Vísir - 09.08.1965, Page 5
VÍSIR . Mánudagur 9. ágúst 1965.
utlönd í morgun
utlönd
7
1
morgun
utlönd í morgun : utlönd í morrm
SINGAPORE-RÍKI GENGIÐ ÚR
MALAJSÍU-SAMBANDSRÍKINU
Frétt barst um það í morgun,
að Singapore hefði gengið úr
Malajsíu-ríkjasambandinu og sjálf-
stætt ríki frá í dag að telja.
Þegar sýnt var, að ekkert fékk
raskað ákvörðun Singaporestjórn-
ar, var gert um þetta samkomu-
lag miili Malajsíu og Singapore,
og var hún undirrituð af Tunku
Abdul Rahman forsætisráðherra
sambandsstjórnar Malajsíu og for-
sætisráðherra Singapore.
Sagði Tunku Abdul Raliman um
þessa undirritun, að ákvörðunin
um að undirrita hana fyrir hönd
Malajsíu væri hin þyngsta, sem
hann hefði nokkurn tíma orðið að
taka, en hyggilegra hefði verið, að
um þetta yrði friðsamlegt sam-
komulag, svo að friðsamlegt sam-
starf héldist.
Þótti þessi frétt hafi komið yfir
Malajsíu sem reiðarslag og kunni
að espa Indonesa til frekari áreitni
við hana, er áherzla lögð á hve
mikilvægt sé, í fyrsta lagi, að
samkomulag var gert um sameig-
inlegt landvarnaráð Singapore og
Malajsíu, og I öðru lagi, að Bretar
hafa áfram réttindi til þess að hafa
flotastöð á Singapore-ey.
Taismaður brezka utanríkisráðu-
neytisins sagði í morgun, að
brezku stjórninni hefði verið til-
kynnt um þetta fyrirfram, og beð-
ið væri frekari upplýsinga.
Brezka útvarpið segir ýmsa ef-
ast um hver afkoma Singapore
verði sem sjálfstæðs ríkis.
í kjölfar þessara frétta komu
Verður Komtant-
in hrakittn frá ?
Þeirri spurningu er
varpað fram nærri
daglega í erlendum
blöðum um þessar
mundir hvort kon-
ungsdæmi á Grikk-
landi sé f þann veg-
inn að hrynja í rúst
ir, og yrði þá
skömm dvöl hinna
ungu konungs-
hjóna „á hefðar-
tindinum". Horfur
eru þær, að ef
konungur þráist
við að fara að
vilja meiri hluta
þings, geti bylting
orðið afleiðingin
og að Iýðveldi yrði
stofnað.
► Konstantin Grikkjakonungur
fól f gær Stefanopoulis vara-
forsætisráðherra í stjóm Papp-
andreu, að kanna möguleikana
á miðflokkastjórn, en áður
hafði konungur, að sögn Papp-
andreu hafnað, að fela honum
stjómarmyndun. Varaði Papp-
andreu þá konung við tilraun-
inni til þess að kljúfa Mið-
flokkasambandið, — Stefano-
heims-
horna
milli
poulis kvaðst taka að sér hlut-
verkið', en lýsti samtímis yfir
að hann teldi sér skylt að fara
að vilja meirihluta þingflokks-
ins, en hann kemur saman í
dag.
► Kosningabaráttan er hafin í
Vestur-Þýzkalandi. Hófst hún
með fjölmennum fundi í Dort-
Tunku Abdul Rahman.
fréttir um miklar breytingar á
stjórninni, aðallega um ný
verkaskipti, en ekki sjáanlegt af
fyrstu fréttum, að nýir menn hafi
verið teknir í hana.
mund þar sem dr. Adenauer
talaði. Hann sagði, að Vestnr-
Þýzkaland óskaði ekki eftir yf-
irráðum kjamorkuvopna, en
Evrópa yrði að ráða yfír þeim
vopnum sér til vamar sem
henni væri ógnað með.
Maxwell Taylor hershöfð-
ingi, til skamms tfma sendl-
herra Bandaríkjanna f Saigon,
Suður-Vietnam, sagði í sjðn-
varpi í Washington f gær, að
styrjöldin í Vietnam kynni að
standa í eitt ár enn. Hann taldl
sprengjuárásimar á N.Vietnam
farnar að ná tilgangi sínum.
