Vísir - 09.08.1965, Blaðsíða 2
V í SIR . Mánudagur 9. ágúst 1965.
RITST JÓRI Tjow f JIRG/R PE Ttyflsspjvj
1 kvöld ætti íslenzka lands-
liðið að hafa von um sigur.
Þess vegna mætti hvatningar-
hrópið „áfram ísland" hljóma
af enn meiri styrkleika en
nokkru sinni fyrr. Hver veit
nema hvatning áhorfenda
geti orðið til þess að bera lands
liðið yfir erfiðustu hjallana? í
kvöld eru það kornungir en
mjög efnilegir knattspyrnu-
menn íra, sem leika gegn
landsliði okkar. Fjórir nýliðar
eru í liði íranna, — enginn ný-
liði í okkar liði. Fyrirliði ís-
lenzka iandsliðsins, Ríkharður
Jónsson, hefur að baki fleiri
leiki en allt írska landsliðið
samanlagt.
ísland hefur aldrei náð langt
í keppni við erlend lið og má
geta þess að af 40 landsleikj-
um, sem háðir hafa verið frá
þv£ 1946 hafa okkar menn að-
eins unnið 6 leiki, tvívegis náð
jafntefli og 33 sinnum tapað.
TÖPIN hafa verið okkar hlut-
skipti. En sigrarnir hafa verið
sætir, og meðal þeirra má
minnast sigra yfir Svíum, Norð-
mönnum, Hollendingum, Banda
ríkjamönnum og Bermúda-
mönnum. Jafnteflin hafa þó e.
t. v. verið athyglisverðust,
fyrst við Dani £ Olympmkeppn-
inni á Idrætsparken f Kaup-
mannahöfn, en lið Dana fékk
árið eftir silfurverðlaun f
keppninni f Róm, og þá ekki
síður jafntefli f Reykjavík við
atvinnumannalið íra f heims-
meistarakeppninni, en það var
fyrir 3 árum. Markatalan úr
40 leikjum landsliðsins okkar
er 53 mörk skoruð gegn 130
fengnum.
Framhald á bls. .3.
blaða-
menn með
írska liðinu
Engir biaðamenn munu kcca
með frska landsliðinu hingað að
þessu sinni. Einn af fararstjórum
írska iiðsins sagði okkur frá þessu
í gærkvöldi. „Blöðin hafa ekki kom
ið út f mánuð í Dublin vegna verk
falls prentara, og satt að segja
eru menn orðnir blaðaþyrstir í ír-
landi. Menn sjá það alltaf bezt
þegar blöðin koma ekki út hve mik
ils virði þau eru“.
Fram og KR áfram í
bikarnum" með b-liðin
FH einnig áfrcsm eftir sigur við Hauka
Landsliðsmenn hlýða á Ríkharð á æfingunni á laugardag.
LIÐIN í KVÖLD
Leikur ÍSLANDS OG
ÍRLANDS á Laugardals
vellinum hefst kl. 20 í
kvöld, og er fólki ráð-
lagt að mæta tímanlega
til að forðast biðraðir,
og þá eins að notfæra
sér aðgöngumiðasöluna
sem er í allan dag við
Útvegsbankann í Aust-
urstræti.
Liðin eru þannig skip
uð:
Island: Karl Hermannsson (11),
Ellert Schram (6) Jón Stefán=son
(3), Eyleifur Hafsteinsson (10),
Heimir Guðjónsson (1), Högni
Gunnlaugsson (5), Baldvin Bald-
vinsson (9)„ Árni Njálsson (2),
Ríkharður Jónsson (8), Magnús
Jónatansson (4) Gunnar Felixson
(7). Varamenn: Helgi Daníelsson
Sigurvin Ólafsson, Jón Leósson,
Skúii Ágústsson, Ingvar Elfsson.
frland: M. Kearin (7), R. Prole (6)
T. Conroy (8) V Quinn (2), T.
O’Connor (9), Willie Browne (5),
Liam McCormack (1) J. Conway
(10), Patsy McKeown (3), G. James-
(4) Tom Kaeting (11). Varamenn:
Jimmy Cummins, G. Sweetman,
K. Murray.
■jumnwni' . ...
Þrír leikir áttu að fara fram um
heigina í bikarkeppninni, en einn
fór ekki fram vegna þess að Is-
firðingar mættu ekki til leiks.
Liðin, sem halda áfram f keppn-
inni eftir leikina í gær eru FH,
b-lið Fram og b-lið KR.
I Hafnarfirði háðu FH og Hauk-
ar jafna baráttu, sem lauk með
sigri FH 3—2. FH skoraði tvö
fyrstu mörkin en Haukar náðu
2—1, en þá bættu FH-ingar við
og sfðasta markið kom frá Hauk-
um, 3—2.
Á Akranesi sótti hið sterka b-lið
Fram heim b-lið heimamanna.
Leikurinn var ójafn og aldrei
spennandi og lyktaði með stórum
sigri aðkomumanna, 4—0.
Vestur á Melavelli hafði talsvert
af fólki safnazt saman til að horfa
á hið fræga b-lið KR keppa við
ísfirðinga. En því miðúr, ekkert
lið frá Isafirði lét sjá sig og leik-
utlnn var „flautaðu af“ eftir að
KR-ingar höfðu leikið sér að bolt-
anum í 10 mínútur inni á vellinum.
Ástæðan fyrir því, að ísfirðing-
ar mættu ekki mun sú, að þeir
hafa ekki treyst sér til að mæta,
einkum þar sem margir liðsmenn
hafa ekki getað fengið frí frá
vlnnu f fyrradag, en með flugvél-
inni kl. hálf-sjö í gærkvöldi var
ekki pláss fyrir nema hluta liðs-
manna, en sú vél kom frá Akur-
eyri með mikið af farþegum til
Reykjavfkur.
- -^ .MSsrasisHBsssas