdastjóri Stálvíkur h.f.
er Jón Sveinsson tæknifræðingur,
en stjórnarformaður Sigurður
Sveinbjörnsson.
Stálskip, 170 tonna, í sniiðum í
urður Sveinbjömsson.
Stálvik. Fyrir traman standa torraðamenmrnir Jon Sveinsson og Sig-
Vardarfundur annað kvöld
Varðarfélagið ræðir um stór-
iðju annað kvöld kl. 8,30. —
Frummælandi verður Jóhann
Hafstein, iðnaðarmálaráðherra.
Er gert ráð fyrir hálftíma ræðu
ráðherrans en síðan verða fyr-
irspurnir og munu fulltniar úr
stóriðjunefnd svara en að Iok-
um verða frjálsar umræður. — j
Fundurinn verður í Sigtúni. \
s