Hann kvaðst líta svo á, að það
væri óhyggilegt, ef sprengjum
væri varpað á Hanoi, með tiliiti
til samkomulagsumleitana nm
frið, sem fyrr eða síðar yrðu
hafnar.
Edward Heath
Framh. af bls. 7.
Macmillan og Heath
halda hátíð,
Daginn sem Macmillan var
skipaður forsætisráðherra sást
hann og Heath tveir einir sitja
að kvöldverði f Turf Club og
halda hátíð. Máltíð þeirra var
ostrur, steik og kampavín
Heath var nánasti trúnaðar-
maður og stuðningsmaður Mac-
millans, sem fól honum í fyrstu
viðfangsefni í utanríkismálum
og varð Heath þannig samstarfs
maður Lord Homes sem tók við
embætti utanríkisráðherra. En
síðan fól Macmillan Heath
meðferð eins mesta stórmáls
brezkra stjórnmála, inngöngu
Bretlands í Efnahagsbandalagið
og það var engin tilviljun, því
að Heath var ákveðnasti bar-
áttumaðurinn í því efni Htinn
varð nú að þola og standcst
margar harðar rimmur í Ihalds
flokknum sjálfum vegna þess
hve sterk innri andúð var gegn
því að taka Evrópu fram yfir
Brezka samveldið. En Heath
tókst það með ósegjanlegri
fyrirh-fn að berjast og vinna
meirihluta fyrir þessum mál-
stað innan flokksins. Þeim mun
meira áfall var það fyrir hann
þegar de Gaulle neitaði Bretum
endanlega um inngöngu. Það er
f eina skiptið, sem menn þykj-
ast hafa séð á Heath uppgjöf
og vonleysi. Var það nú sumra
álit að Heath hefði beðið slíkan
ósigur að hann ætti sér ekki
viðreisnar von. Áður var jafn-
vel farið að tala um hann
sem vænlegan flokksforingja •
framtíðinni, en í umbreyting-
unum miklu í sambandi við
Keeler-hneykslið kom hann
ekki til greina. Það hefði verið
útilokað fyrir ihaldsflokkinn að
ganga til kosninga undir for-
ustu mannsins sem átti sök &
Evrópu-hneisunni.
Studdi Lord Home
og beið.
Heath hafði kynnzt Lord
Home náið í samstarfi þeirra 1
utanríkismálunum og nú var
hann í tölu þeirra fáu sem
studdu hann einbeitt og drengi-
lega, þegar hann varð fyrir val-
inu sem nýr forsætisráðherra.
^Sagt er, að Heath hafi og gert
petta af kænsku. Hann hafi
þótzt sjá fyrir, að Lord Home
eða Sir Alec eins og hann varð
nú kallaður myndi ekki verða
flokksforingi til langframa og
tækifæri myndi þá bjóðast
yngra manni eftir skamma
stund. Heath sat í stjórn Sir
Alecs sem viðskiptamálaráð-
herra og átti í því embætti
frumkvæði að mesta hitamáli
innan þings og sérstaklega
innan íhaldsflokksins. Það var
löggjöf um að afnema sam-
ræmda álagningu j. í smásölu.
Voru smákaupmenn, sú stétt
sem ákveðnast styður íhalds-
flokkinn mjög andvígir þessum
lögum, því þeir óttuðust erfið-
leikana af skefjalausri verzl-
unarsamkeppni og sölu stóru
verzlunarhringanna. Heath
varð ekki vinsæll fyrir þessa
löggjöf, en í umræðunum á
þingi sem stóðu í marga sólar-
hringa birtist hann þrátt fyrir
það sem hinn sterki og ósveigj-
anlegi forustumaður. Hann stóð
eins og klettur úr hafinu.
Ekki vinsældir
heldur traust.
Og Heath var ekki kjörinn
foringi flokks síns vegna per-
sónulegra vinsælda, heldur
vegna þess að meirihluti flokks
félaganna álítur hann vænlegast
an og harðastan baráttumann.
Þessa fáu daga síðan hann tók
við forustuhlutverkinu hefur
það líka komið fram að þar sem
hann og Wilson eru, þar mæt-
ast tvö stálin stinn. Strax hef-
ur fjör og bardagi færzt I leik-
inn og það er fyrst eftir þær
atlögur, sem margir hafa skilið,
hvers vegna Sir Alec gat ekki
lengur verið forustumaður
Ihaldsflokksins. Hann var alltof
mikið ljúfmenni til þess að geta
fært nokkurn hita í leikinn.
Hann kunni ekki að sækja á,
var meinlaus og slappur. Har-
old Wilson átti sviðið einn og
hefur bólgnað út og stækkað
í meðvitund þjóðarinnar gegn
veiklulegum þæfingi Sir Alecs.
En nú stendur jafnoki hans á
móti honum hinum megin við
gólfið og Ihaldsflokkurinn gerir
sér vissulega um þessar mundir
vonir um að Heath geti orðið
ofjarl hans, stolið sviðinu frá
honum og hrifsað til sín frum-
kvæðið.
Fátækur piparsveinn.
Edward Heath er á margan
hátt óvenjulegur maður. Hann
er ókvæntur og virðist engan
áhuga hafa á kvenfólki, eða að
minnsta kosti er ómögulegt að
ímynda sér að hann gæti tekið
þátt í daðurkenndu rabbi við
kvenfólk. Hann er alls ekki rfk-
ur maður, hefur ekki haft neinn
áhuga á að safna fé í sjóði.
Hann vill gjarnan hafa efni og
ástæður til að lifa góðu og
þægilegu lífi, hann býr í stórri
lúxusíbúð í London og metur
mikils gómsætan mat og góð
vín. Að þessu leyti er hann
andstæða Wilsons, sem heldur
áfram að lifa sínu spartanska
allt að því fátæka lífi með
fjölskyldu sinni þótt heimilið
sé Downing Street 10.
Ef nefna á eitthvert sérstakt
einkenni eða hæfileika Heaths
þá er það hans ótrúlega og ó-
bifandi minni. Ef hann er að
ræða um fjármál eða viðskipta-
mál í þinginu lítur út fyrir að
hann kunni utanað alla reikn-
inga og áætlanir niður í
minnstu smáatriði. Með þessu
hefur honum oftsinnis tekizt
að láta andstæðinga sína standa
uppi á gati. Minni hans á fólki,
nöfn þess og skoðanir og skyld-
leikatengsl er jafn ótrúlegt.
Hann virðist alltaf vera f þeirri
aðstöðu að vita meira um þann
sem hann er að tala við, en
hinn maðurinn veit um hann.
Fólk sem hann hefur hitt sem
snöggvast fyrir heilum áratug,
man hann ennþá hvað heitir og
virðist allt vita um það.
Eins og fyrr segir ágimist
harm ekki fé. Hann er ekkert
nema stjómmálamaður af llfi
og sál og sem slíkur sækist
hann aðeins eftir völdum og
frægð. Það er hans eina mark-
mið í lífinu.
Leitar afþreyingar
í tónlistinni.
En baráttan á því sviði verð-
ur jafnan erfið og hörð. Þeir
sem til þekkja em þeirrar
skoðunar, að Heath hafi orðið
að taka þátt í svo mörgum
þreytandi rimmum, að hann
hefði hlotið að gefast upp, ef
hann hefði ekki haft eitt áhuga
svið enn, sem lyftir hug hans
upp í hæðir og veitir honum
hvíld og afslöppun. Hann ann
tónlist og hefur löngum verið
fastur gestur á hljómleikum
sinfóníuhljómsveita og á ópem-
sýningum í London. Til dæmis
vakíi það furðu, að kvöldið áð-
ur en kjósa skyldi foringja
íhaldsflokksins ímynduðu flest-
ir sér að Heath væri önnum
kafinn við að skipuleggja og
stæla lið sitt. En hann sat
þetta kvöld alveg rólegur og
áhyggjulaus í Glyndeboume-
óperunnj ög hlýddi á söngleik-
inn Macbeth eftir Verdi.